2 blaðaúrklippur. Annars vegar Tíminn, miðvikudaginn 12. ágúst 1953, heil síða. Líklega hefur Bruno verið að halda utan um minningargrein um Einar S. Friðriksson frá Hafranesi. Hins vegar smá-úrklippa með fyrirsögninni "Með morgunkaffinu". Ekki vitað úr hvaða blaði né frá hvaða tíma. Á íslensku. Ekki gott að sjá hvaða fróðleiksmola Bruno hefur verið að geyma í þessu tilviki.
Vélritað bréf frá Dr. Bruno Schweizer, Kleppi, Reykjavík til ritara Háskóla Íslands, dagsett 28.10.1948. Efni bréfsins fjallar um auglýsingu/kynningu á fyrirlestri Bruno um Langbarðinga á Ítalíu sem hann hefur líklega ætlað að halda um veturinn. Drög að auglýsingunni fylgja bréfinu.
Bréf en ekki kemur fram hver var viðtakandinn. Með haus: "B. Schweizer - Diessen. Alleinvertretung fur islandische kleinpferde. Dagsett 5. maí 1937. Fjallar um innflutning á íslenskum hrossum til Sviss.