Greinargerð vegna bæjarreikninga 1961 eftir að grunur kom upp um að ýmsir liðir af reikningum bæjarins væru ekki rétt færðir. Undir greinargerðina rita Marteinn Friðriksson og Magnús Bjarnason.
Fyrirspurnir Magnúsar Bjarnasonar á bæjarstjórnarfundi í janúar 1964 þar sem hann spyr m.a. út í ábyrgðir Sauðárkrókskaupstaðar og hversu mikið bæjarsjóður hafi greitt til Fiskivers hf.
Ódagsettar tillögur sem komu úr fórum Guðjóns, önnur þeirra fjallar um athugun á byggingu verbúða á Sauðárkróki á vegum "Hafnarsjóðs Sauðárkróks" og hin er tillaga Magnúsar Bjarnasonar við samþykkt hitaveitusamninganna.
Endurrit úr fundargerð Fræðsluráðs Sauðárkrókskaupstaðar í október 1962. Undir fundargerðina rita Þórir Stephensen, Guttormur Óskarsson, Magnús Bjarnason, Stefán Vagnsson og Stefán Ólafur Stefánsson.
Endurrit úr fundargerðarbók Fræðsluráðs Sauðárkrókskaupstaðar í júlí 1965. Undir fundargerðina rita Þórir Stephensen, Guttormur Óskarsson, Magnús Bjarnason, Björn Daníelsson og Jóhann Guðjónsson.
Greinargerðin er nokkuð ítarleg og þar er eftirfarandi tekið til umfjöllunar: staðbundið atvinnuleysi, atvinnutæki og iðnað, fiskibáta, landbúnað, hafnarmál og fleira. Undir greinagerðina rita Guðjón Sigurðsson og Magnús Bjarnason.
Kennarar ásamt húsverði við barna- og miðskóla Sauðárkróks. Efri röð f.v. Guðjón Ingimundarson - Páll Þorgrímsson (húsvörður) -Gísli Felixson og Magnús Bjarnason. Neðri röð f.v. Friðrik Margeirsson - sr. Helgi Konráðsson - Björn Daníelsson og Árni Þorbjörnsson.