Svanhildur Guðjónsdóttir Hofsósi lengst t.v. en hún hafði saumað íslenska fánann í áratugi. Með henni á myndinni eru f.v. Ingólfur Margeirsson frá þjóðhátíðarnefnd, Árni Sigfússon borgarstjóri og Haraldur Sumarliðason form. Samtaka iðnaðarins. Myndin er tekin í Dillonshúsi í Árbæ.
F.v. Sigurður Guðjónsson með selabyssu Jóns Ósmanns Magnússonar frá Utanverðunesi, Páll Stefánsson, þorkell Þorsteinsson og Jóhann Kristinn Sigurgeirsson, en hann smíðaði kassa undir byssuna og er kassinn á milli þeirra. Myndin er tekin á hlaðinu á Byggðasafninu í Glaumbæ þar sem byssan er til sýnis.
Óþekkt veisla í Miðgarði. F.v. Þór Hjaltalín, Helgi Jónsson Merkigili, Konráð Gíslason og Helga Bjarnadóttir frá Frostastöðum. Á bak við t.v. gæti verið Steinunn Hjálmarsdóttir. Sama tilefni og myndin á undan.
Mjólkurframleiðendur sem löggðu inn hjá mjókurstöðinni á Blönduósi 1992 heiðraðir fyrir úrvalsmjólk, en til þess að fá þessa viðurkenningu þarf öll mjólk ársins að vera með með mjög lága gerla og frumutölu. Framleiðendurnir 7 sem fengu þessa viðurkenningu eru, frá Neðri-Harastöðum, Hlíð í Skagahreppi, Auðólfsstöðum, Austurhlíð, Blöndudalshólum, Steiná III og Hvammi í Ásahreppi.
Lengst til vinstri stendur Örn Ingi, þriðji f.v. Vigfús Vigfússon og María Björk Ingvadóttir lengst t.h. Líklega er þetta í tengslum við Sumarsæluviku árið 1994 en þá var Örn Ingi framkvæmdastjóri hátíðarinnar. Þessi hópur er líklega veitingarhúsarekendur á Sauðárkróki sem tóku sig saman og buðu upp á sérbruggaðan bjór í tilefni hátíðarinnar.
Tilg. RKS-skynjaratækni ehf Sauðárkróki setti á markað gasskynjara (1996). F.v. Rögnvaldur Guðmundsson RKS, þorsteinn Ingi Sigfússon forstjóri Nýsköpunarmiðstöðfar og Jón E. Friðriksson.
Hópur Rússa kom í heimsókn í Steinullarverksmiðjuna vorið 1990 til að kynna sér starfsemina og þá sérstaklega mengunarvarnir sem voru með því besta sem þá þekktist í sambærilegum verksmiðjum.
Tilg. Kynning í Mjólkursamlagi KS. Sveitastjórnarfulltrúar 1986-1990. F.v. Hörður Ingimarsson, Jón E Friðriksson, Anna Kristín Gunnarsdóttir, Magnús Sigurjónsson (bak við Kristínu), Knútur Aadnegard (bak við Hauk) Haukur Pálsson ostameistari, Aðalheiður Arnórsdóttir, Snorri Evertsson samlagsstjóri og (Árni Egilsson).
Opið hús hjá Hitaveitu Sauðárkróks í tilefni Norræns tækniárs 1988. Maðurinn fjærst með gleraugu er Ingimar Bogason og konan lengst t.h. er Engilráð Sigurðardóttir. aðrir óþekktir.
Fimm stúlkur sem héldu tombólu til styrktar Dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki í ágúst 1987. Þær eru f.v. Þóra Björk Þóhallsdóttir, Þórdís Ósk Rúnarsdóttir, Steina Margrét Finnsdóttir, Emma Sif Björnsdóttir og Þorgerður Eva Þórhallsdóttir.
Jarðborinn sem Jón Nikódemusson smíðaði til borunar eftir heitu vatni við Áshildarholtsvatn, en það mun vera fyrsti borinn sem notaður var á Króknum. Hann er nú staðsettur við dælustöðina í Sauðármýrum, þar sem myndin er tekin.
Frá ferð blaðamanna upp á Skálfelljökul og að Jökulsárlóni í boði Jöklaferða og innanlandsflugi Flugleiða í júlí 1990. Konan lenst t.v. gæti verið Soffía Káradóttir.
Króksmót. Ingvar Magnússon (1960-) þjálfari t.v. í rauðri peysu og sennilega Ómar Braga Stefánsson t.h. Á bak við við Ingvar t.h. eru Stefán Logi Haraldsson og Jón Arnar Magnússon.
Kálfur sem var á leið til slátrunar í sláturhúsi KS slapp og synti 2 mílur á haf út áður en hann náðist. Þórður Þórarinsson er hvítklæddur í fjörunni og í stefni bátsins eru Ragnar Magnússon t.v. og Haraldur Ingólfsson t.h. Aðrir óþekktir.
Tilg. Fyrsta skóflustunga tekin af byggingu félagsheimilisins Ljósheima. Svavar Hjörleifsson í Lyngholti stendur hjá barninu með skófluna og Fjóla Bárðdal í Messuholti er hjá hinu barninu.
Réttarstemming í Skrapatungurétt haustið 1991. Þekkja má f.v. Valgarð Hilmarsson, Fremstagili, Hauk Pálsson, Röðli, Ragnar Þorgeirsson , Blönduósi (á bak við Hauk) Einar Þorgeir Húnfjörð Guðlaugsson, Blönduósi, Grím Gíslason, Saurbæ og Guðmund Inga Leifsson á bak við Grím.
Landsmót UMFÍ á Sauðárkróki 1971. Fánaberi Ingimundur Ingimundarson. Til vinstri við Ingimund er Guðríður Aadnegard og aftan við hana er Þórunn Sighvats. Til hægri í annari röð er Þórdís Friðbjörnsdóttir. Aðrir óþekktir.