Skákþing Norðurlands á Sauðárkróki 1990, verðlaunaafhending. Lengst til hægri Norðurlandsmeistarinn Rúnar Sigurpálsson Akureyri þá 2. Páll Leó Jónsson Skagaströnd 3. Sigurður Daníelsson Blönduósi og 4. Jakob Þór Akureyri lengst t. v. Gestur Þorsteinsson bankastjóri afhendir verðlaunin.
Tilg. Frá keppni í Norðurlandsriðli Íslandsmótsins í skák í nóvember 1987. Sveit USAH t.h við borðið og sennilega sveit Skagfirðinga t.v. Geirlaugur Magnússon næst t.v. hægra megin við borðið f.v. Magnús Björnsson, Baldur Daníelsson, óþekktur og Jóhann Guðmundsson næst.
Að lokinni messu biskups Ólafs Skúlasonar í Ketukirkju vorið 1991. F.v Lárus Björnsson í Neðra-Nesi (í kirkjudyrum), Rögnvaldur Steinsson á Hrauni, Hreinn Guðvarðason á Selá, Ebba Sigurbjörnsdóttir (biskupsfrú), Ólafur biskup, óþekktur, sr. Hjálmar Jónsson og Signý Bjarnadóttir.
Frá 50 ára vígsluafmælis Óspakseyrarkirkju í Bitrufirði í júlí 1990. F.v. Baldur Rafn Sigurðsson, Guðni Þór Ólafsson, Kristján Björnsson, Ólafur Skúlason biskup, Gísli Gíslason kirkjusmiður og Ágúst Sigurðsson.
Verið að gera klárt á Hellulandi vorið 1991, fyrir tökur á þýsku framhaldsmyndaþáttunum "Fast im Settel". F.v. Einar Unnsteinsson, Eggert Einarsson, Jökull Eggertsson, sem lék eitt stærsta hlutverkið, Jón Óskar Valgeirsson, Guðmundur Jóhannesson og Kári Esra.
Haustið 1992 voru 10 nýjar parhúsaíbúðir við Jökla- og Laugatún afhentar eigendum sínum. Íbúðirnar voru byggðar í félagslega kerfinu og verktaki var Friðrik Jónsson sf.
Fiskeldisfyritækið Máki hóf eldi á barra í Miklalaxeldisstöðinni í Fljótum árið 1998. Framámenn fyrirtækisins eru hér framan við seiðaeldisstöðina á Lambanesreykjum haustið 1998. Þekkja má Vilhjálm Bjarnason lengst t.v. Harald J. Haraldsson (í Andra) fjórði f.v. þá Árna Egilsson, Guðmund Örn Ingólfsson og Halldór Halldórsson. Aðrir óþekktir.
Bræðurnir frá Steini á Reykjaströnd Hilmar (t.v.) og Jóhann Péturssynir á vöru- og þjónustusýningu á Sauðárkróki sumarið 1997 ásamt konum sínum þeim Ásdísi Jónsdóttur (konu Hilmars) og Ingibjörgu Elíasdóttur (konu Jóhanns).
Meistarflokkur Tindastóls í knattspyrnu vinnur sér sæti í 2. deild Islandsmótsins í ágúst 1983. Myndin tekin á Sauðárkróksflugvelli við komu liðsins eftir sigur á Þrótti og jafntefli við Austra. Guðríður Ólafsdóttir færir Rúnari Björnssyni (t.v.) fyrirliða blóm frá stuðsingsmönnum liðsins. Fyrir miðju er Árni Stefánsson þjálfari og markvörður liðsins með blómvönd frá bæjarstjórn Sauðákróks.
Jóni Arnari Magnússyni frjálsíþróttamanni úr Tindastóli fagnað á Sauðárkróksflugvelli er hann kom heim frá Heimsmeistaramótinu í Frakklandi í mars 1997, þar sem hann vann til bronsverðlauna í sjöþraut. F.v. Viggó Jónsson, Jón Arnar Magnússson, Ingibjörg Hulda Skúladóttir unnusta Jóns með son þeirra Krister Blær, þá Gísli Sigurðsson (þjálfari Jóns) og Steinunn Hjartardóttir forseti bæjarstjórnar Sauðárkrróks.
Börn á Hvammstanga fá reiðhjólahjálma að gjöf frá Kvenfélaginu Björk á Hvammstanga. Lögreglumaðurinn er Hermann Ívarsson, lögreglumaðurinn og starfsmaðurinn Árndís Alda Jónsdóttir. Börnin eru, f.v.: Aron Vignir Sveinsson, Andri Páll Guðmundsson, Axel Gústavsson, Þorgrímur Guðni Björnsson, Bryndís Björk Hauksdóttir og Ólafur Hauksson.
Halldór Blöndal samgönguráðharra (t.v.) afhendir Steinunni Ásmundsdóttur ferðamalafulltrúa Héraðs og Borgarfjarðar (eystri) og Sigurjóni Hafsteinssyni starfsmanni Ferðamiðstöðvar Austurlands umhverfisverðlaun á fundi Ferðamálaráðs á Blönduósi í október 1997.
Útvarp Norðurlands var með útvarp á vöru og þjónustusýningunni á Sauðárkróki sumarið 1997. F.v. eru Kári Jónasson (sem heitir eftir Kárastöðum í Hegranesi), Sigurður Salvarsson og Kristján Sigurjónsson.
Frá heimsókn Vigdísar Finnbogadóttur forseta í Skagafjörð 23.-25. ágúst 1991. Þorsteinn Ásgrímsson formaður héraðsnefndar býður Vigdísi velkomna á Alexandersflugvelli.
Í júlí 1994 var minnisvarði um Guðríði Þorbjarnardóttur og Snorra Þorfinnsson afhjúpaður í Glaumbæ af Vigdísi Finnbogadóttur forseta. Við hlið Vigdísar á myndinni er Vigfús Vigfússon fyrverandi ferðamálafulltrúi, en hann var helsti hvatamaður af því að minnisvarðinn var reistur. Minnisvarðinn er afsteypa af höggmynd Ásmundar Sveinssonar.
Herra Ólafur Skúlason biskup vísiterar Ketukirkju á Skaga í júní 1991. Þekkja má f.v. Önnu Jónsdóttur frá Hóli (í dyrunum) Guðlaugu Jóhannsdóttur, Hrauni (í peysufötum/upphlut), Ólafur Skúlason biskup (fyrir miðju) sr. Hjálmar Jónsson og Signýu Bjarnadóttur lengst t.h. Aðrir óþekktir.
Tilg. Frá vígslu sr. Bolla Gústafssonar til vígslubiskups að Hólum í júní 1991. Biskup Íslands herra Ólafur Skúlason er fyrir altari. Prestarnir 3 næst biskupi eru f.v. sr. Bolli Gústafsson, sr. Árni Sigurðsson og sr. Hjálmar Jónsson. Á bak við sr. Hjálmar sér svo í sr. Sigurð Guðmundsson. Fjær til hægri við súluna er svo Halldór Blöndal ráðherra.
Stjórn Prestafélags Hólastiftis hins forna fundaði á Sauðárkróki sumarið 1998 í tilefni af 100 ára afmæli félagsins. Myndin er tekin við hús sr. Árna Björnssonar þar sem félagið var stofnað. Frá vinstri: sr Gísli Gunnarsson í Glaumbæ, sr Magnús G Gunnarsson, sr Kristján Björnsson, sr Sighvatur Karlsson og sr Gunnlaugur Garðarson, allt prestar í stiftinu.
Frá afmælishátíð Sauðárkróks á Faxatorgi í júlí 1997. Elsa Jónsdóttir bæjarritari í ræðustóli. Á bak við frá vinstri, Hilmir Jóhannesson, Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, Ólafur Ragnar Grímsson forseti, Stefán Guðmundsson alþingismaður og óþekktur.
Fulltrúar Sauðárkróks taka á móti forsetahjónunum þeim Guðrúnu Katrínu Þorbergsdóttur og Ólafi Ragnari Grímssyni á Alexandersflugvelli, er þau komu á afmælihátíðina á Sauðárkróki sumarið 1997.
Tekið á móti forsetahjónunum þeim Ólafi Ragnari Grímssyni og Guðrúnu Katrínu Þórbergsdóttur á Alexandersflugvelli í júlí 1997 er þau komu á afmælishátíð á Sauðárrkróki. Fjær standa fulltrúar Sauðárkróksbæjar.
Forsetahjónin þau Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir á afmælishátíð Sauðárkróks í júlí 1997. Á myndinni eru þau á gangi í Aðalgötunni.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands flytur ávarp á afmælishátíð Sauðárkróks á Faxatorgi í júlí 1997. Á bak við er Stefán Guðmundsson alþingismaður lengst t.v. Aðrir óþekkir.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands flytur ávarp á Faxatorgi á afmælishátíð Sauðárkróks í júlí 1997. Á bak við er Stefán Guðmundsson alþingismaður t.v. og Elsa Jónsdóttir bæjarritari t.h.
Eldri borgarar spila í Safnaðarheimilinu. F.v. Sigríður Jóhannesdóttir frá Brúnastöðum, óþekktur, Pála Pálsdóttir Hofsósi og Steingrímur Friðriksson Skr.
Hluti af hópi fólks úr íþróttafélaginu Grósku í Skagafirði með verðlaunagripi sem þeir unnu á Íslandsmóti Íþróttasambands fatlaðra sem fram fór í íþróttahúsinu í Kaplakrika í Hafnarfirði í mars 1993. Alls fóru 13 keppendur en þeir kepptu einungis í boccia.
Tilg. Félagar úr Grósku, íþróttafélagi fatlaðra í Skagafirði. Þekkja má f.v. Ragnar Berg Ágústsson (í hjólastól), Kristján Viðarsson (bak við Ragnar), Steinar Björnsson fyrir miðju (í hjólastól) og Valdimar Björnsson við borðsendann t.h.
Íslandsmót í boccia í íþróttahúsinu á Sauðárkróki í október 1999 á vegum Íþróttasambands fatlaðra. Á myndinni eru sigurvegarar í rennuflokki. f.v. Ívar Ö. Guðmundsson ÍFR 2. sæti, Sveinbjörn Gestsson ÍFR 1. sæti og Aðalheiður Bára Steinsdóttir Grósku 3. sæti.
Tilg. Álfadans um áramót 1996-97 undir handleiðslu hjónanna Jóhönnu Karlsdóttur og Karls Bjarnasonar, en dansað var við álfabrennur á þrem stöðum þ.e. Hofsósi, Sauðárkróki og Varmahlíð.
Gerð svæðisskipulags fyrir Skagafjörð hafin í júní 1995. Bjarni Jónsson (1965-) sagnfræðingur , Jóhanna Lára Pálsdóttir (1968-) landfræðingur , Páll Snævar Brynjarsson (1965-) stjórnamálafræðingur voru meðal starfsmanna Lendis sem unnu að gerði hins umfangsmikla skipulags fyrir Skagafjörð , sem lauk í árslok 1997.
Tilg. Fundur á Heilbrigðisstofnun Skagfirðinga. Fjær f.v. Friðrik J. Friðriksson (1923-2011) , læknir á Sauðárkróki, Ólafur Ólafsson (1928-) landlæknir og Ingibjörg Pálmadóttir (1949-) heilbrigðisráðherra.
Hrönn Gunnarsdóttir (1958-) starfsstúlka Kjötvinnslu KS handleikur fallegan dilkaskrokk haustið 1994, en veruleg söluaukning hafði orðið hjá Kjötvinnslunni.
Fyrsta lambið í búsmala sauðkrækinga vorið 1993 fæddist líklega hjá Lárusi Sveinssyni rétt fyrir páska. Það kunni barnabarn hans , Sunna Björk Atladóttir, vel að meta og hampar hún hér lambinu og félagi hennar Eyþór Fannar Sveinsson fylgist með af aðdáun. Lárus Sveinsson (1913-1993) Sunna Björk Atladóttir (1989-) Eyþór Fannar Sveinsson (1987-).