Frá heimsókn Vigdísar Finnbogadóttur forseta í Skagafjörð 23.-25. ágúst 1991. Á myndinni er Þorsteinn Ásgrímsson formaður héraðsnefndar við hlið Vigdísar á Alexandersflugvelli. Á eftir þorsteini gengur kona hans Ingibjörg Sigurðardóttir.
Frá fyrsta þingi Sambands sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) sem haldið var á Siglufirði haustið 1993. F.v. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra, Björn Sigurbjörnsson formaður SSNV, Ragnar Arnalds alþingismaður (í ræðustóli), Þorsteinn Ásgrímsson form. Héraðsnefndar Skag. og óþekktur.
Vigdís Finnbogadóttir forseti heimsótti Skagafjörð 23.-25. ágúst 1991. Á myndinni er Þorsteinn Ásgrímsson formaður héraðsnefndar að taka á móti Vigdísi á Alexandersflugvelli þar sem fjöldi fólks var saman komin.
Frá undirritun stofnsamnings Byggðasamlags um Hitaveitu Sauðárkróks og Seyluhrepps haustið 1997. F.v. Sigurður Haraldsson oddviti Seyluhrepps, Þorsteinn Ásgrímsson Varmalandi, Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjói Skr. og Kristján Jónasson endurskoðandi.
Talning í prófkjöri Farmsóknar í Framsóknarhúsinu á Króknum hugsanlega fyrir Alþingiskostningarnar 1995. F.v. Haraldur Hermannsson, Magnús Ólafsson, Guðrún Sighvatsdóttir, Þorsteinn Ásgrímsson og sennilega Guðmann Tóbíasson.
Frá heimsókn Vigdísar Finnbogadóttur forseta í Skagafjörð 23.-25. ágúst 1991. Þorsteinn Ásgrímsson formaður héraðsnefndar býður Vigdísi velkomna á Alexandersflugvelli.
Gengið niður í Staðarbjargarvík við Hofsós. Þekkja má Jón Guðmundsson hreppstjóra Hofshrepps neðst í tröppunum, Aðalheiður Ormsdóttir þriðja, þá Halldór Þ. Jónsson sýslumann. Efst í tröppunum í ljósum frakka er Þorsteinn Ásgrímsson og Magnús H. Sigurjónsson á brúninni í ljósum frakka.