Mynd af lítilli kirkju - óvíst hvar en sennilega við sjávarsíðuna þar sem í forgrunni liggur bátur á hvolfi á jörðinni. Á myndinni er einnig áberandi staur (sama myndefni og er á JG 57). Myndin gæti verið frá tímabilinu 1960-1970. Mynd vantar í safn.
Mynd af vegi sem hlykkjast í gengum hæðótt landslag - hverfur fyrir miðju myndar og birtist svo á ný við efra hægra horn myndar. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1960-1970.
Landslagsmynd úr Skagafirði. Í forgrunni erru strá og sandur - svo kemur gulleitt haf. Í bakgrunni má sjá Drangey og Málmey. Myndin gæti verið frá 1955-1965.
Landslagsmynd - óvíst hvaðan - mögulega í Skagafirði með Blönduhlíðarfjöllin í bakgrunni. Í forgrunni er jarðlita og svört jörð. Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Myndefnið er tveir hestar í forgrunni - einn rauður og annar grár. Lítið hús má sjá handan við á og fjöll í bakgrunni. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1960-1970.
Landslagsmynd þar sem vegur liggur í gegnum gulleitann haga og fjall er í bakgrunni. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1965-1975. Mynd vantar í safn.
Landslagsmynd þar sem vegur hlykkjast í gegnum jarðlita forgrunn en dökkleit fjöll sjást í bakgrunni. Staðsetning óknunn. Myndin gæti verið frá 1970-1980.
Kyrralífsmynd. Flaska og tvær perur standa á borði - stóll sést í bakgrunni. Þar sem smá sót er á myndinni er líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin gæti verið frá tímabilinu 1953-1963.
Landslagsmynd líklegast úr Skagafirði - þar sem horft er yfir hólmann á Blönduhlíðarfjöllin. Tveir hestar eru í forgrunni. Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Nóttin fyrir Haugsnesfund. Hluti af myndaseríu: Sturlungaöld. 11 myndir. "...Kolbeinn [ungi] lést af brjóstmeini því er hann hafði lengi átt við að stríða, í júlí 1245. Við völdum hans í Skagafirði tók Brandur Kolbeinsson frændi han á Stað í Reyninesi. Áður en Kolbeinn dó hafði hann ákveðið að afhenda Þórði kakala Norðausturland, til að tryggja friðinn. Það var föðurarfur Þórðar sem Kolbeinn hafði náð undir sig með Örlygsstaðabardaga. Þórður fór einnig með völd vestan lands, og var nú komin upp svipuð staða og fyrir bardagann. Sturlungar réðu Norðausturlandi og Vesturlandi ,en Ásbirningar Skagafirði og höfðu stuðning Haukdæla. Fylgismenn Kolbeins ólu á óvild milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar og misklíð milli héraðanna stigmagnaðist. Um páska 1246 leitaði Brandur stuðnings hjá Gissuri Þorvaldssyni vini Kolbeins og bandamanni. Þórður kakali frétti það og var snar í snúningum og safnaði liði af öllu yfirráðasvæði sínu, bæði norðan og vestan. Hann tjáði mönnun sínum á fundi á Grund í Eyjafirði að nú hyggðist hann ráðast inn í Skagafjörð og láta vopnin tala. Þriðjudaginn eftir páksaviku hélt hann af stað vestur Öxnadalsheiði með 600 manna lið. Héldu þeir til Silfrastaða um kvöldið og lágu þar úti um nóttina. það hvessti, og söng vindur í spjótum, sem stungið hafði verið niður úti við. Vöknuðu menn við þetta og héldu að ráðist hefði verið á þá. Í glímuskjálfta og óðagoti var gripið til vopna og börðust menn í ákafa hver við annan um hríð. Einn maður féll og nokkrir særðust áður en menn áttuðu sig á hvers kyns var. Sýnir þessi atburur vel hversu ógnir ófriðarins voru farnar að sauma að taugum liðsmanna Þórðar. Menn voru komnir í óvinaland. Margir höfðu barist á Örlygsstöðum og vor uminnugir þeirra atburða þar sem þeir biðu lægri hlut. Svo átti ekki að fara í þetta sinn. Brandur Kolbeinsson var viðbúinn og hafði safnað liði um Skagafjörð og Húnaþing. Hann var með 720 manna lið á Víðimýri. Reynt var að semja, en kakalinn hafnaði öllum tillögum og vildi ráða öllum samningum sjálfur. Nóttina fyrir bardagann gisti Þórður á Úlfsstöðum í Blönduhlíð. Lið Brands var á Víðimýri illa fyrir kallað og taugaveiklað. Sagt var að undarleg sótt hefði komið í lið hans og féllu um þrjátíu manns í öngvit og urðu ófærir til bardaga. Bardagamorguninn hélt hann yfir Jökulsá og bjóst til bardaga." " (Á Sturlungaslóð í Skagafirði, Sauðárkróki, 2003. Bls. 33).