Fólk sem stóð að sýningunni "Konur á Króknum" sem sett var upp í Barnaskólanum við Freyjugötu afmælisárið 1997. F.v. Helga Sigurbjörnsdóttir, Jón Þórisson, Sigurlaug Magnúsdóttir og Aðalheiður Arnórsdóttir.
Námskeið fyrir trúnaðarmenn á vinnustöðum haldið í matsal slátuhúss KS í ársbyrjun 1989. Fremst eru Snorri Konráðsson frá MFA (t.v.) og Björn Sighvats kennari t.h. Aftar má þekkja f.v. Bjarna Halldórsson (vð súluna), Ólaf Guðmundsson (ber yfir öxlina á Birni) og Harald Þórðarson lengst t.h.
Frá prófkjöri Framsóknar í janúar í N.v. kjördæmi, fyrir þingkosningarnar 1995, en slæmt veður tafði fyrir talningu. Á myndinni kemur Jóhannes Rikharðsson Brúnastöðum (t.v.) með kjörkassann úr Fljótahreppi í Framsóknarhúsið á Skr. og við honum tekur Sighvatur Torfason.
Viðurkenningar veittar fyrir snyrtilegar lóðir á Króknum sumarið 1996. F.v. Gunnar Pétursson og Páll Pálsson vegna áhaldahúss bæjarins, Dóra Magnúsdóttir og Halla Rögnvaldsdóttir á Skagfirðingabraut 11, Kristján Helgason og Dóra Sigurjónsdóttir í Hvannahlíð 2 , Viggó Jónsson og Rannveig Helgadóttir í Hólatúni 2.
Frétt í Feyki sumarið 1995 um hamingjusamt par á Króknum. Þau Judí Collin frá Massachusets í Bandaríkjunum og Jakob Ragnarsson Skr. kynntust með aðstoð heimilistölvu og gagnabanka á Keflavíkurflugvelli.
Þuríður Harpa Sigurðardóttir (t.v.) og Hólmfríður Guðmundsdóttir opnuðu handiðnaðar- og listmunaverslunina "Gallerí Villa Nova" haustið 1992 í kjallara Villa Nova.
Krakkar í Gagnfræðaskóla Sauðárkróks unnu til verðlauna í hjólreiðakeppni grunnskóla, sem fram fór á landinu haustið 1993. Hjólreiðameistarar taka við verðlaunum. Frá vinstri, Margrét Ágústa Sigurðardóttir (1980-), Ásgrímur Örvar Jónsson (1980-), Sveinbjörn Ólafur Ragnarsson (1958-) lögregluþjónn, Bríet Jóhannesdóttir (1980-), Björn Ingvi Sigurbjörnsson (1946-) skólastjóri og Hrannar Freyr Gíslason (1980-).
Verðlaun sem fegrunarnefnd Blöndósbæjar veitti fyrir snyrtimennsku haustið 1995 til tveggja aðila. Annars vegar til Upplýsingamiðstöðvar ferðamála í Brautarhvammi, fyrir einstaklega vel heppnaða endurbyggingu og nýtingu gamals húss og hins vegar fyrir fallega og vel hirta lóð að Árbraut 7. Á myndinni eru f. v. Páll Þórðarson með verðlaun Upplýsingamiðstöðvarinnar, Skúli Þórðarson bæjarstjóri og Sigursteinn Guðmundsson með verðlaun fyrir Árbraut 7.
Páll Halldórsson yfirflugstjóri (t.v.) og Óttar Sveinsson blaðamaður. Tilefnið er kafli í þá nýútkominni bók Óttars "Útkall" 1994 þar sem segir frá björgun skipverja á Barðanum um borð í flugvélina Sif í mars 1987.
Frá hittingi félags þroskahamlaðra frá Reykjavík og Akureyri við Ásbyrgi í Miðfirði vorið 1991, þar sem haldin var grillveisla. En ákveðið var að hittast á miðri leið.
Álftir á flóanum við Hróarsdal vorið 1992. Skagfirskar álftir með gerfihnattasendi sem flugu til vetrarstöðva sinna nærri Glasgow í Skotlandi haustið 1992 voru 9 klukkustundir á leiðinni og flugu að jafnaði á 130 km hraða, flughæð 30-50m.
Kristinn Einarsson Skagamaður tekur land á Reykjum að loknu Drangeyjarsundi vorið 1995. Var hann fimm og hálfan tíma að synda frá Drangey til lands og sá sjöundi sem þreytti Drangeyjarsund.
Bændur bjóða heim sumarið 1996. Heimilisfólk og gestir á Syðri-Hofdölum. Á þessum árum bjuggu 5 ættliðir á Syðri-Hodölum sem eru á myndinni. Helga Rögnvaldsdóttir ættmóðirin (önnur f.h. í mið röð), Rannveig Jóna Traustadóttir (lengst t.h. í öftustu röð), Trausti Kristjánsson (lengst t.v. í öftustu röð), Atli Már Traustason (lengst t.h. í mið röð) heldur á Friðriki Andra Atlasyni. Sams konar mynd nr 1004.
Tumi Tómasson fiskifræðingur hjá Veiðimálastofnun sýnir hvernig á að ná kvörnum úr silungi til aldursgreininga á námskeiði um nýtingu silungs sem haldið var á Hólum vorið 1985.
60 ára afmælishóf Verkalýðsfél. A-Hún. haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi haustið 1990. Næst á myndinni er Valdimar Guðmannsson form. VAH og við hlið hans er Vigdís Óskarsdóttir starfsmaður verkalýðsfélagsins. Aðrir óþekktir.
Ársþing SSNV haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi í ágúst 1994. Við borðið fjærst má þekkja f.v. óþekktur, Símon Traustason Ketu , Agnar Gunnarsson Miklabæ, Eyjólf Pálsson Starrastöðum, óþekktur og Erlend Eysteinsson Stóru-Giljá.
Forsvarsmenn fyrirtækja á Króknum o.fl. sem gerðu Jóni Arnari Magnússyni tugþrautakappa kleift að einbeita sér alfarið að undirbúningi Ólympíuleikanna í Atlanta 1996. Standandi f.v. Júlíus Hafstein form. Ol-nefndar Íslands Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri, Knútur Óskarsson stjórnarmaður í frjálsíþróttasambandinu, Einar Einarsson framkvæmdastjóri Steinullar, Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri, Gestur Þorsteinson bankastjóri, Einar Svansson framkvæmdastjóri Fisk, og Steinunn Hjartardóttir forseti bæjarstjórnar Skr. Framan við eru Jón Arnar Magnússon tugþrautakappi t.v. og Gísli Sigurðsson þjálfari Jóns. Myndin tekin framan við Ráðhúsið í ágúst 1995.
Mynd úr járnsmiðju Ingimundar Bjarnasonar, Suðurgötu 5 Skr. (Árbakka) vorið 1997, en smiðjan var starfrækt frá miðjum þriðja áratugn síðustu aldar fram á sjöunda áratuginn. Árni Guðmundsson (annar f.v.) segir frá smiðjunni. Til vinstri við Árna er Páll Brynjarsson og Haraldur Þórðarson t.h. Lengst t.h. er óþekktur.
Frá vinstri Ingvi Þór umboðsmaður ferðaskrifstofunnar Úrval Útsýn á Blönduósi og Hallbjörn Kristjánsson sem vann ferð til Ítalíu í happdrætti ferðaskifstofunnar síðla vetrar árið 1998.
Héraðssýning kynbótahrossa á Vindmeimamelum vorið 1996. Þrír hæst dæmdu 4 vetra stóðhestar. F.h. Fengur (efstur) og Magnús Magnússon, Fleygur og Jóhann Þorsteinsson, Svartur og Guðmundur Sveinsson.
Lionsklúbbur Sauðárkróks færir Félagi eldri borgara hljóðkerfi að gjöf haustið 1996. Fjóla Þorleifsdóttir ljósmóðir (lengst t.h) þakkar gjöfina. Fjær t.h. stendur Guðmann Tóbíasson sem afhenti gjöfina fyrir hönd Lionsklúbbsins og hjá honum situr Sigmundur Pálsson. Þekkja má Rögnvald Gíslason við borðið nær, Áshildi Öfjörð við borðið fjær (ber í vegginn) og Sigríði Jóhannesdóttur t.h. við borðið fjær.
Spaugstofan heimsækir Skagafjörð í ágúst 1995 en þá skemmti hún í Miðgarði. Á myndinni eru Spaugstofumenn fyrir framan Bláfell á Sauðárkróki ásamt aðdáendum sínum.
Árgangur frá 1943 á Skr. og makar framan við Barnaskólann við Freyjugötu. F.v. Hulda Vilhjálmsdóttir, Óskar Jónsson, Rósa Sighvats, Margrét J. Gunnarsdóttir, Sigrún Angantýsdóttir, Hjörtína Dóra Vagnsdóttir, Jóhanna Valdimarsdóttir, Birna Guðjónsdóttir, Sólrún Steindórsdóttir, Pálína Pétursdóttir, Hörður Ingimarsson, Ólafur Pálsson, Björn Björnsson og Bjarni Nikulásson.
Gunnlaugur Sigurjónsson (sonarsonur Markúsar á Reykjarhóli) með gimbur í desember 1995 sem álitið var að væri nýkomin undan snjó, en hefði fennt fyrir veturnætur.
Kláffestur við Austari-Jökulsá gengt Skatastöðum (Skatastaðakláfur). F.v. Jóhann Björnsson, Tryggvi Eggertssonog Skúli Þórðarson Hvammstanga. Mynd áður komin, no 469.
Hásetar á Málmey SK 1. F.v. Sigurlaug Kristín Eymundsdóttir, Þórey Sigurjóna Karelsdóttir og Heiða Björg Friðjónsdóttir nýkomnar úr 57 daga veiðferð úr Smugunni haustið 1996.