Frá Grettluþingi sem haldið var um Grettir Ásmundarson í Bóknámshúsi Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki í ágúst 1997. Þekkja má í miðröðinni fólk frá Fagranesi. F.v. Guðrún Eiríksdóttir, Jón Eiríksson, Sigurborg Hilmarsdóttir, Kristján Eiríksson, Birna Jónsdóttir og svo Pálmi Sighvatsson.
Fyrsta útsending Rás Fás í desember 1990. Einar Einarsson útvarpsstjóri (t.h.) talar við Jón Hjartarson skólameistara (t.v.) Tjörvi Jónsson dagskrárgerðarmaður er á milli þeirra.
Hljómsveitin Plunge frá Siglufirði sem lék á Opnum dögum í Fjölbrautaskólanum í mars 1997. F.v. Víðir Vernharðsson, Gottskálk Kristjánsson, Sveinn Hjartarson og Jón Svanur Sveinsson.
Mynd sennilega tekin norðan við Verknámshús Fjölbrautaskólans. Tilefnið óþekkt. (1983-1986). F.v. Óþekktur, Sigrún Alda Sighvatsdóttir, óþekktur, Pálmi Rögnvaldsson, Jón Hjartarson, Rúnar Bachmann, Björn Sigurbjörnsson, Jón Ásbergsson (á bak við), Bragi Halldórsson og sr. Hjálmar Jónsson.
Þei kalla sig "Sturluga" og voru með dagskrá á Sal Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki í mars 1997 um Sturlungaöldina í Skagafirði. Jón F. Hjartarson skólameistari Fjölbrautaskólans er fremstur. Framri röð f.v. Magnús Pétursson, Hafsteinn Sæmundsson, Ólafur Sveinsson, Magnús jónsson og Guðmundur Magnússon. Aftari röð f.v. Páll Halldórsson, Sigurjón Páll Ísaksson, Karl Karlsson, Bjarni Dagbjartsson og Tryggvi Sigurbjarnarson.
Ársþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) haldið í Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki í ágúst 1995. F.v. Páll Pétursson félagsmálaráðherra, Björn Sigurbjörnsson formaður SSNV, Anna Kristín Gunnarsdóttir, Steinunn Hjartardóttir og Björn Bjarnason menntamálaráðherra í ræðustóli.
Nemendur í Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki sem útskrifuðust af iðn- og atvinnulífsbraut og einn tæknistúdent vorið 1993. Jón F. Hjartarson skólameistari er fyrir miðju í fremri röð.
Nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki við skólaslit í Sauðarkrókskirkju, hugsanlega vorið 1983 eða 1984. Jón F. Hjartarson skólameistari í aftari röð fyrir miðju.
Nýútskrifaðir sjúkraliðar frá Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki vorið 1988. Þeir fyrstu frá skólanum. Sjúkraliðarnir eru Anna Kristinsdóttir, Brandís Benediktsdóttir, Gréta Björk Úlfsdóttir, Helga Jónsdóttir, Katrín María Andrésdóttir, Kristín Friðbjörnsdóttir og Sigríður Kr. Jónsdóttir og eru þær í aftari röð. Í fremri röð eru f.v. Ásta Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur, Sæmundur Hermannsson sjúkrahúsráðsmaður, Jón F. Hjartarson skólameistari og Jónína Hallsdóttir hjúkrunarforstjóri.
Fyrsta skóflustunga tekin að nýrri sundlaug á Hólum en hún var vígð vorið 1982. T.v. má þekkja Jón Bjarnason skólastjóra Bændaskólans og konu hans Ingibjörgu Kolka og svo Kristján Skarphéðinsson. Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri er næstur á myndinni og Gísli Pálsson frá Hofi er með skófluna.
Tveggja vetra nautkálfur á leið til slátrunar í sláturhús KS haustið 1993 slapp og synti tvær mílur á haf út. Farið var á bát og og kálfinum snúið við og hann bandaður og á endanum leiddur til slátrunar.
Frá vinstri Arna Dröfn Björnsdóttir (1975-), Rakel Rögnvaldsdóttir (1978-), Svanhildur Elsa Jónsdóttir (1942-), Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir (1981-), Auðunn Blöndal (1980-), Indriði Þór Einarsson (1979-), Guðbrandur Jón Frímannsson (1922-2000), Ásdís Guðmundsdóttir (1963-), Guðbrandur Jón Guðbrandsson (1964-). Leikhópur úr revíunni Glaðar tíðir eftir Jón Ormar Ormsson sem Umf. Tindastóll setti upp árið 1997 í tilefni af 90 ára afmæli félagsins. Myndin er tekin í barnaskólnum þar sem Rás 1 tók upp söngvana úr revíunni.
Til vinstri Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson (1963-) og Bára Jónsdóttir. Leikfélag Sauðárkróks setti upp leikritið Deleríum búbónis eftir Jónas og jón Múla Árnasyni haustið 1983.
Leikfélag Skagastrandar setti upp "Stálblómið" síðla vetrar 1993, höfundur Róbert Hartiling, Leikstjóri Jónas Jónasson. Á sviðinu eru Jensína Lýðsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Lovísa Vatner.
Leikfélag Skagastrandar seti upp leikritið Stálblómið eftir Róbert Hartling árið 1993. Leikstjóri Jónas jónasson. F.v. Jensína Lýðsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Elín Njálsdóttir og Guðný Sigurðardóttir.
Samlestur Leikfélag Sauðárkróks á Sæluvikuleikritinu "Klerkar í klípu" sem sett var upp árið 1995. Frá vinstri Guðný Hólmfríður Axelsdóttir (1967-), Dagbjört Elva Jóhannesdóttir (1973), Einar Þorbergsson leikstjóri og Gunnar Bragi Sveinsson (1968-).
Leikritið, Karlinn í Kassanum, sem sett upp af Leikfélagi Sauðárkróks, árið 1994, leikstjóri Jón Ormar Ormsson. Frá vinstri Stefán Steinþórsson(1972-), Katrín María Andrésdóttir (1968-), Hjörvar Halldórsson (1975-).
Frá vinstri, Guðný Hólmfríður Axelsdóttir (1967-), Ragnar Jón Grétarsson, Stefán Steinþórsson (1972-), Katrín María Andrésdóttir (1968-). Leikritið Karlinn í Kassanum sett upp af Leikfélagi Sauðárkróks árið 1994. Leikstjóri Jón Ormar Ormsson.
Leikritið Pétur Gautur eftir Ibsen sem Leikfélag Sauðárkróks setti upp árið 1997. T.v. Gunnar Eyjólfsson (1926-), sem leikstýrði og leikur Pétur Gaut. Til hægri á myndinni er Bragi Haraldsson.
Hafsteinn Hannesson (1936-) var heiðraður af Leikfélagi Sauðárkróks árið 2002 á sýningu félagins á Galdra-Lofti. Formaður félagsins, Guðbrandur J. Guðbrandsson (1964-) veitir viðurkenninguna.
Úr leikritinu Áfram Latibær sem Leikfélag Sauðárkróks setti upp haustið 1998. Leikstjóri Sigurgeir Scheving. Lengst til hægri er Hrafnhildur Viðarsdóttir (1980-) og Vilhjálmur Ingimarsson sennilega fremstur.
Árið 1991 setti Leikfélag Sauðárkróks upp leikritið ,,Köttur á heitu blikkþaki" eftir Tennessee Williams. Leikstjóri Andrés Sigurvinsson t.h. og formaður Leikfélags Sauðárkróks, Skúli Björn Gunnarsson til vinstri.
Til vinstri, Haukur Þorsteinsson (1932-1993) og Jón Ormar Ormsson (1938-). Tilefnið 100 ára afmæli Sauðárkrókskirkju. (22. okt. 1992). Ath. Kirkjan okkar eftir Jón Ormar Ormsson, 1992.
Leikfélag Sauðárkróks setti upp barnaleikritið Kardemommubæinn eftir Thorbjörn Egner í leikstjórn Guðjóns Inga Sigurðssonar haustið 1987. Á myndinni er Hrólfur Viðar Bragason (1964-) sem Jónatan.