Úr göngum á Laxárdal fremri haustið 1992 en þá var í fyrsta skipti gestum og fjölmiðlafólki boðið að taka þátt í göngunum. F.v. Haukur Pálsson á Röðli, Sigurveig Jónasdóttir fréttamaður á Stöð 2 og óþekktur.
Tilg. Ársþing SSNV í Miðgarði. F.v. Jón Karlsson, Elín R. Líndal, Björn Sigurbjörnsson, Lárus B. Jónsson, Páll Pétursson alþingismaður, Baldur Valgeirsson og Guðmundur Örn Ingólfsson.
Sjúkrahús Skagfirðinga 90 ára 1996. Frá hátíðarfundi í samkomusal dvalarheimilins í lok nóv, 1996. Í fremstu sætaröð f.v. Herdís Klausen yfirhjúkrunarfræðingur, Elín Pálmadóttir heilbrigðisráðherra, Páll Pétursson félagsmálaráðherra, Ólafur Ingimarsson læknir, Örn Ragnarsson læknir og Birgir Gunnarsson framkvæmdastjóri sjúkrahússins.
Pálmi Jónsson talar á fundi Ræðuklúbbs Sauðárkróks í desember 1997. Rætt var um mannskaðaveðrið á Skagafiði í desember 1935, en þá fórust áhafnir tveggja báta og einn maður var úti, alls 8 menn. T.v. við Pálma eru Magnús Jónsson veðurfræðingur og Anna Kristín Gunnarsdóttir formaður klúbbsins.
Í febrúar 1997 hélt æskulýðs- og íþróttaráð Sauðárkróks boð fyrir félaga úr 4 íþróttafélugum þ.e. Tindastóli, Þrym , Grósku og Golfklúbbi Sauðárkróks, þar sem veittar voru viðurkenningar, jafnfram var Jón Arnar Magnússon útnefndur íþróttamaður ársins. Á myndinni eru f.v. Gísli Sigurðsson frjálsíþróttaþjálfari, Björgvin Eiðsson, Birgir Óli Sigmundsson, Hrafnkell Ingólfsson, Andri Árnason, Arnar Björnsson, Garðar Gunnarsson og Sigurður Karlsson.
Úr leikritinu, Hassið hennar mömmu eftir Dario Fo, sem Leikfélag Sauðárkróks setti upp í Bifröst síðla vetrar 1993 . Ásgrímur Ingi Arngrímsson t.h. hinn óþekktur.
Frá afhendingu reiðhjólahjálma við lögreglustöðina á Sauðárkróki, en Kiwanisklúbburinn Drangey gaf 7 ára krökkum á Króknum reiðhjólahjálma. Sveinbjörn Ragnarsson lögregluþjónn t.v. og Hallur Sigurðsson kiwanismaður t.h. (krýpur).
Sæmundur Hermannsson (t.h.) formaður Bygginganefndar öldrunarheimila afhendir Halldóri Þ. Jónssyni sýslumanni lykla að 6 nýjum íbúðum fyrir aldraða á Hofsósi í maí 1986.
Þátttakendur á námskeiði í markaðssetningu á fiskeldis og sjávarafurðum, sem haldið var á Hólum haustið 1990. Claes Kjaer Mathiesen t.v. og Hinrik Gústaf Ólafsson.
Bára Jónsdóttir Sauðárkróki með fyrsta barn ársins 1997 (18. jan) á fæðingardeildinni á Sauðárkróki. Barnið var stúlka og faðirinn Sigurbjörn Björnsson.
Sýning á gömlum lækningaáhöldum á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki. Fjærst er Jónína Hallsdóttir hjúkrunarfræðingur þá Haflína Björnsdóttir frá Kolkuósi og næst óþekkt.
Sverrir Sveinsson veitustjóri á Siglufirði vildi í janúar 1997 að Héraðsnefnd Skagafjarðar léti gera umhverfismat fyrir iðjuver á Sraumnesi við utanverðan Skagafjörð.
Útskorið Maríulíkneski í Hofsstaðakirkju gert að Sveini Ólafssyni myndskera, gefið kirkjunni í desember 1996 af hjónunum Trausta Árnasyni og Margréti Jónsdóttur.
Álfadans, en ungmennafélugin Tindastóll og Smári voru með álfadans um áramót á árunum 1995 til 2000. Fyrir miðju er Jóhanna Karlsdóttir, en hún kom að þjálfun dansanna. Til vinstri við Jóhönnu er Kristján Runólfsson.
Króksararnir Pálmi Sighvatsson og Óttar Bjarnason bakari hlupu til skiptis á þremur dögum frá Sauðárkróki til Reykjavíkur til styrktar Körfuknattleiksdeild Tindastóls vorið 1991. Mynd af Pálma á hlaupum.
Frá undirritun samnings milli frjálsíþróttadeildar Tindastóls annars vegar og hins vegar afreksmannasjóðs ÍSÍ og bæjarstjóra Sauðárkróks fyrir hönd fleiri aðila. Samningi þessum var ætlað að tryggja Jóni Arnari Magnússyni tugþrautarkappa og þjálfara hans, Gísla Sigurðssyni, laun fram yfir Ólympíuleikana í Sydney árið 2000. Á myndinni eru f.v. Jón Arnar Magnússon, Ellert B. Schram forseti ÍSÍ og Jónas Egilsson varaformaður FRÍ. Frétt í Feyki 29. jan. 1997.
F.v. Guðmundur Ingi Leifsson fræðslustjóri, Jón Dýrfjörð formaður Þroskahjálpar á Norðurlandi vestra og Bjarni Hellemann sálfræðingur ræða stofnun skólaheimilis fyrir þroskahefta á Egilsá haustið 1983, en skólaheimilið tók til starfa þá um haustið.