Leikskólinn Ásgarður á Hvammstanga. Lionsklúbburinn Bjarmi á Hvammstanga færir leikskólanum Ásgarði Bo bath vinnubekk vorið 1997. Það er Örn Guðjónsson (t.h.) formaður Bjarma sem afhendir bekkinn og á bekknum er Stefán Þorbjörnsson 6 ára.
Frá afmælishátíð Sauðárkróks á Faxatorgi í júlí 1997. Elsa Jónsdóttir bæjarritari í ræðustóli. Á bak við frá vinstri, Hilmir Jóhannesson, Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, Ólafur Ragnar Grímsson forseti, Stefán Guðmundsson alþingismaður og óþekktur.
Samkoma í minningarreit Hjálmars Jónssonar í Bólu (Bólu-Hjálmars) í ágúst 1996 þegar þess var minnst að 200 ár voru frá fæðingu Hjálmars. Þekkja má forsetahjónin t.v. þau Ólaf Ragnar Grímsson og Guðrúnu Katrínu Þorbergsdóttur og sr Hjálmar Jónsson við hlið Guðrúnar. Signý Bjarnadóttir (kona Hjálmars) er svo t.h.
Fulltrúar Sauðárkróks taka á móti forsetahjónunum þeim Guðrúnu Katrínu Þorbergsdóttur og Ólafi Ragnari Grímssyni á Alexandersflugvelli, er þau komu á afmælihátíðina á Sauðárkróki sumarið 1997.
Forsetahjónin þau Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir koma á afmælishátíð Sauðárkróks í júlí 1997. Á myndinni eru þau á Alexandersflugvelli að heilsa framáfólki bæjarins.
Tekið á móti forsetahjónunum þeim Ólafi Ragnari Grímssyni og Guðrúnu Katrínu Þórbergsdóttur á Alexandersflugvelli í júlí 1997 er þau komu á afmælishátíð á Sauðárrkróki. Fjær standa fulltrúar Sauðárkróksbæjar.
Forsetahjónin þau Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir á afmælishátíð Sauðárkróks í júlí 1997. Á myndinni eru þau á gangi í Aðalgötunni.
Forsetahjónin þau Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir á afmælishátíð á Sauðárkróki í júií 1997. Á myndini eru þau á gangi í Aðalgötunni.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands flytur ávarp á afmælishátíð Sauðárkróks á Faxatorgi í júlí 1997. Á bak við er Stefán Guðmundsson alþingismaður lengst t.v. Aðrir óþekkir.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands flytur ávarp á Faxatorgi á afmælishátíð Sauðárkróks í júlí 1997. Á bak við er Stefán Guðmundsson alþingismaður t.v. og Elsa Jónsdóttir bæjarritari t.h.
Eldri borgarar spila í Safnaðarheimilinu. F.v. Sigríður Jóhannesdóttir frá Brúnastöðum, óþekktur, Pála Pálsdóttir Hofsósi og Steingrímur Friðriksson Skr.
Félagar í Kvæðamannafélaginu Iðunni heimsóttu Skagafjörð ásamt mökum um Jónsmessuleytið 1992 þar sem þei kváðust á við Skagfirðinga á Löngumýri. Í forgrunni á myndinni má þekkja Sveinbjörn Beinteinsson alsherjargoða (með alskegg).
Rúnar Gíslason rútubílstjóri bauð eldri borgurum í Skagafirði til skemmtiferðar sumarið 1995 þar sem farið var til Hveravalla. Um 110 manns voru í ferðinni og fararstjóri var Sigmundur Pálsson. Myndin tekin framan við Miðgarð. Bílstjórarnir í ferðinni eru fremstir. F.v Ingimar Ástvaldsson, Sigurður Björnsson, Hreinn Þorvaldsson, Rúnar Gíslason og (Agnar Búi Agnarsson).
Útibú Búnaðarbankans á Sauðárkróki tók í notkun nýtt og endurbætt húsnæði við Faxatorg í mars 1998. Af því tilefni var efnt til karnivalhátíðar þar sem Snæfinnur og Snædís heilsuðu upp á unga fólkið.
Kaupfélag Skagfirðinga bauð lífeyrisþegum Samvinnulífeyrissjóðsins í Skagafirði í sumarferð í júlí 1995. Farið var til Siglufjarðar og Fljótin skoðuð, komið við í Lónkoti þar sem verið var að afhjúpa minnisvarða um Sölva Helgason.
Ferðaþjónustufyrirtækið sem rak Glaðheima á Blönduósi bauð m.a. upp á dorgveiði gegnum ís á Blöndulóni. Myndin er tekin af Pétri Inga Björnssyni og birtist með frétt á baksíðu Feykis 1. nóvember 1995.
Í Bifröst, frá vinstri; Ari Björn Sigurðsson (1973-), Pétur Örn Erlingsson (1975-), Garðar (sonur Heru í bankanum), Atli Björn Þorbjörnsson (1976 -), Ellert Jóhannsson (1973-) og Sigurlaug Gunnarsdóttir (1974-).
Á þorrablóti í Miðgarði 1998. Borð Álftagerðis. F.v. María Pétursdóttir (1968-), Elísabet Petrea Ögmundsdóttir (1948-), Herdís Pétursdóttir (1948-) og Ólöf Arna Pétursdóttir (1973-).
Kiwanisklúbburinn Drangey færði vistheimili sérdeildar Gagnfræðaskóla Sauðárkróks gafabréf að verðmæti 300 þúsund krónur í apríl 1993. Á myndinni er Aðalheiður Reynisdóttir þroskaþjálfi og umsjónarmaður sérdeildarinnar að taka við gjafabréfinu frá Stefáni P Stefánssyni formanni Drangeyjar. Til vinstri við Aðalheiði er Árni Heiðar Bjarnason.
Hluti af hópi fólks úr íþróttafélaginu Grósku í Skagafirði með verðlaunagripi sem þeir unnu á Íslandsmóti Íþróttasambands fatlaðra sem fram fór í íþróttahúsinu í Kaplakrika í Hafnarfirði í mars 1993. Alls fóru 13 keppendur en þeir kepptu einungis í boccia.
Í september 1992 tók til starfa að Dalatúni 6 vistheimili við sérdeildina í Gagnfræðaskóla Sauðárkróks. Umsjónamaður var Aðalheiður Reynisdóttir og er hún fjórða frá hægri á myndinni. FJórði frá vinstri er Árni Heiðar Bjarnason.
Tilg. Félagar úr Grósku, íþróttafélagi fatlaðra í Skagafirði. Þekkja má f.v. Ragnar Berg Ágústsson (í hjólastól), Kristján Viðarsson (bak við Ragnar), Steinar Björnsson fyrir miðju (í hjólastól) og Valdimar Björnsson við borðsendann t.h.
Nemendur sérdeildar Gagnfræðaskóla Sauðárkróks fá afhent endurskinsmerki frá Kiwanisklúbbnum Drangey í desember 1993. Aftast eru Ólafur Jónsson forseti Kiwanisklúbbsins t.v. og Sveinbjörn Ragnarsson lögregluþjónn.
Íslandsmót í boccia í íþróttahúsinu á Sauðárkróki í október 1999 á vegum Íþróttasambands fatlaðra. Á myndinni eru sigurvegarar í rennuflokki. f.v. Ívar Ö. Guðmundsson ÍFR 2. sæti, Sveinbjörn Gestsson ÍFR 1. sæti og Aðalheiður Bára Steinsdóttir Grósku 3. sæti.
Tilg. Álfadans um áramót 1996-97 undir handleiðslu hjónanna Jóhönnu Karlsdóttur og Karls Bjarnasonar. Dansað var við álfabrennur á þrem stöðum þ.e. Hofsósi, Sauðárkróki og Varmahlíð .
Tilg. Álfadans um áramót 1996-97 undir handleiðslu hjónanna Jóhönnu Karlsdóttur og Karls Bjarnasonar, en dansað var við álfabrennur á þrem stöðum þ.e. Hofsósi, Sauðárkróki og Varmahlíð.
Gerð svæðisskipulags fyrir Skagafjörð hafin í júní 1995. Bjarni Jónsson (1965-) sagnfræðingur , Jóhanna Lára Pálsdóttir (1968-) landfræðingur , Páll Snævar Brynjarsson (1965-) stjórnamálafræðingur voru meðal starfsmanna Lendis sem unnu að gerði hins umfangsmikla skipulags fyrir Skagafjörð , sem lauk í árslok 1997.
Tilg. Fundur á Heilbrigðisstofnun Skagfirðinga. Fjær f.v. Friðrik J. Friðriksson (1923-2011) , læknir á Sauðárkróki, Ólafur Ólafsson (1928-) landlæknir og Ingibjörg Pálmadóttir (1949-) heilbrigðisráðherra.