Skissa af Reykjarvíkurhöfn - þar sem hvít skúta er mest áberandi. Í bakgrunni má sjá Esjuna - Kistufell og Mosfell. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1955-1965.
Skissa af húsaþyrpingu við sjávarsíðuna - á Sauðárkróki. Bryggja kemur vinstra megin inn í myndina og handan við fjörðinn má sjá fjöll. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1955-1965.
Á myndinni eru fjórir hestar sem standa utan við hús sem sést á vinstri hlið. Tveir hestarnir er dökkir - einn þeirra ljós og einn rauður í forgrunni. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1975-1985.
Skissa af fimm hestum sem standa við húsaþyrpingu - líklega í hesthúsahverfi einhversstaðar í Reykjavík - þar sem Esjuna má sjá í bakgrunni. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1960-1970.
Myndefnið er vegur sem hlykkjast í gegnum landslag - með tveimur húsum sitthvorum megin vegar. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1965-1975.
Landslagsmynd með tveimur kindum á beit - ein dökk og ein ljós. Óvíst hvaðan. Í bakgrunni má sjá þrjár rafmagnsstaura. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1965-1975.
Á myndinni eru þrír hestar sem standa utan við hús sem sést á vinstri hlið. Tveir hestarnir er dökkir en einn þeirra ljós. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1975-1985.
Landslagsmynd með grænleitri og svartri jörð í forgrunni og snæviþöktum fjöllum í bakgrunni. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1960-1970.
Myndefnið er líklega aðkoma bæjar - þar sem vegur hlykkjast inn í bæjinn. Staðsetning ókunn. Hús eru í forgrunni - fyrir miðju myndar (þar sem vegurinn hlykkjast) og svo loks húsaþyrping í bakgrunni. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1965-1975.
Landslagmynd með ljósan (gulleitan) himinn og dökkleita jörð. Þar má greina óljósan bát og líklega hús eða skúr. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1960-1970.
Mynd af bát á landi við litla bryggju - óvíst hvar. Í bakrunni má sjá fjall handan við fjörð - mögulega Akrafjall. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1955-1965.
Mynd af bátum á landi - annar á hvolfi - óvíst hvar - mögulega við Ægissíðu. Tvær gæsir eru í forgrunni og tveir skúrar í bakrunni. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1960-1970.
Skissa af hestum á beit í haga - þar sem þeir eru saman komnir við girðingu. Handan við þá er flatlendi og svo fjöll. Staðsetning er líklegast Skagafjörður. Myndin gæti verið frá 1975-1985.
Götumynd af gömlum húsum en eitt þeirra er í fúnkis stíl og stendur uppúr. Húsið er hátt - mjótt og ferkantað. Á götunni má sjá gangandi vegfarendur. Staðsetning er ókunn. Myndin gæti verið frá 1970-1980.
Landslagsmynd þar sem í forgrunni eru þrennar litlar trjáhríslur en handan við vatnið/sjóinn er ljósastaur og rafmagnsstaur. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Landslagsmynd þar sem vegur hlykkist gengum landslagið - á veginum virðist vera ökutæki og hestar eru á beit vinstra megin við veginn. Í forgrunni má sjá menneskju standa við vatn en í bakgrunni er fjall. Sólarlag er hægra megin fjallssins. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1970-1980.
Skissa af kirkju - mögulega kirkjan á Eyrarbakka - umkringd nokkrum húsum. Í forgrunni má sjá manneskju í blárri yfirhöfn (til hægri) og þvottur hangir á snúru við hús (til vinstri). Myndin gæti verið frá 1975-1985.
Skissa af baðgestum Bláa lónsins. Nokkrar manneskjur eru í forgrunni og eru klædd en flestir eru fálæddir að baða sig í grænleita lóninu. Í bakgrunni stígur upp mikil gufa. Myndin gæti verið frá 1975-1985.
Mynd af bláum vörubíl keyra eftir vegi og ljósastaurar eru meðfram veginum. Í forgrunni er manneskja í rauðri yfirhöfn. Myndin gæti verið frá 1975-1985.
Skissa af iðnaðarhúsnæði við litla bryggju í firði - staðsetning ókunn. Í forgrunni má sjá tvenna báta en í bakgrunni er fjall. Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Myndefnið er bær - óvíst hvar en mögulega Hafnafjörður. Í forgrunni má sjá baksvipinn á manneskju ganga eftir vegi. Reisuleg kirkja stendur upp úr húsaþyrpingunni - mögulega Hafnafjarðarkirkja. Myndin gæti verið frá 1975-1985.
Skissa af hestum innan gerðis við tvenn lítil hús. Í bakgrunni er Esjan og miðað við sjónarhornið á fjallið er staðsetningin líklegast í Mosfellsbæ. Myndin gæti verið frá 1970-1980.