Unglingavinna á Sauðárkróki 1987. Þökulagning í Hlíðarhverfi. Frá vinstri, Ingvar Ormsson (1974-), Kristján Kristjánsson (1973-) Sveinn H. Guðmundsson og Valdimar Birgisson (1974-).
Tilg. Flösku- og dósasöfnun. Tekið við Kirkjutorg á Sauðárkróki allar stúlkurnar fæddar árið 1980. Kristrún og María Sigurðardætur eru í bláu úlpunum, Vala Frímannsdóttir á milli þeirra og Margrét Erla Haraldsdóttir.
Útgáfa bókarinnar Héraðsstjórn í Húnaþingi. Frá vinstri Bragi Guðmundsson og Jón Ísberg sýslumaður, Austur-Húnavatnssýsla. Bókin Héraðsstjórn í Húnaþingi eftir Braga Guðmundsson menntaskólakennara á Akureyri komin út. Í bókinni er rakin saga sýslunefndanna í Húnavatnssýslu 1872-1907 og í Austur-Húnavatnssýslu 1908-1988. Ritverk þetta var formlega afhent Húnvetningum í samsæti á Hótel Blönduósi. Jón Ísberg sýslumaður Húnvetninga gerði lítillega grein fyrir tilurð þessa ritverks og kynnti höfundinn, Braga Guðmundsson, en hann er borinn og barnfæddur Húnvetningur, frá Holti í Svínadal. Bragi flutti ítarlegt erindi um framgang þessara ritsmíða og flutti þeim fjölmörgu sem nálægt því höfðu komið sínar bestu þakkir. Höfundurinn greindi og frá því að öll aðstaða á Héraðsskjalasafninu á Blönduósi hefði verið mjög góð. Það kom fram hjá Braga að fyrstu þrjátíu og sex árin hefði verið starfandi ein sýslunefnd fyrir báðar Húnavatnssýslurnar en árið 1908 skildu leiðir og störfuðu eftir það tvær sýslunefndir sín hvoru megin við Gljúfurá. Það er ljóst að þessi saga um sýslunefndir sem starfað hafa í Húnavatnssýslum í 116 ár er jafnframt saga sýslunnar og kannski ekki hvað síst saga Ísberganna, en Jón Ísberg sýslumaður hefur verið sýslumaður frá árinu 1960 og þar á undan var faðir hans Guðbrandur Ísberg sýslumaður frá árinu 1932. Bókin Héraðsstjórn í Húnaþingi er 478 síður og í ritnefnd voru Jón Ísberg sýslumaður, Stefán Á. Jónsson og Jón Tryggvason. Jón Sig. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson. Jón Ísberg sýslumaður (t.h.) og höfundurinn Bragi Guðmundsson með hina nýju bók Héraðsstjórn í Húnaþingi.
Sæluvika á Sauðárkróki vorið 1997. Húnvetningar og Strandamenn voru mættir. Frá vinstri Björn Sigurðsson, Guðmundur TR. Sigurðsson, Engilbert Ingvarsson og Kristín Einarsdóttir.
Börn á Sauðárkróki sem héldu hlutaveltu í júlí 1985. F.v. Arna Dröfn Björnsdóttir (1975-), Ragnar Páll Árnason (1976-), Dagur Jónsson (1976-) og Atli Björn Þorbjörnsson (1976-).
Hópur fólks við Grettislaug á Reykjum, Reykjaströnd. Jón Eiríksson (1929-) í lopapeysu með bláa húfu og Eyjólfur Jónsson sundkappi í forgrunni, en hann synti Drageyjarsund 1957.
Hópur fólks við Grettislaug á Reykjum, Reykjaströnd. Jón Eiríksson (1929-) í lopapeysu með bláa húfu og Eyjólfur Jónsson sundkappi í forgrunni, en hann synti Drangeyjarsund 1957.
Rússneskur togari í Sauðárkrókshöfn í nóvember 1992. Túlkurinn Geirlaugur Magnússon (1944-2005) lengst til hægri . Vladimir Vodvichenko vélstjóri og Ivan Popof stýrimaður. Sama mynd og 1119.
Á Hótel Mælifelli, sennilega í barraveislu á vegum fiskeldisfyrirtækisins Máka haustið 1996. Frá vinstri Guðmundur Örn Guðmundsson (1955-) og Árni Antoníus Guðmundsson (1927-1999).
Frá vinstri Bragi Þór Haraldsson (1953-) og til hægri Jón Sigurðsson (1948-) Tilg. Lionsklúbburinn á Sauðárkróki styrkir Björgunarsveitina Skagfirðingasveit.
Frá vinstri Sverrir Jónsson frá Þverá, Hjörtur Magnússon frá Smiðsgerði og Haukur Pálsson (1931-2011) ostameistari í Mjólkursamlagi KS en hann hafði þá nýverið unnuð til gullverðlauna á ostasýningu í Herning í Danmörku. Frétt í Feyki árið 1995. Hjörtur og Sverrir voru í starfskynningu hjá blaðinu og tóku viðtal við Hauk.
Iðnaðarmenn vinna að uppbyggingu Vesturfarasetursins á Hofsósi í febrúar 1996. Frá vinstri: (Gísli Kristjansson), Baldur Haraldsson (1962-), Þröstur Ingi Jónsson (1971-), Atli Óskarsson, Halldór Þorvaldsson (1971-) og óþekkur.
Kjötiðnaðarfyrirtækið Kjöthlaðan á Laugarbóli í Lýtingsstaðahreppi setti á markað skyndibita sem nefnist "Mánagull" 1995. Frá vinstri Hafsteinn Sigurðsson framkvæmdarstjóri Kjöthlöðunnar, Finnur Ingólfsson (1954-) iðnaðarráðherra og María Ólöf Sigurðardóttir (1977-) sem er eigandi Kjöthlöðunnar með Hafsteini.
Styrktar- og líknarsjóður lögreglumanna styrkir Ólöfu Þórhallsdóttur á Narfastöðum í Viðvíkurhreppi í desember 1995, en Ólöf hafði misst eiginmann sinn og son í bílslysi fyrr á árinu. Afhendingin fór fram í lögreglustöðinni á Sauðárkróki. F.v. Geir Jón Þórisson, Ólöf Þórhallsdóttir (1952-) og Gissur Guðmundsson.
Guðmundur Ingvi Einarsson (1981-) Íslandsmeistari í golfi í flokki unglinga 15-18 ára 1999. Hann náði jafnframt góðum árangri á Norðurlandamóti unglinga í Finnlandi það sumar.
Rauðakrossdeild Skagafjarðar fékk nýjan sjúkrabíl haustið 1996 og fengu Brunavarnir Skagafjarðar bílinn til umsjónar. Frá vinstri Katrín María Andrésdóttir (1968-), Karl Lúðvíksson (1951-), Guðbrandur Jón Frímannsson (1922-2000), Ingimar Jóhannsson (1949-), Gestur Þorsteinsson (1945-), Óskar Stefán Óskarsson (1961-2007) Gísli Gunnarsson og Rannveig Þorvaldsdóttir (1921-2002) fremst.
Frá uppskeruhátíð körfuknattleiksdeildar Tindastóls í Tjarnarbæ vorið 1996.. Kvenfólkið með sínar viðurkenningar ásamt þjálfara. F.v. Kristín Magnúsdóttir (1976-), Audry Codner, Eygló Agnarsdóttir (1977-) frá Heiði og Kári Marísson (1951-). þjálfari.
Aðalfundur Sambands loðdýrabænda haldinn á Hólum í lok janúar 1996. Við það tilefni heimsóttu þeir loðdýrabú Reynis Barðdal á Sauðárkróki. Frá vinstri Haraldur Stefánsson (1952-) í Brautarholti, Kristinn Gamalíelsson (1945-1998), Þórustöðum II, Ölfusi og Þórarinn Guðvarðarson (1930-), Minni-Reykjum, Fljótum.
Nemendur Árskóla, Sauðárkróki sem fóru á nemandamót vinabæja í Köge, Danmörku, haustið 1992. Jóna Kolbrún Árnadóttir (1975-), Helga Margrét Pálsdóttir (1975-) og Gunnar Andri Gunnarsson (1975-).
Dvalarheimili aldraðra við Sjúkrahúsið á Sauðárkróki tekið í notkun um mánaðarmótin október-nóvember árið 1986. Það var Ragnhildur Helgadóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra sem afhenti stjórn Sjúkrahússins húsið.
Héldu hlutaveltu í vetrarbyrjun 1988. Frá vinstri: Margrét Ágústa Sigurðardóttir (1980-), Hafrún Anna Sigurbjörnsdóttir (1980-), Rakel Hermannsdóttir (1976-), Brynhildur Olga Haraldsdóttir (1977-) og Bára Waag Rúnarsdóttir (1977-).
Tilgáta. Frá 50 ára vígsluafmæli Siglufjarðarkirkju í lok ágúst 1982, en þá var jafnframt tekið í notkun safnaðarheimili á kirkjuloftinu, en áður hafði loftið verið notað til kennslu. Pétur Sigurgeirsson biskup er lengst t.v. og Auður Auðuns ráðherra við hlið hans.
Lionsklúbbarnir á Sauðárkróki stóðu fyrir samkeppni meðal grunnskólanema um gerð friðarveggspjalds vorið 1990. F.v. Páll Pálsson (1946-), formaður Lionsklúbbs Sauðárkróks ásamt verðlaunahöfum þeim, Björgvin Benediktssyni (1977-), Ingibjörgu Stefánsdóttur (1976-) og Helenu Magnúsdóttur (1976-).
Sex 40 ára búfræðingar frá Bændaskólanum á Hólum frá árinu 1945, voru viðstaddir skólaslit skólans vorið 1985. Frá vinstri, Rögnvaldur Gíslason Sauðárkróki, Frosti Gíslason Frostastöðum (bak við), Jón Samúelsson, Steinn Snorrason frá Bægisá, Sigurður Jónsson á Efstalandi í Öxnadal og Pétur Steindórsson á Krossastöðum í Glæsibæjarhreppi.
Fermingarfræðsla á Löngumýri árgangur 1975. Nemendur frá Varmahlíð og Blönduósi. Fullorðnu mennirnir eru t.v. sr. Ólafur Hallgrímsson á Mælifelli og t.h. sr. Árni Sigurðsson á Blönduósi.
Drangeyjarsund. Mynd tekin í fjörunni í Drangey 15. ágúst 1994. Frá vinstri, Jón Eiríksson (1929-) "Drangeyjarjarl" ásamt þrem Drangeyjarsundsköppum, þeim Eyjólfi Jónssyni, Axel Kvaran og Pétri Eiríkssyni.
Verðlaunahafar fyrir veggspjald, sem unnið var í umferðarátaki sem umferðanefnd Sauðárkróks, lögreglan, tryggingarfélögin og grunnskólinn á Sauðárkróki stóðu fyrir 1997. Aftari röð frá vinstri, Arnar Freyr Frostason (1988-), Snævar Örn Jónsson (1988-), Stefanía Inga Sigurðardóttir (1988-), Jóhanna Ey Harðardóttir (1988-). Fremri röð frá vinstri Skapti Ragnar Skaptason (1988-), Katrín Sveina Björnsdóttir (1988-).