Álfheiður Guðjónsdóttir, síðar Blöndal, f. 30.09.1874, d. 28.12.1941. Foreldrar: Guðjón Hálfdánarson, f. 1833, prestur síðast í Saurbæ í Eyjafirði og Sigríður Stefánsdóttir. Álfheiður ólst upp hjá foreldrum sínum en eftir lát föður síns flutti hún með móður sinni, fyrst að Melgerði í Eyjafirði en síðan að Goðdölum í Skagafirði er sr. Hálfdán bróðir hennar vígðist þangað. Hún naut á yngri árum kennslu í Kvennaskólanum í Reykjavík og á Ytri-Ey. Starfaði mikið í Hinu skagfirzka kvenfélagi. Maki: Kristján Þórður J. Blöndal, f. 18.07.1864, póstafgreiðslumaður og bóksali á Sauðárkróki. Þau eignuðust tvíbura en aðeins annar þeirra, Jean Valgarð, komst upp.