Ólafur B. Óskarsson bóndi í Víðidalstungu í ræðustóli, hugsanlega þegar Bóknámshús Fjölbrautaskólans var tekið í notkun haustið 1994 en hann talaði þar fyrir hönd sveitastjórna á Norðurlandi vestra.
Ársþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) haldið í Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki í ágúst 1995. F.v. Páll Pétursson félagsmálaráðherra, Björn Sigurbjörnsson formaður SSNV, Anna Kristín Gunnarsdóttir, Steinunn Hjartardóttir og Björn Bjarnason menntamálaráðherra í ræðustóli.
Tvær stúlkur af Norðurlandi vestra þær Sólveig Þórarinsdóttir frá Sauðárkróki og Bára Pálína Oddsdóttir frá Siglufirði kepptu um titilinn fegurðardrottning Norðurlands í Sjálfstæðishúsinu á Akureyri vorið 1998. Þær eru hér á mynd ásamt unnustum og foreldrum. F.v. Þórarinn Þórðarson og Jakobína H. Hjálmarsdórrir foreldrar Sólveigar og Hólmar Sigmundsson unnusti Sólveigar, þá Sólveig og svo Bára Pálína og Ómar Sigmarsson unnusti Báru Pálínu. Svava Aðalsteinsdóttir og Oddur Jónsson foreldrar Báru Pálínu eru t.h.
Við skólaslit Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra vorið 1994 hafði Tómas Dagur Helgason orð fyrir 10 ára stúdentum. Honum á hægri hönd er Jón F. Hjartarson skólameistari.
Karen Steindórsdóttir nemandi á málabraut í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra tekur við viðurkenningum fyrir góðan námsárangur á stúdentsprófi vorið 1996 frá skólameistara Jóni F. Hjartarsyni.
Sólveig Fjólmundsdóttir frá Hofsósi (önnur f.v.) sigraði í "Öskri" söngvarakeppni Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki í febrúar 1998. Til vinstri við Sóveigu eru Ragnar Magnússon, Þóra Þórhallsdóttir og Eiríkur Hilmisson.
Haustið 1993. færðu KS og fyrirtækið Ísaga Fjölbrautaskólanum kennslumyndbönd um all er lýtur að logsuðu. F.v.Eiður Benediktsson kennari, Ólafur Guðmundsson kennari, jón Hjartarson skólameistari, Kristján Rafnsson sölustjóri Ísaga og jón Eðvald Friðriksson fulltrúi KS.
Nemendur í Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki sem útskrifuðust af iðn- og atvinnulífsbraut og einn tæknistúdent vorið 1993. Jón F. Hjartarson skólameistari er fyrir miðju í fremri röð.
Nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki við skólaslit í Sauðarkrókskirkju, hugsanlega vorið 1983 eða 1984. Jón F. Hjartarson skólameistari í aftari röð fyrir miðju.
Keppendur og aðstendur stærðfræðikeppni Fjölbrautaskólaskólans á Sauðárkróki sem fram fór vorið 1998. Jón F. Hjartarson skólameistari Fjölbrautaskólans er lengst t.v. og Kristján Halldórsson verkfræðingur og frumkvöðull keppninnar er lengst t.h.
Nýstúdentar og kennarar Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki ganga frá Sauðárkrókskirkju að loknum skólaslitum vorið 1983. Jón F. Hjartarson skólameistari fremstur fyrir miðju og Bragi Halldórsson kennari lengst t.v.
Iðnnemar og kennarar við Fjölbrautaskólann veturinn 1981-82. Í fremstu röð eru kennararnir Valgeir Kárason lengst t.v. og Eiður Benediktsson lengst t.h.
Nýútskrifaðir sjúkraliðar frá Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki vorið 1988. Þeir fyrstu frá skólanum. Sjúkraliðarnir eru Anna Kristinsdóttir, Brandís Benediktsdóttir, Gréta Björk Úlfsdóttir, Helga Jónsdóttir, Katrín María Andrésdóttir, Kristín Friðbjörnsdóttir og Sigríður Kr. Jónsdóttir og eru þær í aftari röð. Í fremri röð eru f.v. Ásta Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur, Sæmundur Hermannsson sjúkrahúsráðsmaður, Jón F. Hjartarson skólameistari og Jónína Hallsdóttir hjúkrunarforstjóri.
Iðnnemar sem útskrifuðust frá Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki vorið 1988. Aftasta röð f.v. Þór Þorsteinsson, Steinar Pétursson og Valur Zophaníasson. Mið röð f.v. Gísli Árnason, Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson, Sigurður H. Aðalsteinsson og Ómar Bragason. Fremsta röð f.v. Valgeir Kárason kennari, Jón F. Hjartarson skólameistari og Eiður Benediktsson kennari.
Þrem af þeim sem synt hafa Drangeyjarsund var boðið til eyjarinnar sumarið 1994 af Jóni Eiríkssyni á Fagranesi. Mennirnir eru f.v. Pétur Eiríksson, Axel Kvaran, Jón Eiríksson og Eyjólfur Jónsson. Pétur synti árið 1936, Axel árið 1939 og Eyjólfur árin 1957 og 1959. Á myndinni eru þeir á bryggjunni í Uppgönguvíkinni í Drangey.
Sunnan hvassviðri með miklu brimi gekk yfir Norðurland í febrúar 1991 og olli gríðarlegu tjóni. Á myndinni eru björgunarsveitarmenn að störfum við höfnina á Sauðárkróki.
Íþróttafólk úr Umf. Neista á Hofsósi siglir frá Málmey eftir að hafa bætt lendingarskilyrði við eyna vorið 1995. Það er Páll Magnússon sem stendur í stafni bátsins.