Japaninn Sima (t. v.) og Guðmundur vekrstjóri skoða afurðir ígulkerjavinnslunnar "Íguls" á Hvammstanga haustið 1993, en það eru hrogn ígulkerjanna sem sóst er eftir og þau flutt til Japan.
Línubeitning á Hofsósi í nóvember 1990. Frá vinstri Valgarð Valgarðsson, Sveinn Einarsson, Jón Jóhann Jónsson, Jón Helgi Pálsson og Jónas Jónasson í Árveri lengst t.h. Svo sér í kollinn á Braga Vilhjálmssyni neðst á miðri mynd.
Frá Fiskiðjunni á Sauðárkróki í mars 1995. Til vinstri Snjólaug Kristinsdóttir (nær), Margrét Skúladóttir og til hægri Aldís Guðrún Axalsdóttir (nær) og Sólborg Björnsdóttir.
Messað í Drangey í ágúst árið 2000. Karl Sigurbjörnsson (1947-) biskup Íslands messaði og var séra Guðbjörg Jóhannesdóttir honum til aðstoðar. Um hundrað manns voru við athöfnina í blískaparveðri.
Innfjarðarrækja unnin hjá Rækjuvinnsluninni Meleyri á Hvammstanga í febrúar 1993. Fremst á myndinni eru Anna Mary Pálmadóttir (t.v.) og Guðrún Erlingsdóttir (t.h.).
Rækjuvinnsla á Skagaströnd. Fremst og lengst til vinstri er Ásta Ýr Ásgeirsdóttir, við hlið hennar Sigrún Lárusdóttir og fremst hægra megin er Sigrún Guðmundsdóttir (móðir Sigrúnar Lárusdóttur). Sú fjórða er óþekkt.
Messað í Drangey í ágúst árið 2000. Karl Sigurbjörnsson biskup messaði og var séra Guðbjörg Jóhannesdóttir honum til aðstoðar. Um hundrað manns voru viðstödd athöfnina í blíðskaparveðri. Jón Eiríksson "Drangeyjarjarl" fremstur fyrir miðju.
"Ungur nemur gamall temur," er orðtak sem starfsfólk leikskólans Furukots hafði í heiðri. Því var farið með börnin í kynnisferð í Sauðárkrókskirkju. Myndin var tekin meðan hópurinn beið eftir sóknarprestinum við kirkjudyrnar í desember 1988. F.v. Hafdís Guðlaug Skúladóttir (1967-) , Eiríkur Hilmisson (1963-) , Arna Kristjánsdóttir (1968-) , Lýdía Ósk Jónasardóttir (1967-) Sigurlaug Kristín Konráðsdóttir (1960-). og 2 óþekktar.
Loðdýrabændur skoða loðdýrabúið hjá Reyni Barðdal á Gránumóum síðsumars 1996. Reynir Barðdal (1949-) annar frá vinstri að útskýra eitthvað fyrri gestunum. Til vinstri á myndinni er Arvid Kro framkvæmdastjóri Sambands Loðdýrabænda. Lengst til hægri er Kristján Jónsson (1959-) Óslandi. Aðrir óþekktir.
Á Sölvabakka haustið 1997. Ferguson 1958 (30 ha) er sá minni , Massey Ferguson 1997 (90 ha) er sá stærri. Sannarlega gamli og nýji tíminn en sá gamli gengur eins og nýupptrekkt klukka, skv. frétt í Feyki.
Hr. Karl Sigurbjörnsson biskup messaði í Drangey í ágúst árið 2000. Honum til aðstoðar var var séra Guðbjörg Jóhannesdóttir. Um hundrað manns hlýddu á biskup í blíðskaparveðri.
Að bænum Litlu-Hlíð í Víðidal fæddust fyrstu lömbin á annan dag páska árið 1991. Hermann bóndi í Litlu-Hlíð sagðist ekki óvanur því að lömb fæðist á hinum ólíklegasta árstíma.
Hr. Karl Sigurbjörnsson biskup messaði í Drangey í ágúst árið 2000. Honum til aðstoðar var séra Guðbjörg Jóhannesdóttir. Um hundrað manns hlýddu á biskup í blíðskaparveðri.
Mynd frá vöru- og þjónustusýningunni á Sauðárkróki sumarið 1997. Það var nóg að gera í básnum hjá afurðasölu KS við að grilla og bjóða upp á kjötmeti og ost. Páll Friðriksson (1967-) t.h. og Hrönn Gunnarsdóttir (1958-) grillmeistarar. Til vinstri óþekktur.
Fyrstu hreinu galloway nautin úr Hrísey komu í Skagafjörð í ársbyrjun 1997. Þeir stinga nokkuð í stúf hinir kafloðnu kollar galloway kálfanna tveggja t.v. í fjósinu á Vöglum.
Fyrstu hreinu galloway nautin úr Hrísey komu í Skagafjörð í ársbyrjun 1997. Þeir stinga nokkuð í stúf hinir kafloðnu kollar galloway kálfanna tveggja t.v. í fjósinu á Vöglum.
"Tilbúnir að gefa allt eftir þegar bændur eiga í hlut," segir Einar Guðmundsson bóndi á Neðri-Mýrum í viðtali í Feyki haustið 1998. Á myndinni er Einar með elstu kúna í fjósinu, Búkollu sem er 11 vetra og framleiðir enn hágæðamjólk.
Drangeyjarsund. Mynd tekin í fjörunni í Drangey 15. ágúst 1994. Frá vinstri, Jón Eiríksson (1929-) "Drangeyjarjarl" ásamt þrem Drangeyjarsundsköppum, þeim Eyjólfi Jónssyni, Axel Kvaran og Pétri Eiríkssyni.
Fyrsta lambið í búsmala sauðkrækinga vorið 1993 fæddist líklega hjá Lárusi Sveinssyni rétt fyrir páska. Það kunni barnabarn hans , Sunna Björk Atladóttir, vel að meta og hampar hún hér lambinu og félagi hennar Eyþór Fannar Sveinsson fylgist með af aðdáun. Lárus Sveinsson (1913-1993) Sunna Björk Atladóttir (1989-) Eyþór Fannar Sveinsson (1987-).
Þegar heimilisfólkið í Saurbæ í Lýtingstaðahreppi kom í fjárhúsin einn föstudagsmorgun vorið 1998 var ærin Golsa , sem var þriggja vetra, búin að bera þremur fallegum gimbralömbum, einu mórrauðu og tveimur golsóttum. Þetta var þriðja vorið í röð sem þessi unga ær bar þremur lömbum og því ekki annað sagt en hún sé með afbrigðum frjósöm. Hún hafði þó aldrei áður borið jafn snemma og þetta vor, enda var þá enn rúmur mánuður í að sauðburður hæfist víðast hvar. Frétt í 13 tbl. Feykis 1998.
Hrönn Gunnarsdóttir (1958-) starfsstúlka Kjötvinnslu KS handleikur fallegan dilkaskrokk haustið 1994, en veruleg söluaukning hafði orðið hjá Kjötvinnslunni.
Tilg. Fundur á Heilbrigðisstofnun Skagfirðinga. Fjær f.v. Friðrik J. Friðriksson (1923-2011) , læknir á Sauðárkróki, Ólafur Ólafsson (1928-) landlæknir og Ingibjörg Pálmadóttir (1949-) heilbrigðisráðherra.
Gerð svæðisskipulags fyrir Skagafjörð hafin í júní 1995. Bjarni Jónsson (1965-) sagnfræðingur , Jóhanna Lára Pálsdóttir (1968-) landfræðingur , Páll Snævar Brynjarsson (1965-) stjórnamálafræðingur voru meðal starfsmanna Lendis sem unnu að gerði hins umfangsmikla skipulags fyrir Skagafjörð , sem lauk í árslok 1997.
Tilg. Álfadans um áramót 1996-97 undir handleiðslu hjónanna Jóhönnu Karlsdóttur og Karls Bjarnasonar, en dansað var við álfabrennur á þrem stöðum þ.e. Hofsósi, Sauðárkróki og Varmahlíð.
Tilg. Álfadans um áramót 1996-97 undir handleiðslu hjónanna Jóhönnu Karlsdóttur og Karls Bjarnasonar. Dansað var við álfabrennur á þrem stöðum þ.e. Hofsósi, Sauðárkróki og Varmahlíð .
Íslandsmót í boccia í íþróttahúsinu á Sauðárkróki í október 1999 á vegum Íþróttasambands fatlaðra. Á myndinni eru sigurvegarar í rennuflokki. f.v. Ívar Ö. Guðmundsson ÍFR 2. sæti, Sveinbjörn Gestsson ÍFR 1. sæti og Aðalheiður Bára Steinsdóttir Grósku 3. sæti.
Nemendur sérdeildar Gagnfræðaskóla Sauðárkróks fá afhent endurskinsmerki frá Kiwanisklúbbnum Drangey í desember 1993. Aftast eru Ólafur Jónsson forseti Kiwanisklúbbsins t.v. og Sveinbjörn Ragnarsson lögregluþjónn.
Tilg. Félagar úr Grósku, íþróttafélagi fatlaðra í Skagafirði. Þekkja má f.v. Ragnar Berg Ágústsson (í hjólastól), Kristján Viðarsson (bak við Ragnar), Steinar Björnsson fyrir miðju (í hjólastól) og Valdimar Björnsson við borðsendann t.h.
Í september 1992 tók til starfa að Dalatúni 6 vistheimili við sérdeildina í Gagnfræðaskóla Sauðárkróks. Umsjónamaður var Aðalheiður Reynisdóttir og er hún fjórða frá hægri á myndinni. FJórði frá vinstri er Árni Heiðar Bjarnason.
Hluti af hópi fólks úr íþróttafélaginu Grósku í Skagafirði með verðlaunagripi sem þeir unnu á Íslandsmóti Íþróttasambands fatlaðra sem fram fór í íþróttahúsinu í Kaplakrika í Hafnarfirði í mars 1993. Alls fóru 13 keppendur en þeir kepptu einungis í boccia.