Útskrift í Hólaskóla haustið 1999 en þá brautskráðust 27 búfræðingar. Skúli Skúlason nýráðinn skólameistari lengst t.v. og Jón Bjarnson fráfarandi skólastjóri lengst t.h.
Kynningardagur á Hólaskóla vorið 1999. Nemendur hrossaræktarbrautar gáfu góðfúslegar upplýsingar um námið. Þekkja má Hjalti Páll Þórarinsson Vogum Kelduhverfi, annan f.v. í aftari röð og Rósu Maríu Stefánsdóttur frá Akureyri fjórðu f.v. í aftari röð.
Nemendur Hólaskóla í Hjaltadal vorið 1999. Ásta Skarphéðinsdóttir frá Úlfsbæ í Bárðardal, Guðrún Hjaltadóttir frá Raftholti í Holtum og Matthildur Jónsdóttir frá Selfossi nemar á ferðamálabraut.
Hóladómkirkja,. Næst eru Davíð Oddson ( 1948-) forsætisráðherra og kona hans Ástríður Thorarensen (1951-). Til hægri er Matthildur Jónsdóttir (1936-). Hugsanlega er þetta í ágúst 2001, en þá lagði Davíð hornstein að Auðunnarstofu að lokinni messu í Hóladómkirkju.
Fyrsta skóflustunga tekin að nýrri sundlaug á Hólum en hún var vígð vorið 1982. T.v. má þekkja Jón Bjarnason skólastjóra Bændaskólans og konu hans Ingibjörgu Kolka og svo Kristján Skarphéðinsson. Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri er næstur á myndinni og Gísli Pálsson frá Hofi er með skófluna.
Nýju fjárhúsin á Hólum í Hjaltadal vígð vorið 1992. Sigurjón Markússon Jónasson "Dúddi á Skörðugili" (1915-1993) t.v. og Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra t.h. Á milli þeirra er hugsanlega Sigurgeir Þorgeirsson framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands.
Hólahátíð 1987. Á myndinni má þekkta sr Hjálmar Jónsson (3 f.v.), sr Döllu Þórðardóttur (við bílinn, horfir í myndavélina) og sr Gísla Gunnarsson (aftastur, með gleraugu).
Kynningardagur í Hólaskóla vorið 1999. f.v. Ásta Skarphéðinsdóttir frá Úlfsbæ í Bárðardal, Guðrún Hjaltadóttir frá Raftholti í Holtum og Matthildur Jónsdóttir frá Selfossi nemar á ferðamálabraut.
Útskrift frá Hólum vorið 1985. Jón Bjarnason (1943-) lengst til hægri. Hæstu einkunn hlaut Gunnar Sigurðsson frá Stóru-Ökrum og er hann í öftustu röð fyrir miðju og sagðist hann aðspurður ætla að verða bóndi og hefur það gengið eftir. Myndin tekin á tröppum Hóladómkirkju.