Seyluhreppur var hreppur vestan Héraðsvatna í Skagafjarðarsýslu, kenndur við bæinn Stóru-Seylu á Langholti, sem var þingstaður hreppsins.
Til hreppsins töldust fjögur byggðarlög, Langholt, Vallhólmur, Víðimýrarhverfi og Skörð, en einnig Fjall, Geldingaholt og Húsabakkabæirnir, sem ekki töldust tilheyra neinu þessara byggðarlaga. Byggðin er breið og áttu aðeins sex bæir í hreppnum land til fjalls. Hreppurinn var allur í Glaumbæjarsókn en þar eru tvær kirkjur, í Glaumbæ og á Víðimýri. Fyrr á öldum var einnig kirkja í Geldingaholti.
Aðalatvinnuvegur hreppsbúa var lengst af landbúnaður en nokkru fyrir miðja 20. öld byggðist upp dálítill þéttbýliskjarni í Varmahlíð og starfa íbúar þar flestir við verslun og þjónustu af ýmsu tagi. Þar er skóli, félagsheimili, hótel og sundlaug, auk verslunar og annarrar þjónustustarfsemi. Við sameininguna bjuggu 303 íbúar í hreppnum, þar af 125 í Varmahlíð.
Hinn 6. júní 1998 sameinaðist hreppurinn 10 öðrum sveitarfélögum í Skagafirði: Skefilsstaðahreppi, Sauðárkrókskaupstað, Skarðshreppi, Staðarhreppi, Lýtingsstaðahreppi, Rípurhreppi, Viðvíkurhreppi, Hólahreppi, Hofshreppi og Fljótahreppi, og mynduðu þau saman sveitarfélagið Skagafjörð. (https://is.wikipedia.org/wiki/Seyluhreppur)
Í skjalasafninu eru skjöl frá Seyluhreppi í Skagafirði frá árunum 1790-1998 þegar hreppurinn sameinaðist tíu öðrum sveitarfélögum og til varð sveitarfélagið Skagafjörður. Röðun innan flokka er í tímaröð en sumstaðar eru eyður þar sem gögn hafa glatast m.a. í bókhaldinu.
Published
Published
Ritið var ljósmyndað 27.05.2019 af Eyrúnu Sævarsdóttur. Liður í verkefni sem styrkt var af Þjóðskjalasafni Íslands. Með því að smella mús á mynd má skoða stafræna útgáfu af bókinni í heild sinni. Hægt er að fá stafrænt afrit í meiri upplausn með því að hafa samband við skjalasafn@skagafjordur.is
Published
Fundargerðarbók hreppsnefndar Seyluhrepps. Bókin er í ágætu ástandi.
https://creativecommons.org/licenses/by-nc/4.0/
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
"Hinn 4. maí 1872 var gefin út tilskipun um sveitarstjórn á Íslandi. Þá komust amtsráð, sýslunefndir og hreppsnefndir á laggirnar...Sýslunefnd skipuðu að öllum jafnaði 6-10 fulltrúar, kosnir af sveitarfélögum. Ef hreppar voru fleiri en tíu í sýslu, skipuðu nefndarmenn hinna fjölmennari föst sæti í sýslunefnd, en hinir fámennari hreppar skiptust á sýslunefndarmönnum..."
Á "þjóðhátíðinni á Reynistað" sem svo hefur verið nefnd og haldin í Espihólsstofu Eggerts Briem í júlí 1974 voru mörg þjóðþrifamál rædd og hófst í kjölfarið mikil vakningaralda sem hreif með sér unga sem aldna. Samgöngumál voru þar ofarlega á baugi og fór það svo að bættar samgöngur, einkum brúarsmíð, voru efst á málaskrá sýlsunefndar um áratugaskeið.
Eggert Briem kvaddi til fyrsta sýslunefndarfundar Skagfirðinga 8. október 1874 og voru þangað mættir fulltrúar 7 hreppa. Til ársins 1897 voru hreppar sýslunnar 12 . Ákveðið var að þeir fulltrúar þeirra tveggja hreppa sem ekki áttu sæti í nefndinni hverju sinni skyldu mega vera viðstaddir fundi og hafa þar málfrelsi. Var reynt að halda fundina sem næst miðbiki sýslunnar. Sýslunefnd starfaði til ársins 1988.
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published
Published