Möðruvellir í Eyjafirði. Vegur til hægri niður Leyning - en til vinstri vegur suður melana. Lengst til vinstri er fjós prestsins - þá Leikhúsið - síðan íbúðarhús (brann haustið 1937). Þá Stefánsfjósið og yst er lítið hesthús (áður notað sem fjós) sem nú er búið að rífa.
Á Möðruvöllum. Séra Sigurður Stefánsson - síðar vígslubiskup - að skriftum. Bruno skrifaði á myndina: Prestur skrifar kynningar-eða meðmælabréf fyrir Bruno handa Ferdinand í Spónsgerði.