Tilg. Bæjarstjórnarfundur í Safnahúsinu. F.v. Anna Kristín Gunnarsdóttir, (Bjarni Brynjólfsson), Stefán Logi Haraldsson, Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri, (Steinunn Hjartardóttir í ræðustóli) Elsa Jónsdóttir, Pétur Valdimarsson og Björn Björnsson.
Fundur tileinkaður Jónasi Kristjánssyni lækni á Króknum og fyrsta forseta Náttúrulækningafélags Íslands haldin á Sauðárkróki haustið 1996 að tilstuðlan Ræðuklúbbs Sauðárkróks. T.v. má þekkja Sigurlaugu Magnúsdóttur, Sigrúnu Öldu Sighvats, Guðjón Ingimundarson og t.h. er Björn Hjálmarsson frá Mælifellsá.
Fundur sem iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið stóð fyrir um atvinnumál á Sauðárkróki í ársbyrjun 1996. Við borðið næst hægra megin má þekkja f.v. Snorra Björn Sigurðsson bæjarstjóra, Sigurð Ágústsson rafveitustjóra, Rögnvald Guðmundsson frá RKS og Birgi Gunnarsson framkvæmdastjóra Sjúkrahússins.
Fundur sem iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið stóð fyrir um atvinnumál á Sauðárkróki í ársbyrjun 1996. Vinstra megin við borðið næst eru f.v óþekktur, Jón Hjartarson skólameistari, Kristján Sigurpálsson Varmahlíð, Magnús Sigurjónsson Skr. og Hilmir Jóhannesson Skr. Aðrir óþekktir.
Guðmundur Sveinsson kjötiðnaðarmeistari KS með verðlaunaréttina sem hann vann til í keppni á sýningunni "Mat 96" sem fram fór í Smáranum í Kópavogi vorið 1996. Þar hlaut hann eitt gull, þrjú silfur og eitt brons.
Tilg. Fagnaður hjá fólki með þroskahömlun. Myndin er líklega frá Siglufirði. Hægra meginn við borðið, við endann fjæra er Árni Heiðar Bjarnason á Siglufirði.
Reikisamtök Skagafjarðar með reikisamkomu á Hótel Mælifelli í febrúar 1996. Aðalhvatamaður að samkomunni var Árdís Björnsdóttir frá Vatnsleysu. Mynd við sama tilefni nr 993.
Vélsmiðja Húnvetninga smíðaði dósasöfnunarílát sem vakti mikla athygli á vörusýningu á Blönduósi sumarið 1996. Á myndinni eru Tryggvi Gíslason, Eysteinn Jóhannsson og Vilhjálmur Stefánsson.
Fjallkonan á Sauðárkróki 1993, Hjördís Jónsdóttir, en hún klæddist skautbúningi langömmu sinnar Sigrúnar Pálmadóttur frá Reynistað. Búningur þessi var saumaður á Sigrúnu fyrir Alþingishátíðina á Þingvöllum 1930.
Frá ársþingi SSNV sem haldið var á Löngumýri sumarið 1996. Sigurður Tómas Björgvinsson (t.h.) starfsmaður kynningarmiðstöðvar Evrópurannsókna kynnir úrbætur í atvinnumálum í kjördæminu. Hinir eru Agnar Gunnarsson t.v. og Sveinn Allan Mortens.
Frá afhjúpun minnisvarða um Sigurð Jónasson varðstjóra að Laugabrekku í Varmahlíð 1996, en hann jafnframt forstöðumaður skógræktarstöðvarinnar í Varmahlíð.
Sigurvegarar í opnum flokki á skákþingi Norðurlands 1994. Frá vinstri, Matthías Keld 5,5v, Rúnar Sigurpálsson 5,5v og Stefán Andrésson 5v. Stefán er frá Bolungarvík og Matthías frá Reykjavík og kepptu þeir sem gestir. Fjær t.v. er Haraldur Hermannsson.
Tilg. Frá afhjúpun minnisvarða um Sigurð Jónasson varðstjóra í Laugabrekku í Varmahlíð 1996, en hann var jafnframt forstöðumaður skógræktarstöðfarinnar í Varmahlíð.
Frá aflraunakeppni sem haldin var að Bjargi í Miðfirði í ágúst 1998. Grettishátíð. Keppendur f.v. Auðunn Jónsson, Ryan Wierra frá Bandaríkjunum (heimsmeistari í Hálandaleikum), Sæmundur Á Sæmundsson og Hjalti "Úrsus " Árnason.
Saumasmiðjan á Skagströnd í febrúar 1996, en í desember 1995 voru fimm ár liðin frá stofnun Saumasmiðjunnar. Á myndinni er verið að sauma norsku peysurnar.
Sumarið 1995 gekkst Kiwanishreyfingin fyrir kynningarátaki á svokölluðum eiturlyfjavísi í baráttunni til varnar eiturlyfjum. Af því tilefni hjóluðu 4 ungir menn umhverfis landið og afhentu eiturlyfjavísinn á mörgum þéttbýlisstöðum. Á myndinni er Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri að veita vísinum viðtöku, framan við Ráðhúsið á Króknum. Þekkja má Daníel Sighvats með hundinn. Hjalti Guðmundsson t.h. við Daníel, þá Jónas Snæbjörnsson og framan við Jónas er Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri. Bak við Daníel sér í Stefaníu Stefánsdóttur.
Unglingavinna á Sauðárkróki 1987. Þökulagning í Hlíðarhverfi. Frá vinstri, Ingvar Ormsson (1974-), Kristján Kristjánsson (1973-) Sveinn H. Guðmundsson og Valdimar Birgisson (1974-).
Sjálfsbjörg stóð fyrir samkeppni meðal 6. bekkjar nema grunnskóla á Norðurlandi vestra, Vestfjörðum og Vesturlandi síðla vetrar 1996. undir kjörorðinu "Þjóðfélag án þröskulda" Á myndinni eru f.v. 1. v. Elsa Kristín Arnardóttir Hunavallaskóla, 2.v. Kolbeinn Aðalsteinsson Grunnskóla Siglufjarðar, 3.v. Kristín Birgisdóttir Húnavallaskóla. Þá hlaut Rakel Gísladóttir verðlaun fyrir mynd sem hún sendi í keppnina.
Útibú Búnaðarbankans á Blönduósi gaf Umf. Hvöt keppnisbúninga 1996. Sigurði Kristjánssyni útibússtjóra var jafnframt færður skjöldur frá Hvöt sem þakklætisvottur til útibúsins.
Á myndinni eru f.v. Guðmundur Haraldsson , Sigurður Kristjánsson útibússtjóri, Fanney Kristjánsdóttir knattspyrnukona og Vilhjálmur Stefánsson.
Jón Arnar Magnússon frjálsíþróttamaður úr Tindastóli var kjörinn íþróttamaður ársins 1995. Með honum á nyndinni er kona hans Hulda Skúladóttir og sonurinn Krister Blær.
Jón Arnar Magnússon tugþrautakappi kjörinn íþróttamaður Umf. Tindastóls og Sauðárkróks 1995. Þess má og geta að hann var jafnframt íþróttamaður ársins í kjöri íþróttafréttamanna. Á myndinni er Páll Ragnarsson formaður Tindastóls t.v. að heiðra Jón Arnar í hófi sem haldið var honum til heiðurs í janúar 1996.