- IS HSk N00016-A-B-Mic249
- Item
- 1935-1945
Hafnargarður
Hafnargarður
Hallfríður og Ragna
Hallfríður Eybjörg Rútsdóttir.
Hermaður sem dvaldi á Sauðárkróki á hernámsárunum.
Hermenn á Sauðárkróki, óvíst með nöfn en einn heitir Charles
Grá meri sem var í eigu Kristinn Michelsens
Hjörtur Laxdal og Sigvaldi Jónsson
Hjörtur Laxdal og Sigvaldi "Silli" Jónsson
Höfði. Gamla símstöðin á Sauðárkróki. Símstöðin var opnuð hinn 1. október 1906 og strfrækt þar til ársins 1954. Við símstöðina var hið fræga kjafrahorn, þar sem íbúar bæjarins hittust til skrafs og ráðagerða, enda stutt að sækja fréttir úr hinum stóra heimi.
Nýji hafnargarðurinn, sjá má bragga sem bresku hermenninirnir höfðu byggt.
Hópferðabíll Haraldar Júlíussonar K 29 18 farþega. Chervolet árgerð 1938.
Horft yfir Sauðárkrók til suðurs.
Séð yfir Aðalgötuna frá norðri til suðurs. Prúðbúið fólk við "Miklabæ" Aðalgötu 9. Hugsanlega húskveðja Péturs Sighvatz árið 1938. Lágreista húsið er hús Ögmundar Magnússonar söðlasmiðs, þar reis síðar Alþýðuhúsið og nú er þar skemmtistaðurin Mælifell.
Snjór í bakgarði tilgáta að ein af dætrum Frank Michelsens sé í garðinum.
Ole Bang og Minna að spila borðtennis í bakgarði Apóteksins á Sauðárkróki. Skjaldborg er heiti hússins Aðalgata 19.
Hús í byggingu tilgáta Safnahúsið.
Aage Michelsen og Anna Lísa Michelsen í kartöflugarði. Matjurtagarðar voru gríðarmikilir á Sauðárkróki. Árið 1940 var uppskera Sauðkrækinga af kartöflum 335 tunnur samkvæmt hagskýrslum.
Mynd tekin í bakgarði Aðalgötu 16. Kristinn og Aage Michelsen.
Anna Benediksdóttir og Pála Michelsen.
Systkini við leik í snjónum. Aage á hestbaki, Kristinn situr á sleðanum en Pála Michelsen ýtir á eftir.
Þrír drengir í leik í snjó, tilgáta Aage, Kristinn og óvíst.
Drengur liggur í tjaldi á Sauðárkróki.
Jón Þorbjargarson Björnsson frá Veðramóti, skólastjóri barnaskólans á Sauðárkróki.
Jórunn að gefa hænunum. Magnús Jónsson og Kristinn Michelsen í dyragættinni. Hænsnarækt var mikilvæg búbót fyrir marga Króksara. Árið 1940 voru ríflega 450 hænur á Sauðárkróki en íbúar ríflega 900.
Maður við bíl K20
Michelsens fjölskyldan var með kanínur sem var afar fátítt á Sauðárkróki, ef ekki einsdæmi. Ekker laust við að kanínubúskapur hafi farið nokkuð fyrir brjóstið á Sauðkrækingum sem áttu fremur að venjast áti á sauðkindum ekki ekki þessum vinalegu dýrum. Á myndinni eru Aðalsteinn, Aage og Pála Elínborg.
Karen Michelsen í síldarvinnu.
Karen og Aage Michelsensbörn
Karen Michelsen og Aage Michelsen.
Kind með 2 lömb tilgáta að þetta sé tekið bak við heimili Michelsens.
Bræðurnir Kristinn og Aage á fermingadag Kristins árið 1940.
Kristján Blöndal og Árni Blöndal
Kristján Blöndal og Árni Blöndal
Kýrin Hyrna sem var ein af kúm Michelsens. Kúaeign var almenn á Sauðárkróki fram til ársins 1960. Þegar mest var, voru um 130 kýr á Sauðárkróki. Kýrnar voru reknar í beitihaga eftir mjaltir á sumrin og sóttar í kvöldmjaltir. Höfðu sérstakir kúarektorar það starf að reka kýrnar og sinna þeim yfir daginn.
Landbrot við verslunarhúsin, sem voru staðsett nærri Villa Nova. Landbrot var verulegt vandamál á Sauðárkróki og gerðar margar tilraunir tila ð hefta það. Með tilkomu hafnar út á Eyrinni minnkaði þetta vandamál, en síðar var lagður grjótgarður fyrir framan húsin til að koma í veg fyrir að þau sópuðust á haf út. Brún við gömlu bryggju.
Útför, mynd tekin að líkfylgd.
Lýðveldishátíð 1944 á Sauðárkróki
Þessi mynd er án vafa tekin á Lýðveldishátíðinni 1944, þegar Íslendingar fögnuðu sjálfstæði. Þá var haldin mikil hátíð og bærinn skreyttur.
Maður stendur út í glugga með málingarpensil.
Fimleikadrengir að marsera.
Tvö ungmenni
Óþekktur maður
Þrír menn standa við hús á Sauðárkróki. Frá vinstri Kristján Jónsson "Kiddi bif", Sigurður Þorsteinsson og þriðji maður óþekktur.
Paul og Aðalsteinn Michelsen
María Pálsdóttir, Beta og Steindór Jónsson
Frá vinstri María Pálsdóttir, Rósa Pálsdóttir með fósturdóttur sína Jórunni.
Matta (hjá Steindóri) og Beta Steindórs.
Þorbjörg Daníelsdóttir "Lilla á Símstöðinni" og Karen Edith Michelsen "Dúdda" með barnavagn. Barnið er óþekkt.
Blíðfari SK59 strandaður í Sauðárkróksfjöru.
Hátíðarhöld á Sauðárkróki
Mynd af Frank og Jytte.
Frank með börn. Anna Lísa Michelsen er við fætur afa sins, tilgáta um Svövu Svarvars við hlið Önnu.
Tvær af dæturum Michelsens.
Hús Michelsens hjóna séð að baka til.
Flutningur á mó úr gröfuminni á Krók var erfið vinna. Matthildur Kristinsdóttir fósturdóttir Steindórs Jónssonar og Karen Edith standa í móflutningum.
Móvinnsla á Sauðárkróki. Í síðari heimstyrjöld var mikill eldsneytisskortur á Sauðárkróki sem annars staðar á Íslandi. Kolin sem áður höfðu gengt hlutverki eldsneytis voru nú í ófáanleg og brugðu Króksarar á það ráð að tak mó, eins og tíðkaðist hafði um aldir. Mógrafirnar voru vorðan við Gönguskarðsá, en mótekja var erfið vinna, enda mó kögglarnir þungir og blautir. Mórinn var síðan þurkkaður og var sæmilegt eldsneyti. Á myndinni eru þeir Gísli Jakopsson og Magnús Ásgrímsson. Mótekja var afar mikilvæg fyrir og um stríðsárin. Oft var bæði dýrt og erfitt að fá kol til kyndingar og dugði þá mórinn ágætlega í staðinn. Mótekja var hins vegar erfið vinna og óþrifaleg. Stærstu mógrafirnar voru utan Gönguskarðsár. Mórinn var síðan þurrkaður og þótti sæmilegt eldsneyti.
Ungur maður
Óþekkt barn og drengur.
Nautgripaslátrun, Gísli í keldudal fláir en sá sem heldur á brýninu er óþekktur.
Ólafshús Aðalgata 15
Ole Bang í bakgarði á Apótekinu, Aðalgötu.
Óþekkt barn á Sauðárkróki.
Ottó Michelsen
Pála Michelsen
Pála Michelsen
Pála Michalsen með barn
Pála (var vinnukona hjá Steindóri) heldur á Elísabet Beck Svavarsdóttur (1941-).
Pála, Aage og Sigfús með kött.
Pála Elínborg, Aage með kött og Sigfús Jónsson.
Mynd af Páll Michelsen
Paul Michelsen
Refakirkjan þar sem Kristinn Briem var með minka og refi.
Samkoma undir Nöfunum.
Sauðárkrókskirkja.
Séð til suðurs yfir Sauðárkrók
Sauðárkrókur, Bærinn undir Nöfunum.
Horft frá Nöfum út Skagafjörð.
Sauðárkrókur, Bærinn undir Nöfunum.
Sauðárkrókur mynd tekin í suður.
Horft suður eftir Sauðárkróki.
Horft yfir Sauðárkrók, bátur við gömlu bryggjuna, sem var utan við hús Verslunar Haraldar Júlíussonar.
Séð yfir Sauðárkrók
Talsvert af síld var saltað á Sauðárkróki. A.m.k. 60 konur vorum um tíma skráðtar til vinnu við söltunina. Söltun Sauðkrækinga var þó aðeins brot af því sem var víða annars staðar fyrir Norðurlandi. Myndin gæti verið tekin árið 1942. Járnbrautarteinarnir sjást vel á myndinni. Við myndina stendur: Hulda Bubba, Bibba Þorvaldar, Ólafía Pétursdóttir, Ingibjörg Konráðsdóttir, Lína "Ingveldastaða", Jón Sig Ketu og Pála Sveinsdóttir
Síldarsöltun á Sauðárkróki. Síldarsöltunin var fátækum heimilum á Sauðárkróki veruleg búbót.
Talsvert af síld var saltað á Sauðárkróki. A.m.k. 60 konur voru um tíma skráðar til vinnu við söltunina. Söltun Sauðárkrækinga var þó aðeins brot af því sem var víða annar staðar fyrir Norðurlandi. Myndin gæti verið tekin árið 1942. Sjá má járnbrautateina er lágu frá bryggjunni uppá plönin, þar sem síldin var verkuð og fiskur vaskaður.
Síldarsöltun á Sauðárkróki.
Hjörtur Laxdal liggur við tjald. Bíllinn á myndinni sjúkrabíll K-32