Aðalfundur sambands skagfirskra kvenna var haldinn á Ketilási vorið 1985. Mynd með fréttinni í Feyki, frá félagsmálanámskeiði á vegum Sambands skagfirskra kvenna. "Félögin hafa staðið fyrir ýmsum gagnlegum og skemmtilegum námskeiðum að undanförnu," dsegir í frétt í Feyki. F.v. Kristín Jóhannsdóttir (sést að hluta), Margrét Jenny Gunnarsdóttir (1947-), Lovísa Símonardóttir (1948-), Aðalheiður Rut Arnórsdóttir (1944-), óþekkt og Helga Sigurbjörnsdóttir.
Frá sameiginlegum fundi Verkakvennfélagsins Öldunnar og Verkamannafélagsins Fram í Bifröst vorið 1988 þar sem kjarasamningur verkalýðsfélaganna á norðurlandi annars vegar og Vinnuveitendasambands Íslands og Vinnumálasambands Samvinnufélaganna hins vegar voru samþykktir. Frá vinstri: Jórun Guðmundsdóttir og Margrét Pétursdóttir frá Vesturhlíð, óþekkt, Auður Vilhelmsdóttir, Björg Pálsdóttir, Anna Guðbrandsdóttir og Kristín Jóelsdóttir.
Konur úr Kvenfélagi Sauðárkróks afhentu vorið 1990 gjöf til Sjúkrahúss Skagfirðinga. Húsgögn í setustofu sjúkradeildar að verðmæti rúmrar hálfrar milljónar. Myndin var tekin af kvenfélagskonunum, stjórn sjúkrahússins og starfsfólki við þetta tækifæri. Sitjandi f.v. Sigmundur Pálsson (1932-2003), Ólafur Sveinsson (1927-), Gunnar Hörður Ingimarsson (1943-), Jón Guðmundsson (1931-), Sæmundur Hermannsson (1921-2005), Steingrímur Vilhjálmsson, Óskar Jónsson (1943-), standandi f.v. Jónína Hallsdóttir (1957-), Guðrún Sigríður Andrésdóttir (1929-2013), Helga Sigurbjörnsdóttir (1943-), óþekkt, Helena Magnúsdóttir (1930-), Camilla Jónsdóttir (1938-) og óþekkt.
Drangey. Ljósmyndari Feykis var þarna á ferð í ágúst 1994. Í bátnum t.v. er Jón Eiríksson "Drangeyjarjarl" og Pétur Eiríksson en hann þreytti Drangeyjarsund árið1936.
"Börnin á "Kisudeild" Leikskóla Sauðárkróks fóru "út í bæ". Kannski að þau hafi ætlað að líta á sumartískuna í búðargluggunum og fá sér stuttbuxur," segir í Feyki 4. júní 1982. Sá með loðhúfuna er líklega Valtýr Kári Finnsson. Önnur frá hægri er Anna María.
Leikskólinn við Víðigrund á Sauðárkróki. Ljóshærða stúlkan er Harpa Vigfúsdóttir, sú í húfunniTinna Haraldsdóttir og í sandkassanum er Ólafur Hreiðar Harðarson.
Árshátíð Varmahlíðarskóla 1982. Frá vinstri: Guðrún Sigurjónsdóttir frá Holtskoti (með bllokkflautu), Una M. Guðjónsdóttir Varmahlíð, Anna Sigrún Ólafsdóttir frá Álftagerði, Ásta Nína Benediktsdóttir frá Vatnsskarði, Svanhildur Pálsdóttir, Gunnar Árnason frá Marbæli og Arnar Guðmundsson frá Fjalli. Lengst til vinstri í aftari röð er Selma Reynisdóttir
Grillveisla í Víðihlíð, 26.8.1987. Konan sem er önnur frá vinstri er Guðfinna Gunnarsdóttir (1942-2012) Myndin er tekin á lóðinni hjá Jóni Snædal í Víðihlíð 15. Anna Lára Írisar-Friðfinnsdóttir stendur við hlið Guðfinnu og Herdís Ósk Baldvinsdóttir krýpur vinstra megin við hana. Lísa Dröfn Harðardóttir (fyrir miðju með bogin hnén). Stúlkurnar þrjár lengst til hægri eru (talið frá hægri): Sesselja Barðdal, Eygló Óttarsdóttir og Guðrún Jónasdóttir, Þær bjuggu í Víðihlíðinni, eins og Guðfinna.
Berglind Bjarnadóttir tekur við viðurkenningu úr hendi Sveinbjörns Njálssonar formanns UMSS á ársþingi sambandsins í Höfðaborg á Hofsósi í mars 1988. Breglind var kjörin íþróttamaður ársins árið 1982.
50 ára afmæli Höfðahrepps í ágúst 1989 Leikskólabörn á Skagaströnd skemmta. Konan með gítarinn er Guðrún Hrólfsdóttir hin konan er Bóel Hallgrímsdóttir. Börnin, frá vinstri: Rúna Sævarsdóttir, Óðinn Guðmundsson, Ragnar Stefán Rögnvaldsson, 4 óþekkt, Elva Ösp Gunnarsdóttir, Heiða Berglind Fannarsdóttir, Jenný Lind Sigurjónsdóttir og Tinna Björk Gunnarsdóttir.
Starfskynning í grunnskólanum á Króknum í nóvember 1987. Þessar ungu og hressu stúlkur úr 9. bekk voru á rölti á milli fyrirtækja í bænum og þótti tilvalið að smella af þeim mynd er þær fóru framhjá ritstjórnarskrifstofu Feykis. Aftari röð frá vinstri; Dóra Ingibjörg Valgarðsdóttir (1972-), Svana Berglind Karlsdóttir (1972-), Bryndís Birgisdóttir (1972-), Hrafnhildur Jónsdóttir (1972-1993), Guðrún Björk Baldursdóttir (1972-), Ásdís Kristjánsdóttir (1972-), Sigrún Baldursdóttir (1972-) og Heiðdís Lilja Magnúsdóttir (1972-). Fremri röð f.v. Þórey Gunnarsdóttir (1972-), Sigurlaug Reynaldsdóttir (1972-), Kristín Þöll Þórsdóttir (1972-) og óþekkt.
Tindastólsstrákarnir í 5. flokki A, urðu að láta sér lynda annað sætið í sínum flokki árið 1993 á Króksmóti í fótbolta. F.v. Björn Björnsson þjálfari, óþekktur, Þorsteinn Lárus Vigfússon (1981-), Þorsteinn Hjálmar Gestsson (1982-), Stefán Arnar Ómarsson (1982-), Helgi Freyr Margeirsson (1982-), Dúfa Dröfn Ásbjarnardóttir (1982-), Árni Vigfússon (1981-) og Haukur Skúlason (1981-).
Bikarmót Tindastóls í sundi 1982. Guðjón Finnbogason fulltrúi Kiwanis ásamt bikarmeisturum ársins 1982, en Kiwanisklúbburinn Drangey Sauðárkróki gaf bikarana. Efri röð f.v. Guðjón Finnbogason, Harpa Zophoníasdóttir (1968-), Þuríður Þorsteinsdóttir (1970-) og Þorgerður Sævarsdóttir (1966-). Neðri röð f.v.: Jón Magnússon, Kristján Kristjánsson og Héðinn Sigurðsson.
Afhending bikars hjá USVH Hvammstanga í janúar 1984 fyrir afrek ársins 1983. Frá vinstri Kristín Eggertsdóttir, bikarhafi í sundi þá Gunnar Sveinsson, Hrafnhildur Brynjólfsdóttir og Hulda Jóhannesdóttir.
Opið hús í Mjólkursamlaginu vorið 1997. F.v. Gunnar Már Ingólfsson (1944-2001), mjólkurfræðingur, Björn Jóhannes Sighvatz (1957-), Sigurdríf Jónatansdóttir (1960-) og Malene Erkmann.
Opið hús í Mjólkursamlaginu vorið 1997. F.v. Gunnar Már Ingólfsson (1944-2001), mjólkurfræðingur, Björn Jóhannes Sighvatz (1957-), Sigurdríf Jónatansdóttir (1960-) og Malene Erkmann.
Björgunarsveitarmenn úr Skagfirðingasveit setja saman rör fyrir göng undir Sæmundarhlíð á Sauðárkróki, til móts við Bóknámshús Fjölbrautaskólans, haustið 1996.
Góður árangur varð af borun eftir heitu vatni í Reykjarhóli við Varmahlíð vorið 1997, þannig að orkugeta Hitaveitu Seyluhrepps þrefaldaðist. Sigurður Haraldsson oddviti Seyluhrepps t.h. á tali við bormennina við holuna góðu í Reykjarhólnum.
Unnið að lagningu hitaveitu úr Varmahlíð yfir í Blönduhlíð sumarið 1998. Frá vinstri: Rúnar Símonarson (1973-), Jósafat Felixson (1934-2008) og Símon Baldur Skarphéðinsson (1950-).
Hitaveita Sauðárkróks var með opið hús í gróðurhúsi sínu í Sauðármýrum á sumardaginn fyrsta árið 1992. Á myndinni má þekkja t.v. Rögnu Jóhannsdóttur og Herdísi Sigurjónsdóttur, þá er Fjóla Þorleifsdóttir í rauðri kápu og Pétur Valdimarsson fyrir miðju. T.h. eru Kristín Jóhannsdóttir og Sigurður Halldórsson.
Vorið 1991 var unnið að langmestu endurbótum á bræðsluofni Steinullarverksmiðjunnar sem gerðar höfu verið. Skipt var um hliðar ofnsins og steinahleðslan í botni hans endurnýjuð. Maðurinn vinstra megin er Jón Garðarsson í Neðra-Ási.
Línubeitning á Hofsósi haustið 1990. Frá vinstri Hjalti Gíslason (1930-2011) Björn Sigurður Ívarsson (1942-1996), Jónas Jónasson og Bragi Vilhjálmsson lengst til hægri.
Beitning á Hofsósi haustið 1990. Nóg að gera í beitningunni þegar fiskast á línuna. Jónas Þorberg Jónasson (1934-2001) í Árveri á Hofsósi fremstur og bak við hann er Hjalti Gíslason (1930-2011).
Skáli skátafélagsins Eilífsbúa sem byggður var af Byggingafélaginu Hlyn tilbúinn til flutnings að Brekku í Seyluhreppi í ágúst 1990. Björn Guðnason á gangi framan við skálann.
Unnið við uppslátt að grunni íbúðarhúss við Brekkutúni á Sauðárkróki vorið 1993, en þá hafði lifnað verulega yfir byggingaframkvæmdum á Króknum eftir litlar byggingaframkvæmdir undanfarin ár.
Tilg. Lionsmenn að helluleggja stéttina framan við Búnaðarbankann. F.v Friðrik Jónsson (Fíi), Jón Dalmann, Hannes Helgason (beygir sig), Sveinn Árnason, tveir rauðklæddir óþekktir og Guðmann Tóbíasson lengst t.h.
Einar Guðmannsson og Guðmundur Svavarsson smiðir á Trésmiðjunni Ýr lagfæra þakið á Pálmalundi (Ólafshúsi) vorið 1992. Sér á bak Pálma Þórðarsyni eiganda Pálmalunds.
Framkvæmdir við byggingu Bóknnámshúss Fjölbrautaskólans eru þarna komnar vel í gang en í ágúst 1991 var tekið á móti fyrstu steypu í húsið. og voru það fimm rúmetrar sem fóru í undirstöður undir sökkla.
Mynd með frétt í Feyki 13. okt. 1993 þar sem gagnrýnt var að bygging þriggja íbúða í félagslega kerfinu var ekki boðnin út heldur samið við Friðrik Jónsson sf, Frá vinstri: Reynir Pálsson, Varmahlíð, Helgi Ingimarsson (1972-), Sauðárkróki og Óli Sigurjón Pétursson (1962-), Sauðárkróki.
Biskup Íslands í heimsókn á Sauðárkróki, Fiskiðjan heimsótt. F.v. Signý Bjarnadóttir (1949-), Ebba Guðrún Brynhildur Sigurðardóttir (1935-), Sigríður Ragnarsdóttir (1958-), Hjálmar Jónsson (1951-), Ólafur Skúlason (1929-2009), Baldvina Þorvaldsdóttir (1931-2007), Sigríður Jóhannsdóttir (1945-2001) og Magnús Erlingsson.
Tilraunavinnsla á ígulkerjahrognum hjá hlutafélaginu ÍSEX á Sauðárkróki í janúar 1993. Grein í Feyki 27/1 1993. Önnur frá vinstri er Anna Guðbrandsdóttir (með svarta hanska). Hægri megin er Svanur Fannberg (með gleraugu).
Tilraunavinnsla ígulkerjahrogna hófst hjá hlutafélaginu ÍSEX á Sauðárkróki í janúar 1993. Lengst til hægri er Svanur Fannberg Jóhannsson (1937-2001), Aðrir óþekktir.
Tilraunavinnsla ígulkerjahrogna hjá hlutafélagonu ÍSEX á Sauðárkróki í janúar 1993. Annar frá hægri er Svanur Fannberg Jóhannsson (1937-2001). Aðrir óþekktir.
Rækjuvinnsla á Skagaströnd. Frá vinstri: Sigrún Guðmundsdóttir framar og María Alexandersdóttir aftar. Ásta Ýr Ásgeirsdóttir framar til hægri og Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir aftar til hægri.
Myndin tekin í vinnslusal Fiskiðjunnar á Sauðárkróki. Jónas Snæbjörnsson (1951-) forseti bæjarstjórnar t.v. og Snorri Björn Sigurðsson (1951-) bæjarstjóri.
Starfsstúlkur Fiskiðjunnar vinna fiskbita í pakkningar til verslanakeðja í Belgíu. Fremst og lengra til vinstri er Birna Davíðsdóttir, þá Steinunn Rósa Guðmundsdóttir og lengst til hægri Soffía Aðalsteinsdóttir. Grein í Feyki 7/12 1994 um fjöldauppsagnir hjá Fiskiðjunni.
Rækjuvinnsla að hefjast að nýju í Dögun Sauðárkróki í febrúar 1994 eftir stopp vegna lagfæringar á vinnslusal. Grein í Feyki 9/2 1994. Fremst vinstra megin er Guðbjörg Elsa Helgadóttir og við hlið hennar Sigurlaug Viðarsdóttir. Á móti Guðbjörgu er Aðalheiður Aradóttir.
Starfsfólk Landsbankans á Sauðárkróki og fulltrúar bankans við opnun útibúsins að Suðurgötu 1 í febrúar árið 1991. Í fremri röð Þórunn Jónasdóttir, Hrefna Þórarinsdóttir, og María Lóa Friðjónsdóttir, afgreiðslustúlkur útibúsins og Jóhann Ólafsson fulltrúi í Samvinnubankanum. Í aftari röð eru Gunnlaugur Sigmarsson, Landsbankanum á Skagaströnd, Pétur Erlendsson fyrrv. aðstoðarbanakastjóri Samvinnubankans, Sigmundur Guðmundsson útibússtjóri Landsbankans á Sauðárkrók, Geir Magnússon fyrrv. bankastjóri Samvinnubankans og Guðjón Guðjónsson fulltrúi Samvinnubankanum.