Hópur sænskra hestamanna heimsótti Skagafjörð í mars 1989. Fóru þeir m.a. í Hóla og til Sveins Guðmundssonar þar sem þeir eru á myndinni ásamt Sveini (glaðbeittum í miðjum hópnum).
Iðnþróunarfélag Norðurlands vestra ásamt knattspyrnudeild Tindastóls stóðu fyrir iðn- og vörusýningu í íþróttahúsinu á Sauðárkróki í júní 1992. 40 sýningarbásar voru á sýningunni og um 1000 manns mættu. T.v. er Halldór Jónsson í bás Hitaveitunnar.
Þátttakendur FNVS í bridges keppni framhaldsskóla sem fram fór á Sauðárkróki í febrúar 1992. Aftari röð f.v Víðir Álfgeir Sigurðsson, Lárus Sigurðsson, Snæbjörn Valbergsson, Ólafur Jónsson, Sigurður J. Gunnarsson, Höskuldur Jónsson og Steinar Jónsson. Fremri röð f.v. Jónas Þ. Birgisson, Sólrún Júlíusdóttir og Jón Sindri Tryggvason. Sveitir FNVS lentu í öðru og sjöunda sæti.
Íslandsflug efndi til kynningar á starfsemi sinni í júní 1997 á Alexandersflugvelli við Sauðárkrók í tilefni þess að þeir voru að hefja áætlunarflug til Sauðárkróks. Áætlað er að hátt í 1000 manns hafi mætt.
Fimmtugs afmæli Pálma Friðrikssonar frá Svaðastöðum í desember 1993 haldið í Ljósheimum. Frá vinstri Pálmi Friðriksson, Ásmundur Pálmason, Aðalsteinn Jakobsson frá Hvammstanga, Friðrik Pálmason, Pálmi Rögnvaldsson (sér á bak), Erlendur Hansen og Örvar Pálmason.
Frá Mjúkísmóti á Holtstjörn neðan Skörðugilsbæjanna, þar sem árlega er haldið ískappreiðamót, alla jafna á þorra. F.v. Sveinn Allan Morthens, Jón Hjörleifsson Kimbastöðum, Einar E. Gíslason Syðra-Skörðugili og Hróðmar Hjörleifsson Kimbastöðum.
F.v. Guðrún Sigurðardóttir Laugabakka, Gísli Júlíusson læknir Hvammstanga og Agnes Magnúsdóttir Hvammstanga. Tilgáta að Gísli læknir sé að láta af störfum.
Tölvufyrirtækið Nýherji hf. gefur Barnaskóla Sauðárkróks Talsjá II, sem notast við talkennslu barna sem eiga örðugt með mál, í ársbyrjun 1995. Á myndinni eru f.v. Gunnar M. Hannesson forstjóri Nýherja, Andrea Dögg Björnsdóttir kennari við Barnaskólann og Bergþóra Ketilsdóttir starfsmaður Nýherja.
Guðmundur Ingþórsson (t. h.) formaður Hjálparsveitar skáta á Blönduósi tekur við 50 þúsund króna ávísun til kaupa á snjóbíl frá Kristófer Sverrissyni formanni Lionsklúbbs Blönduóss i október 1990.
Frá heimsókn fylkisstjóra Manitóba í Kanada, Georg Johnson í Skagafjörð sumarið 1990. þegar hann heimsótti ættingja sína. Á myndinni eru Richard lífvörður hans og Sigríður Friðjónsdóttir sýslufulltrúi. Myndin tekin í veislu á Hótel Mælifelli.
Uppfærsla Leikfélags Hvammstanga á Saumastofunni í leikstjórn Harðar Torfasonar árið 1994. Frá vinstri: Guðrún Jóhannesdóttir, Sigrún Valdimarsdóttir, Kolbrún Jónsdóttir, Helga Hinriksdóttir og Elín Fanndal.
Valdimar Gunnarsson bókmenntafræðingur segir frá skáldverkum Guðrúnar frá Lundi á dagskrá sem tileinkuð var henni í Bifröst í vetrarbyrjun 1996, en Valdimar hafði skrifað lokaritgerð um Dalalíf Guðrúnar.
Steinn Ástvaldsson (t.v.) og Róar Jónsson starfsmenn bæjarins (Skr.) við ruslahrúgu sem varðskipið Týr skildi eftir á hafnargarðinum við brottför í mars 1994.
Hljómsveitin Herramenn sem starfaði á árunum ca 1992-1995. F.v. Arnar Kjartansson trommur, Hörður G. Ólafsson bassi, Birkir Guðmundsson hljómborð, Kristján Gíslason söngur og Svavar Sigurðsson gítar.
Þrír af frambjóðendum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðurlandskjördæmi vestra í nóvember 1994. F.v. Runólfur Birgisson, Sigfús Jónsson og Vilhjálmur Egilsson, en séra Hjálmar Jónsson sigraði prófkjörið.
Fjölmenn atvinnumálaráðstefna sem haldin var í Safnahúsinu á Sauðárkróki 2. maí 1993. Fremsta sætaröð f.v. Kristján Jónasson, (Magnús Erlingsson) Ingi Friðbjörnsson. Í annari röð f.v. má þekkja Vigfús Vigfússon, Karl Bjarnason, óþekktur (aftan við Magnús ), Valgeir Kárason og Eiður Benediktsson lengst t.h. Þá eru aftan við Valgeir, Jóhann Svavarsson og Anna Kristín Gunnardóttir.
Pallborðsumræður með menntamálaráðherra Ólafi G. Einarssyni sem útvarpað var beint á RÚV á Sauðárkróki í júlí 1994. F.v. Finnbogi Hermannsson stjórnandi umræðnanna, Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra, Jón F. Hjartarson skólameistari, Herdís Sæmundardóttir kennari, Valgarður Hilmarsson formaður héraðsnefndar A-Hún. og Stefán Guðmundsson alþingismaður.
Skipverjar á Skafta SK æfa reykköfun á námsskeiði sem Björgunarskóli sjómanna hélt á Króknum í ársbyrjun 1994. Lengst t.h. gæti verið Kolbeinn Sigurjónsson.
Vesturfarasetrið Hofsósi. F.v. Sigurrós Þórleif Stefánsdóttir, Guðrún H. Þorvaldsdóttir, Valgeir S. Þorvaldsson forstöðumaður Vesturfarasetursins og Ólafur Ragnar Grímsson forseti.
Frá 100 ára afmælishófi Búnaðarfélags Áshrepps Hún. haldið á Hótel Blönduós í júlí 1982. Við gluggann t.v. Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri Pálmi Jónsson landbúnaðarráðherra fyrir miðju og Ásgeir Bjarnason formaður Stéttarsambands bænda t.h. Þá er Árni Jóhannsson kaupfélagsstjóri KH næst t.h.
Jóna Fanney Svavarsdóttir syngur við undirleik Tómasar Higgerson á söngskemmtun Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps, sem haldin var að tilefni 70 ára afmæli kórsins í félagsheimilinu Húnaveri vorið 1995.
Frá afmælisárinu 1997 á Sauðárkróki, en þá voru 140 ár frá því Sauðárkrókur varð verslunarstaður, 90 ár frá því Sauðárkrókur varð sérstakt sveitarfélag og 40 ár frá því Sauðárkrókur fékk kaupstaðaréttindi. Myndin tekin á Faxatorgi í júlí 1997.
Þuríður Harpa Sigurðardóttir (t.v.) og Hólmfríður Guðmundsdóttir opnuðu handiðnaðar- og listmunaverslunina "Gallerí Villa Nova" haustið 1992 í kjallara Villa Nova.
Verðlaun sem fegrunarnefnd Blöndósbæjar veitti fyrir snyrtimennsku haustið 1995 til tveggja aðila. Annars vegar til Upplýsingamiðstöðvar ferðamála í Brautarhvammi, fyrir einstaklega vel heppnaða endurbyggingu og nýtingu gamals húss og hins vegar fyrir fallega og vel hirta lóð að Árbraut 7. Á myndinni eru f. v. Páll Þórðarson með verðlaun Upplýsingamiðstöðvarinnar, Skúli Þórðarson bæjarstjóri og Sigursteinn Guðmundsson með verðlaun fyrir Árbraut 7.
Páll Halldórsson yfirflugstjóri (t.v.) og Óttar Sveinsson blaðamaður. Tilefnið er kafli í þá nýútkominni bók Óttars "Útkall" 1994 þar sem segir frá björgun skipverja á Barðanum um borð í flugvélina Sif í mars 1987.
Álftir á flóanum við Hróarsdal vorið 1992. Skagfirskar álftir með gerfihnattasendi sem flugu til vetrarstöðva sinna nærri Glasgow í Skotlandi haustið 1992 voru 9 klukkustundir á leiðinni og flugu að jafnaði á 130 km hraða, flughæð 30-50m.
Lionsklúbbur Sauðárkróks færir Félagi eldri borgara hljóðkerfi að gjöf haustið 1996. Fjóla Þorleifsdóttir ljósmóðir (lengst t.h) þakkar gjöfina. Fjær t.h. stendur Guðmann Tóbíasson sem afhenti gjöfina fyrir hönd Lionsklúbbsins og hjá honum situr Sigmundur Pálsson. Þekkja má Rögnvald Gíslason við borðið nær, Áshildi Öfjörð við borðið fjær (ber í vegginn) og Sigríði Jóhannesdóttur t.h. við borðið fjær.
Spaugstofan heimsækir Skagafjörð í ágúst 1995 en þá skemmti hún í Miðgarði. Á myndinni eru Spaugstofumenn fyrir framan Bláfell á Sauðárkróki ásamt aðdáendum sínum.
Gunnlaugur Sigurjónsson (sonarsonur Markúsar á Reykjarhóli) með gimbur í desember 1995 sem álitið var að væri nýkomin undan snjó, en hefði fennt fyrir veturnætur.
Skipverjar á Skagfirðingi SK styrkja Björgunarsveitina Skagfirðingasveit sumarið 1996. Á myndinni eru f.v. Hafsteinn Harðarson, Ásta Birna Jónsdóttir formaður björgunarsveitarinnar, Gunnar Sigurðsson og Bjarki Tryggvason.
T.v. við borðið má þekkja Reyni Barðdal og Guðmund Óla Pálsson og hægra megin eru Birgir Gunnarsson nær og Rögnvaldur Guðmundsson fjær. Óþekkt samkoma.
Kvenfélagskonur í Skagafirði halda basar. Frá vinstri eru Pálína Skarphéðinsdóttir Gili, Ingibjörg Jóhannesdóttir Mið-Grund, Sigríður Eiríksdóttir Dýrfinnustöðum og Ingibjörg Jóhannesdóttir Ketu. Aðrar óþekktar.