Veghefill með brotinn öxul í Norðurárdal við afleggjarann að Munaðarnesi. Maðurinn á myndinni er Freymóður Þorsteinsson (1903-1998) frá Húsafelli - bæjarfógeti í Vestmannaeyjum.
Fjölskylda Jóns Guðmundssonar vitavarðar á Reykjanesi. F.v. Einar Jónsson (f. 1923) Ólína - Kristín Guðmundsdóttir (f. 1893 d. 1976) María M. Guðmundsdóttir (f. 1901 d. 1985) - Sveinbjörn Guðmundsson - heldur á hrífu - Guðmundur Ásgeir Jónsson (1926 d. 1982) - Ragnar Jónsson (f. 1928) - og Jón Ágúst Guðmundsson frá Valþjófsdal í Önundarfirði.
Helga Erlendsdóttir húsfr. Bjarnastaðahlíð Skag. með dóttur sína Ingibjörgu Sveinsdóttir (f. 1936) - síðar húsfreyju í Eyhildarholti. Helga situr á kirkjubekk úr Ábæjarkirkju í Austurdal.
Hlíðarshús - Lækjargata 3 - Akureyri. Þar bjó Sigurður Hlíðar (1885-1962) dýralæknir í Norðlendingafjórðungi með búsetu á Akureyri þangað til hann var skipaður yfirdýralæknir með búsetu í Reykjavík árið 1943. Sigurður var þýskur vararæðismaður á Akureyri frá 1927 til 1940. Kona hans var Guðrún Louisa Guðrbrandsdóttir frá Reykjavík (1887-1963). Tréin til vinstri eru í garði sr. Geirs Sæmundssonar vígslubiskups. Telpurnar á myndinni eru systurnar Jóna Alfreðsdóttir (f.1929) og Helga Alfreðsdóttir (f. 1927) sem ólust upp á Lækjargötu 6 - - dætur Alfreðs Steinþórssonar frá Hömrum (f.1903). Gamla konan er líklega María Friðfinnsdóttir í Ráðhússtíg 2 - kölluð María í Smiðjunni.
Spónsgerði í Hörgárdal í Eyjafirði - en þangað fór Bruno með meðmælabréf prestsins á meðan Matthías skoðaði leiði Bjarna Thorarensen. Myndin er tekin á bæjarhúsunum til suðvesturs í átt að fjárhúsunum. Í fjarlægð sjást fjárhúsin á Möðruvöllum (frá vinstri: Fjárhús - miðhús og Lækjarbakkahús). Ábúendur 1935 voru Ferdinand Kristjánsson frá Meyjarhóli á Svalbarðsströnd (1892-1971) og Jenný Ásgeirsdóttir frá Gautsstöðum (1898-1995). Dóttir þeirra er Ásta Ferdinandsdóttir (f. 1928) Spónsgerði.
Möðruvellir í Eyjafirði. Vegur til hægri niður Leyning - en til vinstri vegur suður melana. Lengst til vinstri er fjós prestsins - þá Leikhúsið - síðan íbúðarhús (brann haustið 1937). Þá Stefánsfjósið og yst er lítið hesthús (áður notað sem fjós) sem nú er búið að rífa.
Framan við bæinn í Staðartungu - Hörgárdal - Eyjafirði. Konan til vinstri er Ingibjörg Kristjánsdóttir (1908-1992) gift Jóni Kristjánssyni (1906-1974). Synir þeirra tveir sem eru á myndinni eru Páll Snævar(f. 1932 - búsettur á Akureyri) og Þengill (f.1929 bifvélavirki á Akureyri). Konan til hægri er húsmóðirin - Stefanía Jónsdóttir (1874-1944) - kona Friðbjarnar.
Trésmiðurinn sem sá um viðgerðina á gamla bænum í Laufási var Baldur Helgason (1889-1977) sem hér stendur hjá verkstæði sínu bak við Hótel Goðafoss. Baldur var frá Grund í Höfðahverfi og starfaði alla tíð sjálfstætt að iðn sinni á Akureyri. Lengst hafði hann verkstæði sitt við Hafnarstræti - en síðustu árin í Laxagötu 4. Hann flutti inn fyrstu eða eina af fyrstu trésmíðavélum til Akureyrar.
Myndin er tekin af Vaðlaheiðavegi skammt fyrir ofan Skóga - sem er nálægt miðjum Fnjóskadal. Frá vinstri talið sést mikill hluti Vaglaskógar. Ofan hans sést inn Kisárdal til suðausturs. Hann skilur Lundöxlina frá öðrum hlutum fjallgarðsins austan dalsins og sést hvernig hún gengur skáhallt upp á hálendið allt til Háafells - sem ber hæst á fjallgarðinum milli Lunds og Þórstaðafjalla. Er þeim sleppir sést á myndinni lítið vik í fjallahringinn og tekur þar við hinn hvassbrýndi Kambfellshnjúkur. Síðan sést Tunguöxl og Tungufjall - en í smáviki milli þeirra sést í mynni Hjaltadals. Vinstra megin Tungufjalls sést í mynni Bleiksmýradals - sem nær óravegu til suðvesturs inn á hálendið. Nær má svo sjá Sellandsfjall og Illugastaðahnjúk. Næst á myndinni eru undirhlíðar Vaðlaheiðar ofan við Skóga. Á miðri mynd lengst t.v. glittir í Fnjóská.
Kaffidrykkja í gestastofunni í Laufási - en þar var gestum veittur beini - ekki með heimilisfólkinu. Frá vinstri: Mattías Þórðarson þjóðminjavörður - Ólína Marta Jónsdóttir (1898-1991) - prestfrú (frá Sjónarhóli á Vatnsleysuströnd) - Sr. Þorvarður Þormar (1896-1970 - frá Geitagerði í Fljótsdal) og Bjarni Jónsson (1872-1948). útibússtjóri Íslandsbanka og síðar Útvegsbankans á Akureyri. Hann lét af því starfi og flutti til Reykjavíkur í ágúst 1935. Í baksýn eru óþekktir menn - annar gæti verið bílstjórinn.
Kaffidrykkja í gestastofunni í Laufási - en þar var gestum veittur beini - ekki með heimilisfólkinu. Frá vinstri: Mattías Þórðarson þjóðminjavörður - Ólína Marta Jónsdóttir (1898-1991) - prestfrú (frá Sjónarhóli á Vatnsleysuströnd) - Sr. Þorvarður Þormar (1896-1970 - frá Geitagerði í Fljótsdal) og Bjarni Jónsson (1872-1948). útibússtjóri Íslandsbanka og síðar Útvegsbankans á Akureyri. Hann lét af því starfi og flutti til Reykjavíkur í ágúst 1935. Í baksýn eru óþekktir menn - annar gæti verið bílstjórinn.
Sr. Þorvarður Þormar í Laufási við slátt ásamt óþekktum manni. Elías Gíslason (1897-1970) frá Melum á Fljótsdalshéraði er að kljást við kálf t.h. (óvíst hvort rétt)
Ólína Marta Jónsdóttir (1898-1991) húsfreyja í Laufási ásamt börnum sínum Vilborgu - Herði - Halldóri og Guttormi. Sprellikarlinn á veggnum var heimagerður úr krossviði - en klukkan var líklega amerísk.