Lagning hitveitu við Skagfirðingabraut. Undirbúningur undir malbikun Skagfirðingabrautar árið 1962. Gunnar Helgason verkstjóri í skurðinum nær og Þorvaldur Erlendsson fjær. Aðrir óþekktir.
Malbikun á Skagfirðingabraut á Sauðárkróki 1962-1964. Mennirnir tveir sem ber í vörubílinn eru hugsanlega Rögnvaldur Finnbogason bæjarstjóri t.v. (var bæjarstjóri 1958-1966) og Adolf Björnsson rafveitustjóri t.h.
Skagfirðingabraut. Mynd tekin frá norðri til suðurs. Í forgrunni er brúin yfir Sauðá. Tilefni göngunnar ekki vitað. Myndin gæti verið tekin um eða fyrir 1950.
Guðrún Gísladóttir (1918-1988) líklega með Jakobínu dóttur sína. Í baksýn eru húsið Blómsturvellir á Sauðárkróki og sér niður á Skagfirðingabraut. Sauðáin rennur bak á við Guðrúnu.
Lagning hitaveitu og undirbúið fyrir malbikun á Skagfirðingabraut á Sauðárkróki um 1962. Þorvaldur Erlendsson frá Tungunesi við loftpressuna. Sjá mynd 476.
Mynd tekin vestan við Sundlaug Sauðárkróks, en þar voru Óskar Þorleifsson og Kristjana Júlíusdóttir með hænsnabú. Húsin t.h. eru við Bárustíginn (ca. 1960-1970).