Tekið á móti norrænum konum að Löngumýri sumarið 1951. Frá vinstri: Karlotta á Hólum, Minna Bang, Sauðárkróki, Sigrún Pálmadóttir, Reynistað, Ingibjörg Jóhannsdóttir á Löngumýri, Amalía á Víðimel, Ingibjörg á Úlfsstöðum, Helga á Víðivöllum, Ólöf í Krossanesi, Björg á Löngumýri og Lilja Sigurðardóttir, Víðivöllum.
Konur í Viðvíkursveit. Frá vinstri: Alda á Lóni, Dísa á Vatnsleysu, Anna á Laufhóli, Oddný á Narfastöðum, Elinborg Bessadóttir (1947-), Hofstaðaseli, Elísabet Friðriksdóttir í Viðvík og Helga á Hofdölum. Myndin er tekin á Löngumýri.