Yfirlýsing frá bæjarfulltrúum Alþýðuflokksins og Framsóknarflokksins v. ákvörðunar Alþýðubandalagsins að rifta samstarfi um meirihluta í bæjarstjórn Sauðárkróks 1968. Undir yfirlýsinguna rita Guðjón Ingimundarson, Marteinn Friðriksson, Stefán Guðmundsson og Erlendur Hansen.
Tillaga vegna flugvallar á Sauðárkróki, flutt á bæjarstjórnarfundi 1966, undirrituð af Guðjóni Ingimundarsyni, Stefáni Guðmundssyni og Marteini Friðrikssyni.
Greinargerð vegna bæjarreikninga 1961 eftir að grunur kom upp um að ýmsir liðir af reikningum bæjarins væru ekki rétt færðir. Undir greinargerðina rita Marteinn Friðriksson og Magnús Bjarnason.
Grein send Einherja 1969 eftir Martein Friðriksson sem sat þá í meirihluta bæjarstjórnar á Sauðárkróki fyrir Framsóknarflokkinn. Greinin ber yfirskriftina "Norðanfara svarað" og er svar við grein Sjálfstæðismanna á Sauðárkróki sem þá voru í minnihluta. Marteinn kemur víða við í grein sinni og fer meðal annars yfir Fjárhagsáætlun 1968 og rekstrarniðurstöðu þess árs.
Frá vinstri Birgir Guðjónsson (1948-) með Fiskiðjubikarinn árið 1965. Bikarinn hlaut hann fyrir flest stig á Norðurlandsmóti í sundi. Til hægri Sigurður Marteinn Friðriksson (1924-2011)