Íslensk erfðagreining og Heilbrigðisstofnunin á Sauðárkróki stóðu fyrir fundi á Kaffi Krók haustið 1998 um miðlægan gagnagrunn. T.h. talar Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Fyrir miðju er Friðrik J. Friðriksson læknir.
Við setningu Sæluviku í Safnahúsinu á Sauðárkróki vorið 1998 var opnuð sýning á trélist. Næst eru f.v. Jón Gissurarson Víðamýraseli, Hrólfur Jóhannesson, Sigríður Ragnarsdóttir og Birna Guðjónsdóttir.
Við setningu Sæluviku í Safnahúsinu vorið 1998 var opnuð sýning á trélist. Þekkja má Guðmund Márusson lengst t.v. og í sætaröðinni fyrir framan f.v. Snorri Björn Sigurðsson, Hjalti Pálsson, Gísli Frostason og Marteinn Steinsson. Fremst eru Ingveldur Rögnvaldsdóttir og Guttormur Óskarsson.
Frá verðlaunaafhendingu á Grettisbikarnum í Sundlaug Sauðárkróks sumarið 1999. Frá vinstri, Valgeir Steinn Kárason (1951-) sem vann bikarinn það ár og faðir hans Kári Steinsson (1921-2007) sem vann bikarinn þegar fyrst var keppt um hann árið 1940 í Varmahlíð.
Sendiherra Kína á Íslandi Wang Ranghau skoðar framleiðslu Sjávarleðurs í heimsók í Skagafjörð sumarið 1999. F.v. Snorri Björn Sigurðsson (1950-) sveitastjóri, Friðrik Jónsson (1960-) framkvæmdastjóri, sendiherrann og sr. Gísli Gunnarsson (1957-). forseti sveitastjórnar.
Snediherra Kína Wang Ranghau ásamt föruneyti heimsækir Sjávarleður á Sauðárkróki í ágúst 1999. Með á myndinni eru Friðrik Jónsson (1960-) framkvæmdastjóri (annar f.v.) og Gísli Gunnarsson (1957-) forseti sveitastjórnar (þriðji f.h.).
Ný prentvél tekin í notkun hjá "Hvítt og svart" haustið 1999. Frá vinstri Snorri Björn Sigurðsson (1950-), Pétur Ingi Björnsson (1971-) Ríkharður Máson (1943-), Ingi Friðbjörnsson (1945-) og Gestur Þorsteinsson (1945-), óþekktur og Stefán Guðmundsson fyrv. alþingismaður, en hann ræsti vélina. Aðrir óþekktir.
Ný prentvél tekin í notkun hjá "Hvítt og svart" haustið 1999. Frá hægri Ágúst Kárason, Sigríður Björg Gísladóttir, Reynir Kárason, Hjalti Pálsson og Sigurlaugur Elíasson.
Króksmót. Ingvar Magnússon (1960-) þjálfari t.v. í rauðri peysu og sennilega Ómar Braga Stefánsson t.h. Á bak við við Ingvar t.h. eru Stefán Logi Haraldsson og Jón Arnar Magnússon.
Lengst til vinstri stendur Örn Ingi, þriðji f.v. Vigfús Vigfússon og María Björk Ingvadóttir lengst t.h. Líklega er þetta í tengslum við Sumarsæluviku árið 1994 en þá var Örn Ingi framkvæmdastjóri hátíðarinnar. Þessi hópur er líklega veitingarhúsarekendur á Sauðárkróki sem tóku sig saman og buðu upp á sérbruggaðan bjór í tilefni hátíðarinnar.
Björn Jóhann Björnsson (1967-) afhendir vinning í happdrætti FÁS í janúar 1987. Hinir heppnu heita Jóhann Helgi Sigmarsson (1969-) t.v. og Sigurður Árnason (1968-). Vinningurinn var Ladan sem er í baksýn.
Skrifstofa Sjóvá sem opnaði nýja skrifstofu að Skagfirðingabraut 9 Skr. síðla vetrar 1988. Umboðsmaður Sjóvá er Anna Pála Guðmundsdóttir við borðið t.h. og starfsmaður er Ásdís Sigríður Hermannsdóttir (1949-). við borðið t.v. Viðskiptavinur er óþekktur.