Karen Steindórsdóttir nemandi á málabraut í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra tekur við viðurkenningum fyrir góðan námsárangur á stúdentsprófi vorið 1996 frá skólameistara Jóni F. Hjartarsyni.
Við skólaslit Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra vorið 1994 hafði Tómas Dagur Helgason orð fyrir 10 ára stúdentum. Honum á hægri hönd er Jón F. Hjartarson skólameistari.
Tvær stúlkur af Norðurlandi vestra þær Sólveig Þórarinsdóttir frá Sauðárkróki og Bára Pálína Oddsdóttir frá Siglufirði kepptu um titilinn fegurðardrottning Norðurlands í Sjálfstæðishúsinu á Akureyri vorið 1998. Þær eru hér á mynd ásamt unnustum og foreldrum. F.v. Þórarinn Þórðarson og Jakobína H. Hjálmarsdórrir foreldrar Sólveigar og Hólmar Sigmundsson unnusti Sólveigar, þá Sólveig og svo Bára Pálína og Ómar Sigmarsson unnusti Báru Pálínu. Svava Aðalsteinsdóttir og Oddur Jónsson foreldrar Báru Pálínu eru t.h.
Ársþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) haldið í Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki í ágúst 1995. F.v. Páll Pétursson félagsmálaráðherra, Björn Sigurbjörnsson formaður SSNV, Anna Kristín Gunnarsdóttir, Steinunn Hjartardóttir og Björn Bjarnason menntamálaráðherra í ræðustóli.
Ólafur B. Óskarsson bóndi í Víðidalstungu í ræðustóli, hugsanlega þegar Bóknámshús Fjölbrautaskólans var tekið í notkun haustið 1994 en hann talaði þar fyrir hönd sveitastjórna á Norðurlandi vestra.
Árssþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) haldið í Bóknámshúsi Fjölbrautaskólans í ágúst 1995. F.v. Björn Bjarnason menntamálaráðherra, Páll Pétursson félagsmálaráðherra, Björn Sigurbjörnsson formaður SSNV, Anna Kristín Gunnarsdóttir, Steinunn Hjartardóttir og Þórður Skúlason sveitastjóri á Hvammstanga í ræðustóli.
Frá undirritun samnings um uppbyggingu Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki milli sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og ríkisins, sem fram fór í verknámshúsi skólans í desember 1990. Þá var nafni skólans breytt í Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra á Sauðárkróki. Þekkja má við enda borðsins f.v. Svavar Gestsson menntamálaráðherra, Þorbjörn Árnason formann skólanefndar, Jón F. Hjartarson skólameistara og Ragnar Arnalds þingmann (eða ráðherra).
Frá undirritun samnings um byggingu bóknámshúss við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki vorið 1991 milli ríkisins annars vegar og Héraðsnefndar Skagafjarðar hinsvegar. F.v Magnús H. Sigurjónsson framkvæmdastjóri héraðsnefndar, Svavar Gestsson menntamálaráðherra, Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra, Ragnar Arnalds formaður bygginganefndar bóknámshúss og Þorbjörn Árnason form. skólanefndar.
Þei kalla sig "Sturluga" og voru með dagskrá á Sal Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki í mars 1997 um Sturlungaöldina í Skagafirði. Jón F. Hjartarson skólameistari Fjölbrautaskólans er fremstur. Framri röð f.v. Magnús Pétursson, Hafsteinn Sæmundsson, Ólafur Sveinsson, Magnús jónsson og Guðmundur Magnússon. Aftari röð f.v. Páll Halldórsson, Sigurjón Páll Ísaksson, Karl Karlsson, Bjarni Dagbjartsson og Tryggvi Sigurbjarnarson.
Kennarar við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki í mars 1997, en þeir voru frá ýmsum þjóðlöndum. F.v. Eric Fissers, Belgíu, Ársæll Guðmundsson, Ævar Buthman, Þýskalandi, Gunnar Búason nemandi við skólann, Jón F. Hjartarson skólameistari, Xavier Perough, Frakklandi (er í heimsókn), Erkamm, Danmörku og Geirlaugur Magnússon.
Kennarar við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki. F.v. Jón F. Hjartarson skólameistari, Gísli Árnason, Sigríður Svavarsdóttir, Björn Fr. Björnsson, Kristján Björn Halldórsson, Ársæll Guðmundsson, Valgeir Kárason og óþekktur.
Tilg. Ingi V. Jónasson í Fjölbrautaskólanum vorið 1993 að kynna námsframboð við sænska háskólan í Skövde. Fjær er Ólafur Arnbjörnsson aðstoðarskólameistari.
Mynd sennilega tekin norðan við Verknámshús Fjölbrautaskólans. Tilefnið óþekkt. (1983-1986). F.v. Óþekktur, Sigrún Alda Sighvatsdóttir, óþekktur, Pálmi Rögnvaldsson, Jón Hjartarson, Rúnar Bachmann, Björn Sigurbjörnsson, Jón Ásbergsson (á bak við), Bragi Halldórsson og sr. Hjálmar Jónsson.
Lionsklúbbur Sauðárkróks gaf félagsmiðstöðinni Frið sjónvarp og leikjatölvu í desember 1999. Mennirnir til hægri eru f.h. Eiður Benediktsson, Birgir Gunnarsson og Eiríkur Loftsson. Unglingarnir óþekktir.
Sveit og þjálfari Fjölbrautaskóla Norðulands vestra sem tóku þá í spurningakeppni framhaldsskólanna veturinn 1992. F.v. Geirlaugur Magnússon þjálfari, Páll Ingi Jóhannesson, Ragnar Lundberg og Fjölnir Ásbjörnsson.
Stjórn Nemendafélags Fás haustið 1996. F.v. Viðar Einarsson, Emma Sif Björnsdóttir, Elva Björk Kjartansdóttir, Kristín Rannveig Snorradóttir, Gunnar Búason og Elva Hrönn Friðriksdóttir. Á myndina vantar Ástu Kristínu Reynisdóttur.
Námskeið fyrir atvinnulausa haldið í Fjölbrautaskólanum í ársbyrjun 1995. Það er Sigríður Sigurjónsdóttir sálfræðingur (legst t.v.) sem er með fyrirlestur.
Starfsstúlkur mötuneytis Fjölbrautaskólans taka upp rabbarbara í garðinum við Ketu í Suðurgötunni vorið 1996. F.v. Ásdís Kristjánsdóttir, Erna jónsdóttir, Sigríður Ingimarsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Margrét Halldórsdóttir og Sigurrós Berg Sigurðardóttir.
Hljómsveitin Plunge frá Siglufirði sem lék á Opnum dögum í Fjölbrautaskólanum í mars 1997. F.v. Víðir Vernharðsson, Gottskálk Kristjánsson, Sveinn Hjartarson og Jón Svanur Sveinsson.
Keppendur í söngvakeppni Fjölbrautaskólans "Öskur 98" sem fram fór í febrúar 1998. T.v. Viðar Vernharðsson (syngur) og Jón Svan Sigurðsson. Báðir frá Siglufirði.
Fyrsta útsending Rás Fás í desember 1990. Einar Einarsson útvarpsstjóri (t.h.) talar við Jón Hjartarson skólameistara (t.v.) Tjörvi Jónsson dagskrárgerðarmaður er á milli þeirra.
Samverustund í Bóknámshúsi Fjölbrautaskólans vegna snjóflóðanna sem féllu á Flateyri í október 1995. Í sætaröðinni næst eru f.v. Hólmfríður Guðmundsdóttir, Friðrik Jónsson og Atli Hjartarson.
Frá Grettluþingi um Grettir Ásmundarson sem haldið var í Bóknámshúsi Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki í ágúst 1997. Þekkja má Sverri Pál Erlendsson næst t.v. og Eirík Rögnvaldsson næst t.h.
Frá Grettluþingi sem haldið var um Grettir Ásmundarson í Bóknámshúsi Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki í ágúst 1997. Þekkja má í miðröðinni fólk frá Fagranesi. F.v. Guðrún Eiríksdóttir, Jón Eiríksson, Sigurborg Hilmarsdóttir, Kristján Eiríksson, Birna Jónsdóttir og svo Pálmi Sighvatsson.
Verknámsdeild Fjölbrautaskólans fékk að gjöf tæki til kennslu í eðlisfræði í september 1998. Tæki þessi eru gjöf frá Háskóla Íslands, en þau voru notuð á Ólympíleikunum í eðlisfræði. Á myndinni eru f.v. Björn Fr. Björnsson, Sveinn Ólafsson (Sveinssonar læknis) frá Hásskólanum, Kristján Björn Halldórsson, Valgeir Kárason og Gísli Árnason.
Þátttakendur á endurmentunarnámskeiði í málmsuðu í verknámshúsi Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki í desember 1995. Námskeiðið var haldið á vegum Farskóla Norðurlands vestra. Leiðbeinandi var Ingvar Ingvarsson (er fyrir miðju) frá Iðntæknistofnun.
Jóhann Pétur Sveinsson formaður Sjálfsbjargar (t.h.) tekur við ávísun úr hendi Geirmundar Valtýrssonar frá Kaufpélagi Skagfirðinga í söfnun Sjálfsbjargar á ferð þeirra um landið árið 1989.