Mynd með grein um Karlakórinn Heimir í Feyki þann 6. júní 1984 11.tbl, 4. árg. Yfirskrift greinarinnar er ,,Það má kalla að gangi kraftaverki næst að hægt skuli vera að ná svo góðum árangri hjá kór, sem samanstendur af erfiðismönnum".
Karlakórinn Lóuþrælar í Húnaþingi vestra. Undirleikari er Ólöf Pálsdóttir frá Bessastöðum á Heggstaðanesi. Harmonikkuleikari er bróðir hennar, Þorvaldur bóndi á Bjargi í Miðfirði. Aftari röð f.v.: Jón Böðvarsson, Páll Sigurðsson, Jón Hilmar Karlsson og Björn (var oddviti í Ytri-TOrfustaðahreppi). Fremri röð f.v.: Þorvaldur, Böðvar Sigvaldason, Eggert Antonsson og Sverrir Björnsson í Brautarholti.
Birgir Guðjónsson og Monika Sóley Borgarsdóttir með farsímaveski sem fyrirtækið Click on Island hóf framleiðslu á árið 1999. Birgir var framkvæmdastjóri fyrirtækisins.
Ásgeir Eiríksson er mikill og djúpur bassi og talinn ákaflega efnilegur söngvari. Hér syngur hann einsöng með Rökkurkórnum á skemmtun kósins í Miðgarði á annan í jólum 1992.
Frá vinstri Jóna Guðrún Gísladóttir (1944), Jófríður Tobíasdóttir (1939-) og Björgvin Jónsson (1929-2000). Frá skemmtun Rökkurkórsins í Miðgarði. (Hugsanlega 20 ára afmælisfagnaður kórsins vorið 1999).
Afhjúpaður minnisvarði um Sigurð Jónasson skógarvörð í rjóðri við bæjartóftir Laugarbrekku í Reykjarhólnum í september 1996. F.v. Sigurður Örn Hilmarsson og Sigurður Sigurðsson barnabörn Sigurðar, en þeir afhjúpuðu minnisvarðann þá sr. Gunnar Gíslason, Magnús Sigurjónsson framkvæmdastjóri héraðsnefndar, óþekktur og Þórarinn Sólmundarson.
Minnisvarði um Sigurð Jónasson skógarvörð afhjúpaður í rjóðri við bæjartóftir Laugarbrekku í Reykjarhólnum í september 1996. Drengirnir Sigurður Örn Hilmarsson (t.v.) og Sigurður Sigurðsson eru barnabörn Sigurðar og afhjúpuðu þeir minnisvarðann.
Frá minningartónleikum um Jóhann Pétur Sveinsson í íþróttahúsinu í Varmahlíð í október 1995. Hér er söngsveitin Drangey að syngja undir stjórn Snæbjargar Snæbjarnardóttur (1932-) við undirleik Vilhelmínu Ólafsdóttur (1948-).
Heimkomu hótelstýrunnar Ásbjargar Jóhannsdóttur í Hótel Varmahlíð fagnað í ágúst 1993 en hún hafði verið fjarverandi um hríð vegna veikinda. Á meðan hún var fjarverandi hafði verið lokið við stækkun og endurbætur hótelsins. Við píanóið er Gróa Hreinsdóttir (1956-), söngkonurnar eru til vinstri: Helga Rós Indriðadóttir (1969-) og Margrét Sigurlaug Stefánsdóttir (1968-).
Heimkomu hótelstýrunnar Ásbjargar Jóhannsdóttur í Hótel Varmahlíð fagnað í ágúst 1993 en hún hafði verið fjarverandi um hríð vegna veikinda. Þá var jafnframt verið að opna hótelið eftir endurbætur og stækkun. Á myndinni eru frá vinstri: Helga Rós Indriðadóttir (1969-), Margrét Sigurlaug Stefánsdóttir (1968-) og Gróa Hreinsdóttir (1956-) leikur á hljófærið.
Sigurjón Jóhannesson og Margrét S. Stefánsdóttir syngja í fagnaði í Hótel Varmahlíð í ágúst 1993, þar sem fagnað er heimkomu hótelstýrunnar Ásbjargar Jóhannsdóttur sem hefur verið fjarverandi um hríð vegna veikinda. Jafnframt er fagnað stækkun og endurbótum á hótelinu.
Karlakórinn Heimir. Í fremstu röð frá vinstri Kristján Jósefsson, Viglundur Rúnar Pétursson, bræðurnir Kolbeinn og Þorleifur Konráðssynir (1963-) og Gísli Pétursson (1951-)
Árshátíð Varmahlíðarskóla 1982. Frá vinstri: Guðrún Sigurjónsdóttir frá Holtskoti (með bllokkflautu), Una M. Guðjónsdóttir Varmahlíð, Anna Sigrún Ólafsdóttir frá Álftagerði, Ásta Nína Benediktsdóttir frá Vatnsskarði, Svanhildur Pálsdóttir, Gunnar Árnason frá Marbæli og Arnar Guðmundsson frá Fjalli. Lengst til vinstri í aftari röð er Selma Reynisdóttir
Góður árangur varð af borun eftir heitu vatni í Reykjarhóli við Varmahlíð vorið 1997, þannig að orkugeta Hitaveitu Seyluhrepps þrefaldaðist. Sigurður Haraldsson oddviti Seyluhrepps t.h. á tali við bormennina við holuna góðu í Reykjarhólnum.
Veirurnar, sönghópur ungs fólks í Skagfirsku söngsveitinni, tekur lagið á minningartónleikum um Jóhann Pétur Sveinsson í íþróttahúsinu í Varmahlíð í október 1995.