Handhafar Grettisbikarsins fram til 1982 ásamt Guðjóni Ingimundarsyni. Aftari Röð: Þorbergur Jósefsson - Birgir Guðjónsson - Hans Birgir Friðriksson - Indriði Jósafatsson - Jón S. Helgason - Hannes Valbergsson - Stefán B. Pedersen. Sitjandi Eiríkur Valdimarsson - Gísli Felixson - Kári Steinsson og Guðjón Ingimundarson. Á myndina vantar þá Svein B. Ingason og Harald Kristjánsson.
Ávarp flutt við óþekkt tilefni, sennilega við endurbætur á sundlauginni í Varmahlíð 1989. Rætt er um sundiðkun og keppni í héraðinu og lagt til að Grettisbikarinn verði nú tekinn úr umferð enda sé búið að keppa um hann í 50 ár. Það gefur til kynna að ávarpið hafi verið flutt 1989 en Grettisbikarinn var afhentur sundlauginni í Varmahlíð 1939.
Sjötti Grettisbikar. Sunnudagur 8. júlí í Varmahlíð. Úrslit urðu þessi.Sá sem heldur á bikarnum er Gísli Indriði Felixson (1930-) synti á 8 mín og 07 sek. Vinstra megin á myndinni er Eiríkur Valdimarsson (1923-1985) synti á 9 mín. 20 sek. og til hægri Maron Pétursson (1919-2000) synti á 10 mín. Tilg. Miðjumaðurinn er Gísli Felixson (með bikarinn)
Keppendur f.v. (Brynleifur) Kári Steinsson (með bikarinn) og Marinó Sigurðsson. Valgarð Blöndal vinstar megin með gleraugu. Sigurður Sigurðsson (sýslumaður) t.h. með gleraugu. Keppt í Grettissundi í Varmahlíð.
Keppendur f.v. (Brynleifur) Kári Steinsson (með bikarinn) og Marinó Sigurðsson. Guðjón Ingimundarson t.v. við keppendur (að lesa á blöð). Keppt um Grettisbikarinn í Varmahlíð árið 1941.
keppni í Grettissundi fór fram sunnudaginn 16. júlí 1944. 1 Gísli Felixsson (1930-) á 9:21 -2 mín tekur við Grettisbikar á myndinni. Eiríkur Valdimarsson (1923-1985) Vallanesi sundkappinn synti á 9:29.0 sem er lengst til hægri. Maron Pétursson (1919-2000) sundkappi sem er lengst til vinstri synti á 9:34.0. Guðjón Ingimundarson (1915-2004)afhendir bikarinn. Sundmenn - f.v. Maron Pétursson - Gísli Felixson - og Eiríkur Valdimarsson. Guðjón Ingimundarson veitir viðurkenningu.
Yfirlit yfir keppendur og úrslit í Grettissundi 1940-1996 og þar með yfirlit yfir handhafa Grettisbikarsins þessi ár. Forsaga þessarar keppni er sú að þegar sundlaugin í Varmahlíð var vígð árið 1939 gaf Skagfirðingafélagið í Reykjavík lauginni bikar, svokallaðan Grettisbikar, til þess að keppa um í sundlauginni í 500 m. sundi og öðlast þar með titilinn "sundkappi Skagfirðinga".