Vísur eftir Dr. Jón Helgason. Virðist vera teknar saman af "K.S.B.". Á heftið er skrifað: "Þessi kvæði Dr. J. H. hafa ekki komið mikið fyrir augu almennings."
A. Skjöl frá tímabilinu 1880-2012. Hér kennir ýmsa grasa, bæði gögn frá starfi hans sem framkvæmdastjóri prjónastofunnar Vöku, frá þátttöku hans í bæjarpólitík á Sauðárkróki, kveðskapur og tónlist. Þá sankaði hann að sér ýmsum fróðleik um ýmsa söguþætti, svo sem um Miklabæjar-Skottu og loðdýrarækt á Íslandi. B. Ljósmyndir frá tímabilinu 1850-2012. Elstu myndirnar koma líklega frá ættingjum Erlendar en ekki er unnt að greina hvað kemur frá t.d. foreldrum hans og hvað kemur frá Erlendi. Fyrir vikið var allt ljósmyndasafnið fært í hans skjalasafn.
Boðsbréf frá Iðnsveinafélagi Skagafjarðar vegna 25 ára afmælis félagsins. Líklega til Erlendar Hansen. Í bréfinu kemur fram að viðtakdandi hafi verið einn af 13 stofnfélögum félagsins. Bréfið er undirritað af Halli Sigurðssyni, formanni félagsins.
Ýmislegt er varðar þátttöku Erlendar Hansen í bæjarstjórnarmálum á Sauðárkróki á tímabilinu 1950-1975. Til að mynda gögn er varða deilur um bæjarreikninga 1960, ávörp Erlendar, fréttabréf stjórnmálaflokka.
Æviágrip Bjargar Jóhannesdóttur Hansen frá Sauðá sem hún virðist hafa ritað að mestu sjálf. Með fylgja eftirmál eftir barnabarn hennar, Björgvin Brynjólfsson frá Skagaströnd.