Showing 2756 results

Archival descriptions
Kristján C. Magnússon: Ljósmyndasafn
Print preview Hierarchy View:

2755 results with digital objects Show results with digital objects

KCM453

Læknishúsið og garðurinn Suðurgötu 1 á Sauðárkróki (um eða fyrir 1950). Húsið var síðan flutt út í Skógargötu.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM447

Sauðárkrókur. Sundlaugin nýbyggð á miðri mynd, en hún var tekin í notkun 1957.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM443

Fjárhús (sýslumannshús) á Sauðárkróki. Sýsluhesthúsið t.h. við miðja mynd. Þessi hús stóðu sunnan og vestan við Safnahúsið.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM438

Læknishúsið við Suðurgötu 1 á Sauðárkróki og Læknisgarðurinn. Rússland við Kirkjutorg fjær.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM437

Læknishúsið við Suðurgötu 1 á Sauðárkróki og Læknisgarðurinn. Suðurgata 2 fjær t.v. (ca. um eða fyrir 1950).

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM433

Víðigrund 5 Sauðárkróki. Íbúð og skrifstofur Sýslumanns Skagfirðinga. Síðar hús Oddfellowreglunar og skrifstofuhúsnæði Ungmennasambands Skagafjarðar.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM432

Guðmundur Sigurðsson f. 1902 (Mundi Gulla) og Hermundur Ármannsson f. 1950 fóstursonur hans fyrir utan Vörubílastöðina á Sauðárkróki - sem jafnframt var bensínstöð Esso . Vörubílastöðin var þar sem síðar reis hús Búnaðarbankans.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM430

Suðurgata 7. Bókhlaðan á Sauðárkróki. Var síðar Lögreglustöð og loks íbúðarhús.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM429

Suðurgata 3 - Sauðárkróki. Þar bjó Sýslumaður - Samvinnubankinn hafði starfsemi þar og loks voru þar skrifstofur auk þess sem Framsóknarflokkurinn hafði aðstöðu á efri hæð.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM428

Suðurgata 1 Sauðárkróki. Gamla Læknishúsið. Eigandi á þessum tíma: Steingrímur Arason og var þar rekin húsgagnaverslun á neðri hæð (um 1960).

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM426

Aðalgata 15. Söðlahús - Ólafshús - byggt 1897. Þar var íbúðarhús - fyrsta apotekið á Sauðárkróki - Sparisjóður Sauðárkróks - Búnaðarbankinn á Sauðárkróki - Frímúrarahús og loks veitingahús.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM405

Suðurgata 9 - Sauðárkróki. Brekkur. Hús Péturs Jónassonar. Pétur Jónasson stendur fyrir framan húsið. Hann var umboðsmaður happrdættis Háskóla Íslands. Sjá skilti við húsið.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM40

Malbikun á Sauðárkróki 1962. Skagfirðingabraut norðan Bifrastar. Við bílinn að mynda gæti verið Adolf Björnsson og lengst t.v. Þorvaldur Erlendsson.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM4

Flutningur á Aðalgötu 25 (Gamla bakaríinu) niður á Sæmundargötu á Sauðárkróki (ca. 1950-1960).
.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM397

Suðurgata 26 - Sauðárkróki. Nýibær. Íbúðarhús og fjárhús Jóns Jónssonar. Þessi hús voru rifin vegna byggingar Safnahússins á Sauðárkróki - en þau stóðu þó nær Nöfunum.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM394

Hólavegur 21. Hús Ingólfs Guðmundssonar og Fjólu Þorleifsdóttur. Fjóla er á stéttinni framan við húsið.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM392

Skagfirðingabraut 13 Sauðárkróki. Rögnvaldur Ólafsson rakari var með rakarastofu á neðri hæðinni t.v. er Reykholt (næsta hús sunnan við) byggt 1926-1928.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM39

Malbikun á Sauðárkróki árið 1962. Suðurgata 1 (Læknishúsið) t.v. Jón Nikodemusson stendur í stiganum, aðrir óþekktir.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM388

Suðurgata 26 Sauðárkróki. Nýibær. Húsið var rifið þegar Safnahúsið á Sauðárkróki var reist (ca. um 1960).

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM387

Aðalgata 7 - Sauðárkróki. Mælifell. Í upphafi nefnt Alþýðuhúsið. Magnús Bjarnason kennari lengst t.v. (ca. 1960-1970).

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM384

Aðalgata 12 - Knudsenshús - síðar Filadelfia - hús Hvítasunnusafnaðarins á Sauðárkróki. Þar var einnig gistihús og matsala. Húsið var einnig nefnd Ásgarður.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM383

Verslun (Skúr) Ísleifs Gíslasonar á Sauðárkróki, síðar Fornbókasla Ingólfs Agnarssonar (ca. 1960-1970).

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM382

Aðalgata 16 - Sauðárkróki. Sýslumannshús. Byggingavörudeild Kaupfélags Skagfirðinga var staðsett í húsinu. Vegginn máluðu Haukur Stefánsson og Jónas Þór Pálsson (ca. 1960-1970).

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM381

Aðalgata 7 - Sauðárkróki. Mælifell. Í upphafi nefnt Alþýðuhúsið. Magnús Bjarnason kennari lengst t.v. (ca. 1960-1970).

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM380

Aðalgata 7 - Sauðárkróki. Mælifell. Í upphafi nefnt Alþýðuhúsið. F.v. Jón Þorsteinsson alþingismaður og Erlendur Hansen. Þriðji óþekktur.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM38

Malbikun á Sauðárkróki 1962. Guðni Friðriksson stendur og horfir á framkvæmdirnar. Suðurgata 1 (Læknishúsið) á miðri mynd.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM378

Aðalgata 6. Ísleifshús byggt 1904. Verslun Þorvaldar Þorvaldssonar, Vísir (ca. 1960-1970).

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM377

Aðalgata 4 - Sauðárkróki. Verslunin Drangey. T.h. er auglýsingatafla þar sem hengdar voru upp almennar auglýsingar fyrir bæjarbúa.
(ca. 1960-1970).

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

Results 596 to 680 of 2756