Skólalúðrasveit og dansarar frá Kongsbergi vinabæ Sauðárkróks í Noregi á Sauðárkróki sumarið 1994. Lúðrasveitin lék víða um bæinn og endaði í 30 ára afmælisveislu Búnaðarbankans við Faxatorg.
T.v. við borðið má þekkja Reyni Barðdal og Guðmund Óla Pálsson og hægra megin eru Birgir Gunnarsson nær og Rögnvaldur Guðmundsson fjær. Óþekkt samkoma.
Óþekkt samkoma. við borðið til vinstri má þekkja f.v. Drífu Jónatansdóttur (sést að hluta), Birgittu Pálsdóttur, Guðrúnu Sölvadóttur og Guðmund Ragnarsson.
Fundur um skipulagsmál í Miðgarði sumarið 1996. Í ræðustóli er sennilega Páll Zophaníasson ráðgjafi samvinnunefndar. Magnús Sigurjónsson framkvæmdastjóri Héraðsnefndar er lengst t.v. Sigurður Haraldsson Grófargili er fjærst (ber í vegginn). Konan við borðið fjær gæti verið Guðrún Halla Gunnarsdóttir frá Skipulagi ríkisins og Árni Ragnarsson ráðgjafi samvinnunefndar til vinstrii við Guðrúnu. Aðrir óþekktir.
Kvenfélagskonur í Skagafirði halda basar. Frá vinstri eru Pálína Skarphéðinsdóttir Gili, Ingibjörg Jóhannesdóttir Mið-Grund, Sigríður Eiríksdóttir Dýrfinnustöðum og Ingibjörg Jóhannesdóttir Ketu. Aðrar óþekktar.
Minnisvarði um bræðurna á Víðivöllum, Pétur Pétursson biskup, Jón Pétursson háyfirdómari og Brynjólfur Pétursson Fjölnismaður. Víðivellir er bær í Blönduhlíð í Skagafirði, gamalt höfuðból þar sem oft bjuggu höfðingjar, til dæmis ýmsir sýslumenn Skagafjarðarsýslu. Kirkja var á Víðivöllum til forna en var aflögð 1765. Dálítill jarðhiti er á tveimur stöðum í landi jarðarinnar og þar var steypt upp sundlaug árið 1937-38 og var notuð til sundkennslu fram yfir 1960 en nýtt eitthvað lengur til sunds. Eyðibýlið Örlygsstaðir er í landi Víðivalla. Þar var Örlygsstaðabardagi háður 21. ágúst 1238 og er talið að þar hafi barist hátt í þrjú þúsund manns. Minnisvarði um bardagann var afhjúpaður 21. ágúst 1988, 750 árum eftir að hann var háður. Á Víðivöllum fór fram síðsta aftaka í Skagafirði 1789. Var þar hálshöggvin kona úr Fljótum sem hafði fætt barn sumarið áður, fyrirkomið því og grafið. Frá 1809-1842 bjó þar Pétur Pétursson prófastur með Þóru Brynjólfsdóttur konu sinni og þar ólust upp synir þeirra, þeir Jón Pétursson háyfirdómari, Pétur Pétursson biskup og Brynjólfur Pétursson Fjölnismaður, um skeið forstöðumaður íslensku stjórnardeildarinnar í Kaupmannahöfn , oft nefndir Víðivallabræður. Minnisvarði um bræðurna var reistur skammt frá bænum 1998. Í Íslandsheimsókn Kristjáns konungs 10. sumarið 1936 kom hann við á Víðivöllum ásamt fylgdarliði og borðaði hádegisverð í tjaldi á Víðivallatúni. Dr. Sturla Friðriksson t.v. á myndinni flytur hátíðarræðu, en hann var einn af hvatamönnum þess að minnisvarðinn var reistur.
Skíðaskálinn á Skagaströnd tekinn í notkun vorið 1985. Á myndinni f.v. Lárus Ægir Guðmundsson, (Magnús B. Jónsson), Stefán Guðmundsson, óþekktur og Páll Pétursson.
Ungmennafélagið Fram setti upp útsýnisskífu á Reykjarhólnum ofan Vatmahlíðar sumarið 1996. Við skífuna standa Alexandra Sif Jónsdóttir og Valgeir Örn Kristjónsson.
Tilg. Flösku- og dósasöfnun. Tekið við Kirkjutorg á Sauðárkróki allar stúlkurnar fæddar árið 1980. Kristrún og María Sigurðardætur eru í bláu úlpunum, Vala Frímannsdóttir á milli þeirra og Margrét Erla Haraldsdóttir.
Nemendur Akraskóla við sláturgerð haustið 1996. Inga Dóra Þórarinsdóttir, Frostastöðum og Elma Hrönn Þorleifsdóttir, Þorleifsstöðum. Samskonar myndir nr 461, 464 og 910-914.
Norræni vísnasönghópurinn "Pólarkvartettinn" hélt tónleika á Hótel Mælifelli sumarið 1996. Kvartettinn skipuðu Per Jensen frá Danmörku, Kalla Zwilgmeyer frá Noregi, Arto Rintamakt frá Finnlandi og Kell Aronsson frá Svíþjóð.
Söngvararnir fjórir eru f.v. Jón Gunnlaugsson, Guðmundur Ragnarsson, Magnús Sigmundsson og Jóhann Már Jóhannsson. T.v. situr Drífa Jónatansdóttir (röndótt peysa). Tilefnið óþekkt, gæti tengst skátunum.
F.v. Guðný Axelsdóttir, María Gréta Ólafsdóttir og Katrín María Andrésdóttir. Tilefnið ekki vitað. Hópurinn fór fyrir hönd Leikfélags Sauðárkróks að skemmta með Karlakórnum Heimi, þetta var vorið 1991, sama vor og LS sýndi Köttur á heitu blikkþaki.
Sigursveit Jóns Sigurbjörnssonar á Norðurlandsmótinu í brids á Sauðárkróki í nóvember 1995. F.v. Sigurbjörn Bogason frá VÍS, Björk Jónsdóttir, Ólafur, Ingvar og Steinar Jónssynir, Jón Sigurbjörnsson og Kristján Blöndal keppnisstjóri.
Verðlaunasveitir Grósku frá Sauðárkróki á Íslandsmótinu í boccia í mars 1996. C-sveitin vann í opnum flokki og B-sveitin varð í þriðja sæti. Fremri röð, sigurvegararnir f.v. Rökkvi Sigurlaugsson, Pétur Steinarsson og Kristján Viðarsson. Aftari röð, bronssveitin f.v. Kristján Hansen , Magnús Jónasson og Friðrik Jónsson.
Útskrift stúdenta frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Jón Hjartarson skólameistari fyrir miðju í fremstu röð. Hallgrímur Eymundsson þriðji frá vinstri í fremstu röð.
Jón Arnar Magnússon tugþrautakappi kjörinn íþróttamaður Umf. Tindastóls og Sauðárkróks 1995. Þess má og geta að hann var jafnframt íþróttamaður ársins í kjöri íþróttafréttamanna. Á myndinni er Páll Ragnarsson formaður Tindastóls t.v. að heiðra Jón Arnar í hófi sem haldið var honum til heiðurs í janúar 1996.
Jón Arnar Magnússon frjálsíþróttamaður úr Tindastóli var kjörinn íþróttamaður ársins 1995. Með honum á nyndinni er kona hans Hulda Skúladóttir og sonurinn Krister Blær.
Útibú Búnaðarbankans á Blönduósi gaf Umf. Hvöt keppnisbúninga 1996. Sigurði Kristjánssyni útibússtjóra var jafnframt færður skjöldur frá Hvöt sem þakklætisvottur til útibúsins.
Á myndinni eru f.v. Guðmundur Haraldsson , Sigurður Kristjánsson útibússtjóri, Fanney Kristjánsdóttir knattspyrnukona og Vilhjálmur Stefánsson.
Sjálfsbjörg stóð fyrir samkeppni meðal 6. bekkjar nema grunnskóla á Norðurlandi vestra, Vestfjörðum og Vesturlandi síðla vetrar 1996. undir kjörorðinu "Þjóðfélag án þröskulda" Á myndinni eru f.v. 1. v. Elsa Kristín Arnardóttir Hunavallaskóla, 2.v. Kolbeinn Aðalsteinsson Grunnskóla Siglufjarðar, 3.v. Kristín Birgisdóttir Húnavallaskóla. Þá hlaut Rakel Gísladóttir verðlaun fyrir mynd sem hún sendi í keppnina.
Unglingavinna á Sauðárkróki 1987. Þökulagning í Hlíðarhverfi. Frá vinstri, Ingvar Ormsson (1974-), Kristján Kristjánsson (1973-) Sveinn H. Guðmundsson og Valdimar Birgisson (1974-).
Sumarið 1995 gekkst Kiwanishreyfingin fyrir kynningarátaki á svokölluðum eiturlyfjavísi í baráttunni til varnar eiturlyfjum. Af því tilefni hjóluðu 4 ungir menn umhverfis landið og afhentu eiturlyfjavísinn á mörgum þéttbýlisstöðum. Á myndinni er Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri að veita vísinum viðtöku, framan við Ráðhúsið á Króknum. Þekkja má Daníel Sighvats með hundinn. Hjalti Guðmundsson t.h. við Daníel, þá Jónas Snæbjörnsson og framan við Jónas er Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri. Bak við Daníel sér í Stefaníu Stefánsdóttur.
Saumasmiðjan á Skagströnd í febrúar 1996, en í desember 1995 voru fimm ár liðin frá stofnun Saumasmiðjunnar. Á myndinni er verið að sauma norsku peysurnar.
Frá aflraunakeppni sem haldin var að Bjargi í Miðfirði í ágúst 1998. Grettishátíð. Keppendur f.v. Auðunn Jónsson, Ryan Wierra frá Bandaríkjunum (heimsmeistari í Hálandaleikum), Sæmundur Á Sæmundsson og Hjalti "Úrsus " Árnason.
Tilg. Frá afhjúpun minnisvarða um Sigurð Jónasson varðstjóra í Laugabrekku í Varmahlíð 1996, en hann var jafnframt forstöðumaður skógræktarstöðfarinnar í Varmahlíð.
Sigurvegarar í opnum flokki á skákþingi Norðurlands 1994. Frá vinstri, Matthías Keld 5,5v, Rúnar Sigurpálsson 5,5v og Stefán Andrésson 5v. Stefán er frá Bolungarvík og Matthías frá Reykjavík og kepptu þeir sem gestir. Fjær t.v. er Haraldur Hermannsson.
Frá afhjúpun minnisvarða um Sigurð Jónasson varðstjóra að Laugabrekku í Varmahlíð 1996, en hann jafnframt forstöðumaður skógræktarstöðvarinnar í Varmahlíð.
Frá ársþingi SSNV sem haldið var á Löngumýri sumarið 1996. Sigurður Tómas Björgvinsson (t.h.) starfsmaður kynningarmiðstöðvar Evrópurannsókna kynnir úrbætur í atvinnumálum í kjördæminu. Hinir eru Agnar Gunnarsson t.v. og Sveinn Allan Mortens.