Kennarar í verkfalli, hugsanlega 1995. Myndin er tekin á Sæmundargötunni, í húsi Verkalýðsfélaganna (nú Hús frímtímans). Efri röð frá vinstri: Helga Haraldsdóttir, Ævar Buthman, Kristján Bjarni Halldórsson og Guðbrandur Guðbrandsson í símanum. Sitjandi við borðið: Kristbjörg Kemp, Konráð Gíslason, Ragnheiður Matthíasdóttir, Valgeir Kárason, Bryndís Björgvinsdóttir og Árni Stefánsson lengst t.h.
Félagsstarf eldri borgara í Safnaðarheimilinu. Konurnar eru f.v. Sigríður Jóhannesdóttir frá Brúnastöðum (sést að hluta), Hulda Gísladóttir, Guðbjörg Hjálmarsdóttir, óþekkt fjærst og Björg Guðmundsdóttir frá Vatni. Aðrar óþekktar.
Samkoma eldri borgara í Bifröst. Við borðið t.v. eru Valberg Hannesson og Áshildur Öfjörð. Næsta borð f.v. óþekkt kona við vegginn, Steingrímur Friðriksson, Kristján Sölvason, María Ragnarsdóttir Aadnegard, Sigurlaug Antonsdóttir og Kristín Sölvadóttir. Fjærst við vegginn er svo Herdís Sigurjónsdóttir.
Frá afhjúpun minnisvarða um Hermann Jónasson fyrrverandi forsætisráðherra á Syðri-Brekkum í Blönduhlíð haustið 1997 T.h. á myndinni er Steingrímur Hermannsson og t.v. við hann er Edda Guðmundsdóttir kona hans. Lengst t.h. er hugsanlega Pálína Hermannsdóttir.
Tilg. Frá afhjúpun minnisvarða við Frúarstíg þ.e. Freyjugötu sumarið 1997, um framtak kvenna á Króknum í lok nítjándu aldar. Það voru 4 karlaklúbbar á Króknum sem gáfu minnisvarðann.
Tilg. Frá afhjúpun minnisvarða við Frúarstíg þ.e. Freyjugötu á Króknum sumarið 1997 um framtak kvenna á Króknum í lok nítjándu aldar. Minnisvarðinn er gjöf frá fjórum karlaklúbbum í bænum.
Kirkjuhátíð í Bifröst haustið 1982 þegar þess var minnst að 90 ár voru liðin frá vígslu Sauðárkrókskirkju. Við borðið næst t.v. má þekkja f.v. Jóhönnu, Maríu og Árna Blöndal.
Hestamiðstöðin á Gauksmýri hlaut hvattningarverðlaun Invest (Iðnþróunarfélag Norðurlands vestra) í janúar 2002. Á myndinni eru f.v. Guðmundur Skarphéðinsson stjórnarformaður Invest, Lárus Þ. Valdimarsson, Svanhildur Hall, Sigríður Lárusdóttir og Jóhann Albertsson. (Mynd frá sama tilefni nr 1629).
Tilg. Eitthvað um að vera í Varmahlíð. F.v. Elín Sigurðardóttir, Broddi Björnsson, Sigurður Haraldsson, Valborg Hjálmarsdóttir, Esther Ágústsdóttir, Kristín Jóhannesdóttir og Þórarinn Magnússon. Börnin og aðrir óþekktir.
Eldri borgarar taka í spil í Safnaðarheimilinu á Króknum. F.v. Sigríður Jóhannesdóttir frá Brúnastöðum, (Sveinn Jónsson frá Bjarnargili), Pála Pálsdóttir á Hofsósi og Steingrímur Friðriksson Sauðárkróki.
Nemendur Akureyrardeildar Myndlista- og handíðaskóla Íslands héldu sýningu í Safnahúsinu á Sauðárkróki vorið 1995. Á myndinni eru Sigurrós Stefánsdóttir og Ólafur Sveinsson. (ekki þeirra verk í bakgrunni).
Fjölnota fjárhús voru tekin í notkun á Hólum vorið 1992. Ámyndinni er sr. Bolli Gústavsson að blessa bygginguna. Heimismenn eru fjær en þeir sungu við athöfnina.
Biskup Íslands messaði í Ketukirkju á Skaga vorið 1991. Að messu lokinni flutti Lárus Björnsson oddviti í Neðra-Nesi skemmtilega tölu í Skagaseli um sr. Hjálmar Jónsson sem hafði reynst hin mesta óveðurskráka.
Frá 50 ára vígsluafmælis Óspakseyrarkirkju í Bitrufirði í júlí 1990. F.v. Baldur Rafn Sigurðsson, Guðni Þór Ólafsson, Kristján Björnsson, Ólafur Skúlason biskup, Gísli Gíslason kirkjusmiður og Ágúst Sigurðsson.
Að lokinni messu biskups Ólafs Skúlasonar í Ketukirkju vorið 1991. F.v Lárus Björnsson í Neðra-Nesi (í kirkjudyrum), Rögnvaldur Steinsson á Hrauni, Hreinn Guðvarðason á Selá, Ebba Sigurbjörnsdóttir (biskupsfrú), Ólafur biskup, óþekktur, sr. Hjálmar Jónsson og Signý Bjarnadóttir.
Tilg. Sauðárkrókskirkja 100 ára. Frá æfingu á leikatriðinu "Kirkjan okkar" sem Jón Ormar Ormsson samdi og sýnt var í 100 ára afmælismessu í kirkjunni í nóvember 1992.. Bragi Haraldsson t.v. undir altaristötflunni. Aðrir óþekktir.
Eyþórskvöld tileinkað Eyþóri Stefánssyni tónskáldi og heiðursborgara Sauðárkróks, haldið í Sauðárkrókskirkju 23. janúar 1997 (annað Eyþórskvöld var haldið á aldarafmæli hans 23. janúar 2001). Á fremri bekknum á myndinni er fjölskylda Eyþórs. F.v. Eyþór Einarsson, Ásgerður Þórey Gísladóttir, Auðunn Einarsson, Óli Páll Engilbertsson og Sigríður Einarsdóttir. Aftari bekkur f.v. sr Gísli Gunnarsson, Árni Ragnarsson og Brynjar Pálsson.
Vorið 1991 gaf Lionsklúbbur Sauðárkróks, Sauðárkrókskirkju 60 lausa stóla. Á myndinni eru Lionsmenn ásamt sr. Hjálmari Jónssyni t.v. með stólinn. Hinn sem heldur á stólnum er Óskar Jónsson læknir. Þá er gestur fundarins Sigurður Þórólfsson t.v. í hjólastól.
Börn frá Sauðárkróki og Hvammstanga við fermingarundirbúning á Löngumýri síðla vetrar 1983. Sr. Hjálmar Jónsson lengst t.v. og sr. Guðni Þór Ólafsson legst t.h. Margrét Jónsdóttir er við hljóðfærið.
Tilg. Íslandsmót í skák haldið í Reykjavík 1988. Sveit Skáfélags Sauðárkróks hægra megin við borðið. Geirlaugur Magnússon næst, þá Haraldur Hermannsson og Freysteinn Björgvinsson fjærst. T.v. við borðið óþekktir.
Tilg. Grohe eða Damixa skákmót (Sæluvikuskákmót). Jón Arnljótsson Ytri- Mælifellsá t.v. og Páll Ágúst Jónsson Siglufirði t.h. Pálmi Sighvatsson fjærst t.v. Aðrir óþekktir.
Frá skólaskákmóti sem Kiwanisklúbburinn Drangey gekkst fyrir í mars 1988. Þekkja má Pálma Sighvatsson á miðri mynd (stendur) og Hall Sigurðsson t.h. (stendur). Myndin birtist í 11. tbl.1988.
Sex 40 ára búfræðingar frá Bændaskólanum á Hólum frá árinu 1945, voru viðstaddir skólaslit skólans vorið 1985. Frá vinstri, Rögnvaldur Gíslason Sauðárkróki, Frosti Gíslason Frostastöðum (bak við), Jón Samúelsson, Steinn Snorrason frá Bægisá, Sigurður Jónsson á Efstalandi í Öxnadal og Pétur Steindórsson á Krossastöðum í Glæsibæjarhreppi.
Tilg. Frá keppni í Norðurlandsriðli Íslandsmótsins í skák í nóvember 1987. Sveit USAH t.h við borðið og sennilega sveit Skagfirðinga t.v. Geirlaugur Magnússon næst t.v. hægra megin við borðið f.v. Magnús Björnsson, Baldur Daníelsson, óþekktur og Jóhann Guðmundsson næst.
Skákþing Norðurlands á Sauðárkróki 1990, verðlaunaafhending. Lengst til hægri Norðurlandsmeistarinn Rúnar Sigurpálsson Akureyri þá 2. Páll Leó Jónsson Skagaströnd 3. Sigurður Daníelsson Blönduósi og 4. Jakob Þór Akureyri lengst t. v. Gestur Þorsteinsson bankastjóri afhendir verðlaunin.
Fyrirlestur í Safnahúsinu vorið 1988 þar sem Ásgeir S. Björnsson er með fyrirlestur um Daníel Bruun og rannsóknir hans. Fremstir eru Hjalti Pálsson t.v. og Örlygur Hálfdánarson.
Þrír Skiptinemar frá Bandaríkjunum á vegum AFS skiptinemasamtakanna, sem dvalið höfðu í Skagafirði ásamt AFS deildinni á Sauðárkróki í ágúst 1987. F.v. Þorkell Þorsteinsson kennari, þá skiptinemarnir þrír, Rannveig Jónasdóttir og Ásdís Guðmundsdóttir með Valdísi Dröfn.
Blásarahljómsveit Tónlistarskólans á Sauðárkróki leikur í Bifröst á nýarsfagnaði eldri borgara í ársbyrjun 1990. Stjórnandi hljómsveitarinnar er Sveinn Sigurbjörnsson.