Tindastólsstrákarnir í 5. flokki A, urðu að láta sér lynda annað sætið í sínum flokki árið 1993 á Króksmóti í fótbolta. F.v. Björn Björnsson þjálfari, óþekktur, Þorsteinn Lárus Vigfússon (1981-), Þorsteinn Hjálmar Gestsson (1982-), Stefán Arnar Ómarsson (1982-), Helgi Freyr Margeirsson (1982-), Dúfa Dröfn Ásbjarnardóttir (1982-), Árni Vigfússon (1981-) og Haukur Skúlason (1981-).
Skáli skátafélagsins Eilífsbúa sem byggður var af Byggingafélaginu Hlyn tilbúinn til flutnings að Brekku í Seyluhreppi í ágúst 1990. Björn Guðnason á gangi framan við skálann.
Framkvæmdir við byggingu Bóknnámshúss Fjölbrautaskólans eru þarna komnar vel í gang en í ágúst 1991 var tekið á móti fyrstu steypu í húsið. og voru það fimm rúmetrar sem fóru í undirstöður undir sökkla.
Tilraunavinnsla á ígulkerjahrognum hjá hlutafélaginu ÍSEX á Sauðárkróki í janúar 1993. Grein í Feyki 27/1 1993. Önnur frá vinstri er Anna Guðbrandsdóttir (með svarta hanska). Hægri megin er Svanur Fannberg (með gleraugu).
Rækjuvinnsla að hefjast að nýju í Dögun Sauðárkróki í febrúar 1994 eftir stopp vegna lagfæringar á vinnslusal. Grein í Feyki 9/2 1994. Fremst vinstra megin er Guðbjörg Elsa Helgadóttir og við hlið hennar Sigurlaug Viðarsdóttir. Á móti Guðbjörgu er Aðalheiður Aradóttir.
Starfsfólk Landsbankans á Sauðárkróki og fulltrúar bankans við opnun útibúsins að Suðurgötu 1 í febrúar árið 1991. Í fremri röð Þórunn Jónasdóttir, Hrefna Þórarinsdóttir, og María Lóa Friðjónsdóttir, afgreiðslustúlkur útibúsins og Jóhann Ólafsson fulltrúi í Samvinnubankanum. Í aftari röð eru Gunnlaugur Sigmarsson, Landsbankanum á Skagaströnd, Pétur Erlendsson fyrrv. aðstoðarbanakastjóri Samvinnubankans, Sigmundur Guðmundsson útibússtjóri Landsbankans á Sauðárkrók, Geir Magnússon fyrrv. bankastjóri Samvinnubankans og Guðjón Guðjónsson fulltrúi Samvinnubankanum.
Mjólkursamlag KS á Sauðárkróki fær viðurkenningu í janúar 1998 á innra eftirliti vegna aðildar Íslands að EES samningi. Jón Þór Jósefsson (1965-) gæðastjóri og Herdís Klausen (1954-) formaður heilbrigðisnefndar Skagafjarðar með viðurkenninguna. Snorri Evertsson (1944-) mjólkursamlagsstjóri er lengst til vinstri og Sigurjón Þóraðarson (1964-), heilbrigðisfulltrúi lengst til hægri. Með þeim á myndinni er starfsfólk samlagsins.
10 bændur keyptu jafn margar sláttuvélarnar í einum pakka frá Búvélum hf. í júní 1997. Voru vélarnar tollafgreiddar og settar saman á Sauðárkróki. Frá vinstri, Egill Örlygsson, Óskar Broddason, Vagn Þormar Stefánsson (1965-), Sigurður Baldursson (1963-), Sveinn Allan Morthens (1951-), Theódór Júlíusson frá Búvélum, Þórður Pálmar Jóhannesson (1945-2012), Pálmi Ragnarsson, Halldór S. Steingrímsson (1955-), Ragnar Gunnlaugsson (1949-) og Sigmar Jóhannsson (1947-) sem gekkst fyrir kaupunum.
Guðmundur Bjarnason umhverfis og landbúnaðarráðherra leit við í Sjávarleðri h.f í heimsókn á Sauðárkrók í febrúar 1997. Frá vinstri: Stefán Guðmundsson alþingismaður, Guðmundur Bjarnason ráðherra, Hrafn Hallgrímsson fylgdarmaður ráðherra og Friðrik Jónsson hjá Sjávarleðri.
Þingflokkur Sjálfstæðismanna skoðar framleiðslu Loðskinns og Sjávarleðurs í heimsókn í Skagafjörð vorið 1997. Sigurður Karl Bjarnason (1945-) frá Loðskinni lengst til hægri, segir frá starfseminni.
20 ára afmælifagnaður Róberts Baldvinssonar í Bifröst í nóvember 1992. Hljómsveitin Afreg rifjar upp gamla takta: Ari Björn Sigurðsson (1973-), Róbert Páll Baldvinsson afmælisbarnið (1972-), Ellert Jóhannson (1973-), Kristján Kristjánsson (1973-á bak við Róbert) og Fjölnir Ásbjörnsson (1973-).
Unnið að lagfæringu og endurbótum á hafnargarðinum á Sauðárkróki vorið 1995 en brim liðins vetrar höfðu skemmt garðinn. Maðurinn sem krýpur gæti verið Ólafur Guðmundsson.
Blaðagrein í Feyki um hvernig gera má Borgarsandinn að skemmtilegu útivistarsvæði. Frá vinstri Þór Sigurðsson og eiginkona hans Herdís Stefánsdóttir ásamt Þórdísi dóttur þeirra og með þeim er Katrín Ingimundardóttir.
Dagskrá tileinkuð tithöfundinum Guðrúnu frá Lundi, var í Bifröst í vetrarbyrjun 1996 en þá voru um 50 ár frá útkomu fyrstu bókar hennar Dalalífi. Marín dóttir Guðrúnar (næst) var mætt á samkomuna ásamt Hrafni Þórissyni sínum, lengst til hægri, og konu hans Valgerði Jónu Sigurðardóttur, lengst til vinstri ásamt börnunum.
Lengst til vinstri stendur Örn Ingi, þriðji f.v. Vigfús Vigfússon og María Björk Ingvadóttir lengst t.h. Líklega er þetta í tengslum við Sumarsæluviku árið 1994 en þá var Örn Ingi framkvæmdastjóri hátíðarinnar. Þessi hópur er líklega veitingarhúsarekendur á Sauðárkróki sem tóku sig saman og buðu upp á sérbruggaðan bjór í tilefni hátíðarinnar.