Mynd sennilega tekin norðan við Verknámshús Fjölbrautaskólans. Tilefnið óþekkt. (1983-1986). F.v. Óþekktur, Sigrún Alda Sighvatsdóttir, óþekktur, Pálmi Rögnvaldsson, Jón Hjartarson, Rúnar Bachmann, Björn Sigurbjörnsson, Jón Ásbergsson (á bak við), Bragi Halldórsson og sr. Hjálmar Jónsson.
Frá undirritun samnings um byggingu bóknámshúss við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki vorið 1991 milli ríkisins annars vegar og Héraðsnefndar Skagafjarðar hinsvegar. F.v Magnús H. Sigurjónsson framkvæmdastjóri héraðsnefndar, Svavar Gestsson menntamálaráðherra, Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra, Ragnar Arnalds formaður bygginganefndar bóknámshúss og Þorbjörn Árnason form. skólanefndar.
Frá undirritun samnings um uppbyggingu Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki milli sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og ríkisins, sem fram fór í verknámshúsi skólans í desember 1990. Þá var nafni skólans breytt í Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra á Sauðárkróki. Þekkja má við enda borðsins f.v. Svavar Gestsson menntamálaráðherra, Þorbjörn Árnason formann skólanefndar, Jón F. Hjartarson skólameistara og Ragnar Arnalds þingmann (eða ráðherra).
Árssþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) haldið í Bóknámshúsi Fjölbrautaskólans í ágúst 1995. F.v. Björn Bjarnason menntamálaráðherra, Páll Pétursson félagsmálaráðherra, Björn Sigurbjörnsson formaður SSNV, Anna Kristín Gunnarsdóttir, Steinunn Hjartardóttir og Þórður Skúlason sveitastjóri á Hvammstanga í ræðustóli.
Ársþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) haldið í Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki í ágúst 1995. F.v. Páll Pétursson félagsmálaráðherra, Björn Sigurbjörnsson formaður SSNV, Anna Kristín Gunnarsdóttir, Steinunn Hjartardóttir og Björn Bjarnason menntamálaráðherra í ræðustóli.