Ágústa Runólfsdóttir, f. á Heiði í Gönguskörðum 01.08.1892, d. 23.06.1972. Foreldrar: Runólfur Jónsson sjómaður á Sauðárkróki og kona hans Nanna Soffía Ólafsdóttir. Ágústa ólst upp á Sauðárkróki hjá foreldrum sínum. Ágústa giftist Jónasi 17 ára gömul en hann lést eftir stutta sambúð. Ágústa fór sem ráðskona til Páls að Herjólfsstöðum árið 1914 og felldu þau hugi saman. Árið eftir fóru þau á Sauðárkrók og bjuggu þar til 1924 en fóru þá að Hrafnagili í Laxárdal. Einnig voru þau um tíma í Brennigerði. hjá Þorvaldi Guðmundssyni og Salóme Pálmadóttur. Eftir það fluttu þau aftur á Sauðárkrók og bjuggu þar þangað til þau fluttu til Akureyrar 1940. Páll og Ágústa bjuggu við mikla fáækt öll sín búskaparár í Skagafirði. Páll veiktist af taugaveiki 1924 og segja má að heimilið hafi verið leyst upp í kjölfarið. Þurftu þau að láta þrjú af börnum sínum frá sér á sveit og elsta dóttirin fór til ömmu sinnar. Maki 1: Jónas Jónasson frá Sauðárkróki (1884-1912). Þau eignuðust tvo syni en annar dó sem kornabarn. Maki 2: Páll Jóhannsson (1888-1981). au eignuðust 10 börn og komust öll til fullorðinsára nema eitt.