Fundargerð frá fundi sem Framsóknarfélag Skagfirðinga stóð fyrir í Húnaveri í ágúst 1959, til fundarins höfðu verið boðaðar stjórnir Framsóknarfélaganna í V-Húnavatnssýslu, Au-Húnavatnssýslu, Skagafjarðarsýslu, Sauðárkrókskaupstaðar og Siglufjarðarkaupstaðar.
Endurrit úr fundargerðarbók Fræðsluráðs Sauðárkrókskaupstaðar í júlí 1965. Undir fundargerðina rita Þórir Stephensen, Guttormur Óskarsson, Magnús Bjarnason, Björn Daníelsson og Jóhann Guðjónsson.
Endurrit úr fundargerð Fræðsluráðs Sauðárkrókskaupstaðar í október 1962. Undir fundargerðina rita Þórir Stephensen, Guttormur Óskarsson, Magnús Bjarnason, Stefán Vagnsson og Stefán Ólafur Stefánsson.
Fundargerð Félagsmálaráðs í júlí 1979. Undir fundargerðina rita Friðrik J. Friðriksson, Hulda Jónsdóttir, Helga Hannesdóttir, Sæmundur Hermannsson, Sigurlína Árnadóttir og Guðmundur Gunn.
Fundargerð Félagsmálaráðs Sauðárkróks í nóvember 1980. Með fylgir gjaldskrá sundlaugar Sauðárkróks. Undir fundargerðina rita Friðrik J. Friðriksson, Guðjón Ingimundarson, Sigurlína Árnadóttir, Stefán Pedersen, Helga Sigurbjörnsdóttir, Hulda Jónsdóttir, Friðrik Brekkan og Helga Hannesdóttir.
Fundargerð Félagsmálaráðs Sauðárkróks í mars 1980, undir fundargerðina rita Friðrik J. Friðriksson, Hulda Jónsdóttir, Helga Hannesdóttir, Sæmundur Hermannsson, Sigurlína Árnadóttir og Friðrik Brekkan.
Fundargerð Félagsmálaráðs Sauðárkróks í júní 1980. Undir fundargerðina rita Friðrik J. Friðriksson, Stefán Pedersen, Sigurlína Árnadóttir, Hulda Jónsdóttir, Friðrik Brekkan og Helga Hannesdóttir.
Fundargerð byggingarnefndar 1963. Undir hana rita; Guðjón Sigurðsson, Rögnvaldur Finnbogason, Magnús Sigurðsson, Vilhjálmur Hallgrímsson og Stefán Guðmundsson.
Fundargerð frá námsstjórafundi með barnakennurum úr Húnavatnssýslum, Skagafjarðarsýslu, Sauðárkróki og Siglufirði, fundurinn var haldinn á Sauðárkróki 1962.
3 fréttir frá Sauðárkróki 1963 sendar Degi á Akureyri. Fjallað um er erindi Adolfs Björnssonar rafveitustjóra um rafveitur í Skagafirði og áætlanir um að virkja Reykjafoss í Tungusveit. Jafnframt er fjallað um frumsýningu Leikfélags Sauðárkróks á Fjalla-Eyvindi. Verkamannafélagið Fram minntist 60 ára starfsafmælis. Mikið atvinnuleysi hafði verið á Sauðárkróki þennan veturinn og afli lítill. Danskennsla var á vegum Æskulýðsráðs Sauðárkróks og var það Rigmor Hanson sem kenndi.
Frétt send Degi á Akureyri í október 1958 þar sem fjallað er m.a. um að svo mikill fiskafli hafi borist undanfarið að starfsmenn fiskvinnslunnar hafi ekki annað framboðinu og því hafi unglingar og börn á barnaskólaaldri verið fengin til að starfa við fiskvinnslu. Í kjölfarið var setningu skólans frestað um nokkra daga. Jafnframt er fjallað um 50 ára afmæli barnaskólans en upphaflega barnaskólahúsið var byggt 1908. Veturinn 1958 voru 150 nemendur í skólanum og skólastjóri var Björn Daníelsson. 60 nemendur voru í gagnfræðiskólanum og skólastjóri var Friðrik Margeirsson.
Fréttir frá Sauðárkróki í desember 1954. Þar kemur meðal annars fram að á þessum tíma hafi margir bæjarbúar átt fé og telur Guðjón að um 1770 fjár sé í bænum, 50 naugripir og 55 hross.
Fréttir sendar Einherja í mars 1964. Í fyrri fréttinni er fjallað um 30 ára afmæli hestamannafélagsins Léttfeta og fjallað stuttlega um starfsemi Léttfeta í gegnum árin. Steingrímur Arason var gerður að heiðursfélaga. Á Sauðárkróki hefur verið rekin tamningastöð í nokur ár þar sem eru að jafnaði 30 hross. Aðal tamningamenn eru Jón Baldvinsson í Dæli og Stefán Helgason á Sauðárkróki. Formaður Léttfeta er Friðrik Margeirsson skólastjóri á Sauðárkróki. Í seinni fréttinni er fjallað um slæmt atvinnuástand á svæðinu og því hafi margir farið suður til að afla sér vinnu
4 fréttabréf frá 1955 sem sennilega hafa verið send Degi á Akureyri en það er þó ekki fullvíst. Fjallað er um flugvöllinn á Sauðárkróki og tekið er fram að árið 1954 hafi lendingar á vellinum verið 254 og farþegar 940. Greint er frá skólaslitum Iðnskólans á Sauðárkróki og kemur þar fram að hæstu einkunn í burtfararprófi hlaut Auðunn Blöndal nemi í flugvélavirkjun eða 8,93 og í 1. bekk hlaut hæstu einkunn Friðrik Jónsson (Fíi) húsasmíðanemi eða 8,33. Einnig er fjallað um nýtt fiskvinnslu og hraðfrystihús á Sauðárkróki.
Fréttabréf frá 1958 sem sennilega hefur verið send til blaðsins Dags á Akureyri. Sagt er frá 65 ára afmæli Guðmundar Sveinssonar og kveðjuhófi sem haldið var fyrir Björgvin Bjarnason sem lét þetta ár af bæjarstjórastörfum. Eins er sagt frá því að Haraldur Pálsson skíðamaður frá Reykjavík hafi verið á Sauðárkróki við skíðakennslu og sagt er frá skíðamóti sem fram fór í Skógarhlíð.
Grein send til Einherja í október 1965 þar sem Guðjón segir frá skólastarfi á Sauðárkróki þetta haustið. Í Barnaskóla Sauðárkróks eru 182 nemendur þetta árið og er skólastjóri Björn Daníelsson. Í Gagnfræðiskólanum eru 90 nemendur og skólastjóri er Friðrik Margeirsson. Jafnframt er fjallað um fyrirhugaða byggingu nýs gagnfræðiskólahúss. Í Tónlistarskólanum eru 40 nemendur og er þar skólastjóri Eyþór Stefánsson tónskáld og aðalkennari Eva Snæbjörnsdóttir. Jón Björnsson frá Hafsteinsstöðum er söngstjóri við skólann. Í Iðnskóla Sauðárkróks eru 30-40 nemendur og er skólastjóri þar Jóhann Guðjónsson múrarameistari.
Frétt um Safnaðarheimili á Sauðárkróki send degi á Akureyri 1965. Greint er frá kaupum Sauðárkrókssafnaðar á gamla sjúkrahúsinu undir félagsstarf og námskeiðahald fyrir unga jafnt sem aldna.
Fréttir frá Sauðárkróki sendar Degi á Akureyri í ágúst 1961 þar sem m.a. er fjallað um hóf sem haldið var til heiðurs Steingrími Steinþórssyni búnaðarmálastjóra og Theódóru Sigurðardóttur konu hans. Veislustjóri var Guttormur Óskarsson gjaldkeri.
Frétt frá Sauðárkróki send Degi á Akureyri í janúar 1956 þar sem meðal annars er fjallað um að Sauðárkrókskirkju hafi borist skírnarfontur að gjöf frá Pétri Hannessyni og Sigríði Sigtryggsdóttur. Reynir Ragnarsson húsgagnasmíðameistari á Sauðárkróki smíðaði fontinn. Á Þorláksmessu 1955 var jafnframt samþykkt að K.S. myndi ganga til samstarfs við Sauðárkróksbæ um stofnun hlutafélags sem annast muni fiskmóttöku. Mest er þó skrifað um kveðjuhóf sem haldið var til heiðurs Torfa Bjarnasyni héraðslækni og konu hans Sigríði Auðuns.
Frétt send Degi á Akureyri á Öskudag 1955 þar sem fjallað er um sýningu Leikfélags Sauðárkróks á leikritinu Orðið eftir Kaj Munk, leikstjóri var Eyþór Stefánsson.
Frétt send Einherja í apríl 1963 þar sem fram kemur að Páll Þorgrímsson frv. skólavörður hafi orðið sjötugur og er þar farið fögrum orðum um Pál og eiginkonu hans Pálínu Bergsdóttur.
Fundargerð framkvæmdarstjórnar Reykjafossvirkjunar. Undir hana rita; Kári Jónsson, Jóhann Salberg Guðmundsson, Jón Sigurðsson, Gísli Magnússon og Adolf Björnsson.
Ljóðið Félagshvöt er 7 erindi og hefur sennilega verið ort í tilefni skemmtunnar hjá Framsóknarmönnum. Ljóðið birtist í bókinni Aringlæður sem kom út árið 1963.
3 erindi sem Guðjón Ingimundarson sendir mismunandi aðilum þar sem hann skýrir frá fyrirætlunum sínum um að taka saman fróðleik um sundkennslu í Skagafirði og óskar eftir heimildum um efnið.