Vigdís Finnbogadóttir forseti heimsótti Skagafjörð 23.-25. ágúst 1991. Á myndinni er Þorsteinn Ásgrímsson formaður héraðsnefndar að taka á móti Vigdísi á Alexandersflugvelli þar sem fjöldi fólks var saman komin.
Sjónvarpsfólk frá bandarísku stöðinni ABC var á ferð í Skagafirði í júní 1992 við tökur á efni í vinsælan sjónvarpsþátt sem heitir "Ferðast með ríka og fræga fólkinu". Fyrir hópnum fór Amanda Bears þekkt sjónvarpsstjarna. Þessi þáttur er sýndur í 25 löndum auk Bandaríkjanna.
Félagar í Kiwanisklúbbnum Drangey við félagsheimili sitt á Eyrinni, fyrir brottför hópsins til Færeyja í júní 1995. Steinn Sigurðsson á Mel sá um að flytja hópinn til Seyðisfjarðar þaðan sem farið var með Norrænu.
Útvarp Norðurlands var með útvarp á vöru og þjónustusýningunni á Sauðárkróki sumarið 1997. F.v. eru Kári Jónasson (sem heitir eftir Kárastöðum í Hegranesi), Sigurður Salvarsson og Kristján Sigurjónsson.
Frá talningu atkvæða í alþingiskosningunum vorið 1983. Talning í kjördæminu fór fram í Bifröst og var útvarpað. Á myndinni er Katrín Pálsdóttir fréttamaður RÚV við hljóðnemann ásamt óþekktum tæknimanni. Þorbjörn Árnason í bakgrunni.
Tilg. Bridskeppni, (Fljótamenn og Siglfirðingar) Í efstu röð f.v. Heiðar Albertsson, Reynir Pálsson, Jóhann Stefánsson og Stefán Benediktsson, allir úr Fljótum. Í mið röð f.v. er Anton Sigurbjörnsson, óþekktur, konan gæti verið Björk Jónsdóttir og óþekktur. Í fremstu röð eru f.v. Ásgrímur Sigurbjörnsson, Steinar Jónsson, Jón Sigurbjörnsson og Ólafur Jónsson. Bogi Sigurbjörnsson er aftan við Jón.
Halldór Blöndal samgönguráðharra (t.v.) afhendir Steinunni Ásmundsdóttur ferðamalafulltrúa Héraðs og Borgarfjarðar (eystri) og Sigurjóni Hafsteinssyni starfsmanni Ferðamiðstöðvar Austurlands umhverfisverðlaun á fundi Ferðamálaráðs á Blönduósi í október 1997.
Börn á Hvammstanga fá reiðhjólahjálma að gjöf frá Kvenfélaginu Björk á Hvammstanga. Lögreglumaðurinn er Hermann Ívarsson, lögreglumaðurinn og starfsmaðurinn Árndís Alda Jónsdóttir. Börnin eru, f.v.: Aron Vignir Sveinsson, Andri Páll Guðmundsson, Axel Gústavsson, Þorgrímur Guðni Björnsson, Bryndís Björk Hauksdóttir og Ólafur Hauksson.
Steinunn Hjartardóttir forseti bæjarstjórnar Sauðárkróks (t.h.) afhendir Jóni Arnari Magnússyni frjálsíþróttamanni úr Tindastóli blóm við heimkomu á Sauðárkróksflugvelli er hann hafði unnið til bronsverðlauna í sjöþraut á Heimsmeistaramótinu í Frakklandi í mars 1997. Milli þeirra stendur Ingibjörg Hulda Skúladóttir unnusta Jóns með son þeirra Krister Blær.
Jóni Arnari Magnússyni frjálsíþróttamanni úr Tindastóli fagnað á Sauðárkróksflugvelli er hann kom heim frá Heimsmeistaramótinu í Frakklandi í mars 1997, þar sem hann vann til bronsverðlauna í sjöþraut. F.v. Viggó Jónsson, Jón Arnar Magnússson, Ingibjörg Hulda Skúladóttir unnusta Jóns með son þeirra Krister Blær, þá Gísli Sigurðsson (þjálfari Jóns) og Steinunn Hjartardóttir forseti bæjarstjórnar Sauðárkrróks.
Jóni Arnari Magnússyni frjálsiþróttamanni úr Tindastóli fagnað við komuna til Sauðárkróks eftir að hafa unnið til bronsverðlauna í sjöþraut á Heimsmeistaramótinu í Frakklandi í mars 1997. F.v. Jón Arnar, Krister Blær sonur Jóns, Ingibjörg Hulda Skúladóttir unnusta Jóns og Gísli Sigurðsson þjálfari Jóns.
Sigurvegarar í 50 km Fljótagöngu (á skíðum) í apríl 1999. Trausti Sveinsson, Bjarnagili var frumkvöðull göngunnar. F.v. Birkir Stefánsson (2. sæti), Haukur Eiríksson (1. sæti) og Magnús Eiríksson (3. sæti).
Tilg. Þátttakendur á hestamóti hjá Léttfeta taka við viðurkenningum í Tjarnarbæ. F.v. Anna Lóa Guðmundsdóttir, Sigurlína Magnúsdóttir, Skafti Skaftason, Hallfríður Óladótir og Ragnheiður Silja Have.
Uppskeruhátíð knattspyrnudeildar Tindastóls sem fram fór í Ljósheimum í október 1997. F.v. Valgeir Levy (með viðurkenningu Atla bróður síns), Aníta Jónasdóttir, Anna Lea Gestsdóttir, Jóhann Steinarsson, Sverrir Þór Sverrisson og Sólborg Hermundsdóttir.
Fimmtugsafmælisveisla Pálma "Svaða" Friðrikssonar haldin í Ljósheimum í desember 1993. Hermann Jónsson frá Lambanesi ásamt Svölu Aðalsteinsdóttur (1986-) dótturbarni Pálma.
Á uppskeruhátíð Hestaíþróttadeildar Skagafjarðar í Tjarnarbæ í janúar 1994 voru Magnús Þórir Lárusson og Líney Hjálmarsdóttir verðlaunuð fyrir árangur sinn í hestaíþróttum á árinu 1993. Á myndinni eru þau með verðlaunagripi sína.
Verðlaunaafhending á íþróttavellinum á Sauðárkróki, sennilega á sjómannadaginn. F.v. Guðmundur Hermundsson, næstu 3 óþekktir þá Sigurður Ragnarsson, Halldór Jónsson og Gísli Svan Einarsson.
Verðlaunahafar í Borgarbikarnum í golfi hjá GSS í september 1988. Frá vinstri . Guðmundur Guðmundsson frá Trésmiðjunni Borg, sem sá um verðlaunin, Stefán Pedersen, Haraldur Friðriksson, 2 drengir óþekktir þá Örn Sölvi Halldórsson, Stefán Hreinsson, Friðrik J. Friðriksson, 2 drengir óþekktir, Sigurgeir Angantýsson, Sverrir Valgarðsson og Birgir Guðjónsson.
Meistarflokkur Tindastóls í knattspyrnu vinnur sér sæti í 2. deild Islandsmótsins í ágúst 1983. Myndin tekin á Sauðárkróksflugvelli við komu liðsins eftir sigur á Þrótti og jafntefli við Austra. Guðríður Ólafsdóttir færir Rúnari Björnssyni (t.v.) fyrirliða blóm frá stuðsingsmönnum liðsins. Fyrir miðju er Árni Stefánsson þjálfari og markvörður liðsins með blómvönd frá bæjarstjórn Sauðákróks.
Heimkomu hótelstýrunnar Ásbjargar Jóhannsdóttur í Varmahlíð fagnað í ágúst 1993, en hún hafði verið fjarverandi vegna veikinda, jafnframt var verið að opna hótelið eftir stækkun og endurbætur. Á myndinni er Vigfús Vigfússon ferðamálafulltrúi að færa Ásbörgu blóm í samkvæmi að þessu tilefni.
Bræðurnir frá Steini á Reykjaströnd Hilmar (t.v.) og Jóhann Péturssynir á vöru- og þjónustusýningu á Sauðárkróki sumarið 1997 ásamt konum sínum þeim Ásdísi Jónsdóttur (konu Hilmars) og Ingibjörgu Elíasdóttur (konu Jóhanns).
Fiskeldisfyritækið Máki hóf eldi á barra í Miklalaxeldisstöðinni í Fljótum árið 1998. Framámenn fyrirtækisins eru hér framan við seiðaeldisstöðina á Lambanesreykjum haustið 1998. Þekkja má Vilhjálm Bjarnason lengst t.v. Harald J. Haraldsson (í Andra) fjórði f.v. þá Árna Egilsson, Guðmund Örn Ingólfsson og Halldór Halldórsson. Aðrir óþekktir.
10 nýjar sláttuvélar voru afhentar eigendum sínum á hafnargarðinum á Sauðárkróki vorið 1997. Vélarnar sem voru settar saman og tollafgreiddar á Sauðárkróki voru keyptar af Búvélum hf. en forgöngu um kaupin hafði Sigmar Jóhannsson, Sólheimum. F.v. Egill Örlygsson Daufá, Óskar Broddason Framnesi, Vagn Stefánsson Minni-Ökrum, Sigurður Baldursson Páfastöðum, Sveinn Allan Morthens Garðhúsum, Theódór Júlíusson frá Búvélum, Pálmar Jóhannesson Egg, Pálmi Ragnarsson Garðakoti, Halldór Steingrímsson Brimnesi, Ragnar Gunnlaugsson Hátúni og Sigmar Jóhannsson Sólheimum.
Haustið 1992 voru 10 nýjar parhúsaíbúðir við Jökla- og Laugatún afhentar eigendum sínum. Íbúðirnar voru byggðar í félagslega kerfinu og verktaki var Friðrik Jónsson sf.
Tilg. Mjólkurinnleggjendur hjá mjólkursamlaginu á Blönduósi fá viðurkenningu fyrir góða mjólk. F.v Gunnar Ástvaldsson og Þuríður Guðmundsdóttir frá Hvammi, Jóhannes Torfason, Torfalæk, Páll Svavarsson mjólkurbússtjóri, Elín Sigurðardóttir, Torfalæk og Sigríður Höskuldsdóttir og Stefán Jónsson frá Kagaðarhóli.
Verið að gera klárt á Hellulandi vorið 1991, fyrir tökur á þýsku framhaldsmyndaþáttunum "Fast im Settel". F.v. Einar Unnsteinsson, Eggert Einarsson, Jökull Eggertsson, sem lék eitt stærsta hlutverkið, Jón Óskar Valgeirsson, Guðmundur Jóhannesson og Kári Esra.
Á Dönskum dögum í sæluviku á Sauðárkróki vorið 1997 bauð danska sendiráðið á Íslandi til samsætis á Kaffi Krók, þar sem boðið var Dönum sem búa í héraðinu og fjölskyldum þeirra, ásamt ýmsum ráðamönnum. Þekkja má fimm konur í miðröðinni f.v. Birgitte Bærendtsen, Útvík, Hanna Eiríksson, Skr. Minna Bang, Skr. og Merete Rabölle, Hrauni Skaga. og Rike Mark Schults dýralækni lengst t.h.