Fimmtugsafmælisveisla Pálma "Svaða" Friðrikssonar haldin í Ljósheimum í desember 1993. Hermann Jónsson frá Lambanesi ásamt Svölu Aðalsteinsdóttur (1986-) dótturbarni Pálma.
Frá 50 ára vígsluafmælis Siglufjarðarkirkju í ágúst 1982, en þá var jafnframt tekið í notkun safnaðarheimili á lofti kirkjunnar, en áður hafði loftið verið notað við kennslu.
Frá fundi um útivist og útivistarsvæði í Vatnahverfi við Blönduós sem JC- Húnabyggð hélt á Blönduósi vorið 1985. Snorri Björn Sigurðson (1951-) þáverandi sveitarstjóri á Blönduósi í ræðupúlti. Gísli J. Grímsson fundarstjóri t.v. Reynir Vilhjálmsson og Þorvaldur Ásgeirsson t.h.
Þórir Ísólfsson (1954-) ræktunarmaður og bóndi á Lækjamóti flytur fyrirlestur á ráðstefnunni "Landbúnaður í nútíð og framtíð" sem haldin var á Hvammstanga í september 1999.