Birgir Guðjónsson (1948-) veitir verðlaun á Gestasundmóti Borgarfjarðar árið 1983 - við viðurkenningu tekur systir hans Ingibjörg Ólöf Guðjónsdóttir (1960-) - til vinstri er Þorgerður Sævarsdóttir (1966-) - en lengst til hægri óþekkt.
Í fyrsta sæti er Birgir Guðjónsson (1948-) og sá sem stendur og talar í hljóðnema er Guðjón Ingimundarson (1915-2004) Tilg. Í öðru sæti Einar Gíslason og þriðja sæti Steinn Kárason (sitjandi Erling Örn Pétursson).
Verðlaunaafhending. Sund- og frjálsíþróttafólk UMSS. Sitjandi f.v. Gestur Þorsteinsson - Álfur Ketilssopn - Stefán Pedersen - Stefán Guðmundsson - Helgi Rafn Traustason og Birgir Guðjónsson. Stúlkur f.v. Guðrún Pálsdóttir og Sigurlína Hilmarsdóttir - óþekktt - Edda Lúðvíksdóttir - María Jónsdóttir - Sigurlaug Jónsdóttir - Unnur Guðný Björnsdóttir og Jóhanna Björnsdóttir. Drengir í þriðju röð. F. v. 2 fyrstu óþekktir þá Ólafur Helgi Jóhannsson - Guðmundur Guðmundsson og Ólafur Ingimarsson. Aftast f.v. Birgir Friðriksson - Steinn Kárason og Sigurður Ingimarsson.
Landsmót á Laugarvatni. Verðlaun f. 200 m. bringusund. F.v.: Einar Sigfússon HSK, Birgir Guðjónsson UMSS, Þór Magnússon UMFK, Sigurður Einarsson UMFK, Sveinn B. Ingason UMSS og Ingimundur Ingimundarson HSS.