Útskrift frá Hólum vorið 1985. Jón Bjarnason (1943-) lengst til hægri. Hæstu einkunn hlaut Gunnar Sigurðsson frá Stóru-Ökrum og er hann í öftustu röð fyrir miðju og sagðist hann aðspurður ætla að verða bóndi og hefur það gengið eftir. Myndin tekin á tröppum Hóladómkirkju.
Gestir frá vinabæjum Sauðárkróks í heimsókn á Sauðárkróki sumarið 1981. Aftari röð frá vinstri: Margrét Ingvadóttir, Margrét Jenny Gunnarsdóttir (1947-), Anna Rósa Skarphéðinsdóttir (1948-), Sigurður Jóhannes Ágústsson (1947-), Sveinn Friðvinsson (1938-), Friðrik Brekkan, Árni Guðmundsson og Þorsteinn Þorsteinsson bæjarstjóri. Fremri röð óþekkt nema Páll Pálsson veitustjóri er lengst t.h.
Gangnamenn að Undirfellsrétt í Vatnsdal haustið 1982. Frá vinstri Magnús Pétursson frá Miðhúsum (hellir í glösin)- Jón B. Bjarnason frá Ási. Sigurður Magnússon frá Hnjúki - Reynir Steingrímsson frá Hvammi og Leifur Sveinbjörnsson frá Hnausum.
Félagar úr Björgunarsveitinni Skagfirðingasveit. F.v. Páll Sighvatsson, Sigurður H. Ingvarsson, Haraldur Jóhann Ingólfsson (1967-) og Þorsteinn Valsson(1967-). Tilefnið óþekkt.
Hans Birgir Friðriksson (1953-) að vinna að grjóthleðslu í Kirkjustíg sumarið 1993. Honum til aðstoðar eru Arndís Jónsdóttir (1977-) og Bára Tavsen Rúnarsdóttir (1977-).
Sigurður Kr. Jónsson fór ásamt fleirum í útsýnisflug í boði Magnúsar Ólafssonar bónda og flugmanns á Sveinsstöðum yfir Vatnajökul og Skreiðarársand haustið 1996 en þá var Skeiðarárhlaup ný afstaðið. Myndin sýnir útfall Grímsvatna úr jöklinum.
Fyrsta hjólarallið um Skagafjörð sem frjálsíþróttadeild Tindastóls stóð fyrir árið 1996. Sigurvegarinn Einar Jóhannsson á fullri ferð fyrir ofan félagsheimilið Ljósheima.
Magnús Jónsson sveitarstjóri t.h. og Rolf Árnason tæknifræðingur Höfðahrepps t.v. fylgjast með starfsmönnum Sveinbjarnar Runólfssonar hf. taka hæðarpunkta meðfram höfninni á Skagaströnd vegna dýpkunarinnar haustið 1996.
Sama mynd og 1008. Kvenfélagskonur á Króknum færa Sjúkrahúsinu fæðingarmonitor (sírita) til notkunar á fæðingadeildinni. Aftast t.v. María Ingiríður Reykdal Hauksdóttir, Starrastöðum (1958-) og t.h. Brandís Eyrún Benediktsdóttir (1946-). Miðröð f.v. óþekkt - Helena Magnúsdóttir (1930-2014) og óþekkt. Fremst við gluggann er Lovísa Símonardóttir (1948-) við hlið hennar Sigríður Jónsdóttir frá Vallanesi.
Úr ferð eldri borgara sem farin var fram að Galtará haustið 1996 í boði Rúnars Gíslasonarog Heiðu Sigurðardóttur. F.v. Sigmundur Birgir Pálsson (1932-2003) - Ingimar Rúnar Ástvaldsson (1959-) - Sigurður Rúnar Gíslason (1948-) og Valgarð Einarsson. Myndin tekin við Galtarárskála þar sem Rúnari var færð gjöf sem þakklætisvottur frá eldri borgurum.
Fundur með Davíð Oddssyni forsætisráðherra (1948-) í Bóknámshúsinu á Sauðárkróki í ársbyrjun 1996. F.v. Vilhjálmur Egilsson (1952-) Halldór Þormar Halldórsson (1964-) og Davíð Oddsson.
Húsnæðið að Sæmundargötu 7a skiptir um eigendur vorið 1996. Verslunin Hegri fer í húsnæði sem áður hýsti verslunina Hátún. F.v. Davíð Harðarson, Hrund Pétursdóttir (1981-), Ágúst Guðmundsson (1955-), Pétur Valdimarsson (1950-) og Gunnar Hörður Ingimarsson (1943-).
Kvenfélag Sauðárkróks færir Sjúkrahúsi Skagfirðinga fæðingarmonitor (sírita) til notkunar á fæðingadeild, í desember 1995. Aftast eru María Ingiríður Reykdal Hauksdóttir, Starrastöðum (1958-) t.v. og Branddís Eyrún Benediktsdóttir (1946-). Í miðröð er Helena Magnúsdóttir í miðjunni, hinar óþekktar og fremst eru Sigríður Jónsdóttir frá Vallanesi t.v. og við gluggann er Lovísa Símonardóttir (1948-).
Spurningakeppni í Skjólinu á Blönduósi. Til vinstri Robert Lee Evensen. Efsta röð frá vinstri óþekkt, Inda Hrönn Björnsdóttir, óþekkt, Stefanía Ellý Baldursdóttir, Gunnhildur Þórmundsdóttir. Mið röð: Helga Kristín Gestsdóttir, Jónína Margrét Guðbjartsdóttir og óþekkt, Neðsta röð frá vinstri: Hrafnkatla Valgeirsdóttir, Gréta Björg Lárusdóttir og Kristjana E. Kristjánsdóttir.
Helgileikur barna í Sauðárkrókskirkju. Árgangur 1984. þekkja má frá vinstri. Díana Signý Hafsteinsdóttir, Helgi Arnar Alfreðsson, Árni Hermann Reynisson, Mikael Leó Brennan, Sandra Gestsdóttir sem fjárhirðir, Sigríður Inga Björnsdóttir, Sólrún Harpa Heiðarsdóttir og Gestur Hrannar Hilmarsson sem fjárhirðir tvö. Kristin Helga Jónasdóttir, Ósk Bjarnadóttir, Jónína Pálmarsdóttir, Ævar Ingi Gíslason, Valdís Dröfn Pálsdóttir, Inga Dóra Ingimarsdóttir, Atli Freyr Kolbeinsson, Sigríður Inga Viggósdóttir, Inga Skagfjörð, Anna Lára Friðfinnsdóttir og Brynjar Rögnvaldsson.
Kirkjugestir við messu að Ábæ í Austurdal um verslunrmannahelgina 1996 taka lagið fyrir utan húsvegg á Merkigili að lokinni messu. Frá vinstri, Sigríður Jónsdóttir (1949-), Reynir Sveinsson (1950-), Anna Jónsdóttir (1950-), Einar Halldórsson (1955-), Agnar Halldór Gunnarsson (1953-), María Jóhannsdóttir, Anna Eiríksdóttir og Pálmi Runólfsson.
Syðri- Hofdalir í Viðvíkursveit buðu heim ásamt bændum víða um land í átakinu."Íslenskur landbúnaður" sumarið 1996 sem bændasamtökin stóðu fyrir. Hér er heimilisfólk ásamt gestum er litu við. Frétt í Feyki árið 1996.
Páll Ragnarsson (1946-) fimmtugur. Páll ásamt systkinum og móður sinni Önnu Pálu Guðmundsdóttur. Myndin tekin í maí 1996, við Tjarnarbæ, þar sem Páll bauð til veislu. Aftari röð frá vinstri Örn Ragnarsson (1959-), Guðmundur Leifur Ragnarsson (1944-), Páll Ragnarsson (1946-), Úlfar Ragnarsson (1965-), Árni Ragnarsson (1949-), Hólmfríður Ragnarsdóttir (1950-), Anna Pála Guðmundsdóttir (1923-), Ólöf Sigríður Ragnarsdóttir (1956-).
Nemendur í leiðsögunámi árið 1996 frá vinstri Helena Svanlaug, Karl Sigurgeirsson, Valgeir Steinn Kárason (1951-), Ingibjörg Jóhannesdóttir, Þorkell Vilhelm Þorsteinsson (1956-), Ásdís Guðmundsdóttir (1963-),Matthildur Ingólfsdóttir, Ágúst Sigurðsson, Debbie Robinson, óþekkt (á bak við), Guðbjörg Guðmundsdóttir og Helgi Hannesson (1952-). Myndin tekin við úrsýnisskífuna á Arnarstapa.
Skemmtinefnd á Þorrablóti í Höfðaborg á Hofsósi árið 1993. Jón Björn Sigurðsson, Jóhanna Kristjánsdóttir, Sigríður L. Guðlaugsdóttir, Ingibjörg Jónsdóttir, Bjarni Jóhannsson, Bryndís Óladóttir, Björn Jóhannson, Agnes Gamalíelsdóttir og Pálmi Rögnvaldsson í ræðustóli.