Ljósmynd í stærðinni 8,5x5,9. Á myndinni eru Steinunn Eiríksdóttir (t.v.) og Auður Guðjónsdóttir (t.h.) ásamt tveimur af sjö börnum Auðar. Aftan á myndina er handskrifað: "Auður Guðjónsdóttir og Steinunn Eiríksdóttir Akureyri með börn Auðar. Glerárg 2 Ak."
Ljósmynd í stærðinni 8,5x5,9 cm. Á myndinni eru Valborg Hjálmarsdóttir á Tunguhálsi og börn. Auður, Garðar, Guðsteinn og Hjálmar (Valborg heldur á honum).
Ljósmynd í stærðinni 8,8x12,5 cm. Á myndinni sést Pálmi Jónsson á Akri, þáverandi landbúnaðarráðherra, taka fyrstu skóflustunguna að laxeldisstöð á Hólum í Hjaltadal á ýtu Garðars Guðjónssonar.
Sporöskjulaga ljósmynd á 8,8x13,7 cm bréfspjaldi (póstkorti). Á myndinni eru tvær ungar konur í peysufötum. T.h. er Valborg Hjálmarsdóttir á Tunguhálsi.
Á myndinni eru Hrefna Magnúsdóttir á Mælifellsá (t.v.), í upphlut, og Valborg Hjálmarsdóttir (t.h) á Tunguhálsi (í peysufötum). Nöfn þeirra eru handskrifuð aftan á myndirna.
Vélritað hefti með 8 blaðsíðum og kápu. Vélritað. Inniheldur bændavísur eftir Gunnþórunni Sveinsdóttur frá Mælifellsá. Ortar um bændur í Laxárdal og á Skaga.
Vélritað hefti með 17 blaðsíðum og kápu. Vélritað. Inniheldur bændavísur eftir Gunnþórunni Sveinsdóttur frá Mælifellsá. Ortar um bændur í framsveitum Skagafjarðar.
Ljósmynd í stærðinni 8,2x5,6 cm. Á myndinni eru Valgeir Guðjónsson foreldrar hans hjónin Guðjón Jónsson og Valborg Hjálmarsdóttir á Tunguhálsi. Bifreiðin er K-112.