Mynd tekin í fjörunni í Drangey í ágúst 1994. Frá vinstri, Jón Eiríksson (1929-) "Drangeyjarjarl" og svo þrír Drangeyjarsundkappar, þeir Eyjólfur Jónsson, synti 1957 og 1959, Axel Kvaran synti 1939 og Pétur Eiríksson sem synti 1936.
F.v. Guðbrandur Gústafsson (Gaui Gústa), Siglufirði, Hermann Jónsson frá Lambanesi og Sturlaugur Kristjánsson (Stulli) Siglufirði. Myndin er tekin í félagsheimilinu Ketilási í Fljótum.
Ný kirkja rís á Blönduósi. Séra Árni Sigurðsson tekur fyrstu skólfustunguna í júlí 1982. Fé til kirkjubyggingarinnar kom frá sóknarbörnum og var sérstaklega að getið erfðagjafar frá Árna Óla og konu hans Önnu Guðrúnu Guðmundsdóttur.
Hólahátíð 1987. Á myndinni má þekkta sr Hjálmar Jónsson (3 f.v.), sr Döllu Þórðardóttur (við bílinn, horfir í myndavélina) og sr Gísla Gunnarsson (aftastur, með gleraugu).
"Þessi farartæki njóta orðið mikilla vinsælda hjá hestamönnum," segir í grein í Feyki. Myndin var tekin af fyrirfólki á ískappreiðum á svæði Léttfeta í mars 1990.
Ískappreiðar á Hópsvatni síðla vetrar 1988. F.v. Sigurður Pálmi Rögnvaldsson (1949) á Óðni, Sigurbjörn Þorleifsson á Glanna (1944-2011) og Símon Gestsson (1944-2018) á Steinku hampar bikarnum.
Tilg. Frá hestamannamóti á Vindheimamelum um verslunarmannahelgina 1987. Frá vinstri: Olil Amble á Snjalli frá Gerðum, Sveinn Ragnarsson á Hring frá Húsey, Barbara Meyer, Sigurbjörn Bárðarson og Sævar Haraldsson.
Veiðifélag Miðfirðinga var með merka fiskifræðitilraun í Núpsá í Vestur-Húnavatnssýslu sumarið 1987, þar sem reynt var að komast að því hvað veldur sveiflum í laxagengd.
Hjónin á Búrfelli í Miðfirði, þau Sigurbjörg Geirsdóttir og Jón Eiríksson í fjósinu, en kúabú þeirra var afurðahæsta bú landsins pr. grip árið 1989 og næst hæst 1990. Óþekktur lengst t.h.
Mynd með frétt um ferð veiðieftirlitsmanns vorið 1993 á vatnasvæði Miðfjarðarár og sjávarströnd Miðfjarðar. Pétur Brynjólfsson, Hólalaxi (situr) o.fl. að fanga klakfisk úr Vatnsdalsá.
"Þó að flestir séu sjálfsagt orðnir hundleiðir á snjónum, framkallar nýfallin mjöllin oft skemmtilegar myndir," skrifar Þórhallur Ásmundsson í mars 1990.
Norsku skíðakappi, Pal Gunnar Mikkelsen. Myndin er tekin á Bjarnargili í Fljótum árið 1992. Pal Gunnar er fyrrverandi landsliðsmaður Noregs í skíðagöngu og núverandi þjálfari Therese Johaug.
Drangey. Ljósmyndari Feykis var þarna á ferð í ágúst árið 2000 en þá messaði hr. Karl Sigurbjörnsson biskup í eynni í blíðskaparveðri fyrir um hundrað manns.
Fiskvinnsla hjá Skildi á Sauðárkróki. Frá vinstri: Hallfríður Jóhanna Sigurðardóttir frá Holtsmúla, Eyrún Þorleifsdóttir og Íris Baldvinsdóttir. Sú sem snýr baki (á móti Írisi) er óþekkt.
Atriði í sýningunni "Til móts við íslenska hestinn" sem var á Vindheimamelum sumarið 1992. Söngurinn er nátengdur hestamennskunni. Frá vinstri Sigríður Einarsdóttir, Björn Sveinsson, Ingimar Ingimarsson, Sigurjón Jóhannesson og Magnús Sigmundsson.
Hestasýningin "Til móts við íslenska hestinn" sem var á Vindheimamelum sumarið 1992. F.h. Björn Sveinsson (1952-), Varmalæk, Páll Bjarki Pálsson (1959-), Flugumýri, óþekkt, Jóhann Magnússon og Elvar Eylert Einarsson (1972-), Skörðugili. Sama mynd og no 1832.
Hestamót Svaða á Hofgerðisvelli 1992. B-flokkur gæðinga. F.h. Djákni frá Sleitustöðum og Þórir Jónsson (1966-2011), Óslandi, Mollý frá Minni-Brekku og Símon Ingi Gestsson (1944-2018) frá Barði, Öðlingur frá Barði og Egill Þórarinsson (1960-), Lyfting frá Hofsósi og Gunnar Jón Eysteinsson (1963-) og Stóri-Brúnn frá Óslandi og Rögnvaldur Óli Pálmason (1969-). Þórir og Djákni sigruðu og var Þórir jafnframt kosinn maður mótsins.
Hestamót Hestamannafélagsins Svaða á Hofgerðisvelli 1992. A-flokkur gæðinga. F.h. Trix frá Gröf og Þórir Níels Jónsson (1966-2011) frá Óslandi, Kóróna frá Sigríðarstöðum og Egill Þórarinsson (1960-), Flosi frá Brekkukoti og Sigurbjörn Þorleifsson (1944-2011) Langhúsum, Gríma frá Sigríðarstöðum og Þórarinn Arnarson (1973-), og Ljúfur frá Gerðum og Gísli S. Hallldórsson. Jón Guðmundsson (1931-) frá Ósland (t.h). og Símon Ingi Gestsson (1944-2018) frá Barði afhenda Þóri og Trix verðlaun en þeir sigruðu.
Gæðingarnir teknir til kostanna. Hestasport stefndi að hestasýningum á Vindheimamelum sumarið 1992 á Vindhiemamelum. "Til móts við íslenska hestinn". Þetta er sýningarflokkurinn sem vann að markaðssetningu íslenska hestsins á Vindheimamelum. F. h. Björn Sveinsson, Varmalæk, Páll Bjarki Pálsson, Flugumýri, óþekkt, Jóhann Magnússon og Elvar Einarsson (1972-).
Hestasport stefndi að hestasýningum á Vindheimamelum sumarið 1992 fyrir ferðamenn."Til móts við íslenska hestinn". Þetta er sýningarflokkurinn sem vinnur að markaðssetningu íslenska hestsins á Vindheimamelum. F.h. Björn Sveinsson Varmalæk , Páll Bjarki Pálsson Flugumýri , óþekkt, Jóhann Magnússon og Elvar Einarsson (1972-).
Heimsókn í tamningastöðina í Garðhúsum í mars 1989. Frá vinstri: Jón Ágúst Jónsson, Egill þórarinsson, Susan Hanauer og Ingimar Ingimarsson á Ytra-Skörðugili.
Sjómannadagur á Króknum vorið 1997. Það var ekkert gefið eftir í koddaslagnum á Króknum og það var ekkert til sparað að koma félaganum í sjóinn. Í bátnum situr Hreiðar Örn Steinþórsson (1977-), hinir óþekktir.
Kristinn Einarsson frá Akranesi að loknu Drangeyjarsundi í ágúst 1994. Björn Sigurður Jónsson (1969-) frá Fagranesi t.v. og Bragi Halldórsson félagi Kristins frá Akranesi styðja sundkappann uppúr fjörunni fyrir neðan Grettislaug.
Nýr 14 tonna bátur Bergey SK 7 kom til Hofsós í nóvember 1997. Eigendur Uni Pétursson og synir. Frá vinstri: Uni Þórir Pétursson (1949-) Þiðrik Hrannar Unason (1974-) Reginn Fannar Unason (1984-) Þorgrímur Ómar Unason (1965-) Kristinn Uni Unason (1972-) Pétur Arnar Unason (1968-).
Steinullarverksmiðjan í nóv. 1994. Útlit fyrir taplaust ár og 15% söluaukningu milli ára. Stefán Ragnar Ragnarsson (1970-) t.v. Hinn óþekktur. Frétt í Feyki.
Steinullarverksmiðjan í nóvember 1994. Útlit fyrir taplaust ár og 15% söluaukningu milli ára. Frétt í Feyki í nov. 1994. Stefán Ragnar Ragnarsson t.v. Hinir óþekktir.
Tilg. Netagerð (splæsing) í Fjölbrautaskólanum. F.v.: Höskuldur Búi Jónsson frá Drangsnesi, Perla Hafsteinsdóttir, Snæbjörn Valbergsson (1973-) frá Sólgörðum í Fljótum og Atli Þór Þorgeirsson, Maðurinn lengst til hægri er óþekktur.
Gengið niður í Staðarbjargarvík við Hofsós. Þekkja má Jón Guðmundsson hreppstjóra Hofshrepps neðst í tröppunum, Aðalheiður Ormsdóttir þriðja, þá Halldór Þ. Jónsson sýslumann. Efst í tröppunum í ljósum frakka er Þorsteinn Ásgrímsson og Magnús H. Sigurjónsson á brúninni í ljósum frakka.
Skreiðarverkun á Sauðárkróki vorið 1994. Sigurður Helgason verkstjóri lengst til vinstri á myndinni. Það eru mörg handtökin við skreiðina og saltfiskinn. Sigurður Helgason (1941-) Valdimar Örn Matthíasson (1973-) Ari Björn Sigurðsson (1973-).
Japaninn Sima (t. v.) og Guðmundur vekrstjóri skoða afurðir ígulkerjavinnslunnar "Íguls" á Hvammstanga haustið 1993, en það eru hrogn ígulkerjanna sem sóst er eftir og þau flutt til Japan.
Línubeitning á Hofsósi í nóvember 1990. Frá vinstri Valgarð Valgarðsson, Sveinn Einarsson, Jón Jóhann Jónsson, Jón Helgi Pálsson og Jónas Jónasson í Árveri lengst t.h. Svo sér í kollinn á Braga Vilhjálmssyni neðst á miðri mynd.