Lengst til vinstri stendur Örn Ingi, þriðji f.v. Vigfús Vigfússon og María Björk Ingvadóttir lengst t.h. Líklega er þetta í tengslum við Sumarsæluviku árið 1994 en þá var Örn Ingi framkvæmdastjóri hátíðarinnar. Þessi hópur er líklega veitingarhúsarekendur á Sauðárkróki sem tóku sig saman og buðu upp á sérbruggaðan bjór í tilefni hátíðarinnar.
Tilg. RKS-skynjaratækni ehf Sauðárkróki setti á markað gasskynjara (1996). F.v. Rögnvaldur Guðmundsson RKS, þorsteinn Ingi Sigfússon forstjóri Nýsköpunarmiðstöðfar og Jón E. Friðriksson.
Hópur Rússa kom í heimsókn í Steinullarverksmiðjuna vorið 1990 til að kynna sér starfsemina og þá sérstaklega mengunarvarnir sem voru með því besta sem þá þekktist í sambærilegum verksmiðjum.
Tilg. Kynning í Mjólkursamlagi KS. Sveitastjórnarfulltrúar 1986-1990. F.v. Hörður Ingimarsson, Jón E Friðriksson, Anna Kristín Gunnarsdóttir, Magnús Sigurjónsson (bak við Kristínu), Knútur Aadnegard (bak við Hauk) Haukur Pálsson ostameistari, Aðalheiður Arnórsdóttir, Snorri Evertsson samlagsstjóri og (Árni Egilsson).
Opið hús hjá Hitaveitu Sauðárkróks í tilefni Norræns tækniárs 1988. Maðurinn fjærst með gleraugu er Ingimar Bogason og konan lengst t.h. er Engilráð Sigurðardóttir. aðrir óþekktir.
Fimm stúlkur sem héldu tombólu til styrktar Dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki í ágúst 1987. Þær eru f.v. Þóra Björk Þóhallsdóttir, Þórdís Ósk Rúnarsdóttir, Steina Margrét Finnsdóttir, Emma Sif Björnsdóttir og Þorgerður Eva Þórhallsdóttir.
Jarðborinn sem Jón Nikódemusson smíðaði til borunar eftir heitu vatni við Áshildarholtsvatn, en það mun vera fyrsti borinn sem notaður var á Króknum. Hann er nú staðsettur við dælustöðina í Sauðármýrum, þar sem myndin er tekin.
Frá ferð blaðamanna upp á Skálfelljökul og að Jökulsárlóni í boði Jöklaferða og innanlandsflugi Flugleiða í júlí 1990. Konan lenst t.v. gæti verið Soffía Káradóttir.
Króksmót. Ingvar Magnússon (1960-) þjálfari t.v. í rauðri peysu og sennilega Ómar Braga Stefánsson t.h. Á bak við við Ingvar t.h. eru Stefán Logi Haraldsson og Jón Arnar Magnússon.
Kálfur sem var á leið til slátrunar í sláturhúsi KS slapp og synti 2 mílur á haf út áður en hann náðist. Þórður Þórarinsson er hvítklæddur í fjörunni og í stefni bátsins eru Ragnar Magnússon t.v. og Haraldur Ingólfsson t.h. Aðrir óþekktir.
Óli Björn Kárason (1960-) ritstjóri flytur fyrirlestur um "hvernig miðla á fréttum" á námskeiði á Sauðárkróki í maí árið 1996. Sams konar mynd nr 1261.
Stjórnendur og starfsmenn Vörumiðlunar. F.v. Jón Eðvald Friðriksson, óþekktur, Baldur Ingi Baldursson, Sigurjón Rúnar Rafnsson, Valdimar Bjarnason, Hafsteinn Hannesson, Emil Hauksson, Magnús Svavarsson, Einar Guðmundsson, Hallgrímur Blöndal Flóventsson og Björn Magni Svavarsson.
Skatastaðakláfur á Austari-Jökulsá, eitt elsta samgöngutæki í Skagafirði. Karlarnir f.v. Jóhann Björnsson, Tryggvi Eggertsson og Þórður Skúlason Hvammstanga. Konan óþekkt.
Kláffestur fyrir Skatastaðakláf við Austari-Jökulsá. F.v. Jóhann Björnsson, Tryggvi Eggertsson og og Þórður Skúlason Hvammstanga. Skatastaðakláfur er talin eitt elsta samgöngutæki í Skagafirði. Frétt í Feyki 09.10.1996.
Hópur barna á skautum á Skagaströnd. Talið frá vinstri: Tinna Gunnarsdóttir, Jenný Lind Sigurjónsdóttir, Anna María Magnúsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir, Elva Ösp Gunnarsdóttir, Anna Dúna Rúnarsdóttir, Þórður Óskarsson, Stefán Agnar Gunnarsson. Fyrir framan er Katrín Björk Guðmundsdóttir.