Fólk sem stóð að sýningunni "Konur á Króknum" sem sett var upp í Barnaskólanum við Freyjugötu afmælisárið 1997. F.v. Helga Sigurbjörnsdóttir, Jón Þórisson, Sigurlaug Magnúsdóttir og Aðalheiður Arnórsdóttir.
Ársþing SSNV haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi í ágúst 1994. Við borðið fjærst má þekkja f.v. óþekktur, Símon Traustason Ketu , Agnar Gunnarsson Miklabæ, Eyjólf Pálsson Starrastöðum, óþekktur og Erlend Eysteinsson Stóru-Giljá.
Héraðssýning kynbótahrossa á Vindmeimamelum vorið 1996. Þrír hæst dæmdu 4 vetra stóðhestar. F.h. Fengur (efstur) og Magnús Magnússon, Fleygur og Jóhann Þorsteinsson, Svartur og Guðmundur Sveinsson.
Hásetar á Málmey SK 1. F.v. Sigurlaug Kristín Eymundsdóttir, Þórey Sigurjóna Karelsdóttir og Heiða Björg Friðjónsdóttir nýkomnar úr 57 daga veiðferð úr Smugunni haustið 1996.
Björgunarsveitin Skagfirðingasveit við heimkomu á Sauðárkróksflugvelli í janúar 1995, eftir að sveitin hafði farið vestur til Súðavíkur til björgunarstarfa eftir að snjóflóð féllu þar. Sveitin lenti í aftaka veðri með MS Múlafossi og tafðist í 3 sólahringa og komst því ekki vestur í tæka tíð.
Óþekkt samkoma. við borðið til vinstri má þekkja f.v. Drífu Jónatansdóttur (sést að hluta), Birgittu Pálsdóttur, Guðrúnu Sölvadóttur og Guðmund Ragnarsson.
Jón Arnar Magnússon tugþrautakappi kjörinn íþróttamaður Umf. Tindastóls og Sauðárkróks 1995. Þess má og geta að hann var jafnframt íþróttamaður ársins í kjöri íþróttafréttamanna. Á myndinni er Páll Ragnarsson formaður Tindastóls t.v. að heiðra Jón Arnar í hófi sem haldið var honum til heiðurs í janúar 1996.
Vélsmiðja Húnvetninga smíðaði dósasöfnunarílát sem vakti mikla athygli á vörusýningu á Blönduósi sumarið 1996. Á myndinni eru Tryggvi Gíslason, Eysteinn Jóhannsson og Vilhjálmur Stefánsson.
Fundur sem iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið stóð fyrir um atvinnumál á Sauðárkróki í ársbyrjun 1996. Við borðið næst hægra megin má þekkja f.v. Snorra Björn Sigurðsson bæjarstjóra, Sigurð Ágústsson rafveitustjóra, Rögnvald Guðmundsson frá RKS og Birgi Gunnarsson framkvæmdastjóra Sjúkrahússins.
Kvenfélag Sauðárkróks færir Sjúkrahúsi Skagfirðinga fæðingarmonitor (sírita) til notkunar á fæðingadeild, í desember 1995. Aftast eru María Ingiríður Reykdal Hauksdóttir, Starrastöðum (1958-) t.v. og Branddís Eyrún Benediktsdóttir (1946-). Í miðröð er Helena Magnúsdóttir í miðjunni, hinar óþekktar og fremst eru Sigríður Jónsdóttir frá Vallanesi t.v. og við gluggann er Lovísa Símonardóttir (1948-).
Hans Birgir Friðriksson (1953-) að vinna að grjóthleðslu í Kirkjustíg sumarið 1993. Honum til aðstoðar eru Arndís Jónsdóttir (1977-) og Bára Tavsen Rúnarsdóttir (1977-).
Félagar úr Björgunarsveitinni Skagfirðingasveit. F.v. Páll Sighvatsson, Sigurður H. Ingvarsson, Haraldur Jóhann Ingólfsson (1967-) og Þorsteinn Valsson(1967-). Tilefnið óþekkt.
1000 ára kristni í Húnaþingi minnst með hátið við Gullstein skammt frá Stóru-Giljá 19 júlí 1981. Við það tækifæri skírði Sigurbjörn Einarsson biskup stúlkubarn er hlaut nafnið Hulda Dóra. Þekkja má Erlend Eysteinsson Stóru-Giljá á miðri mynd en hann var afi stúlkunnar sem skírð var.
Dúndrandi sveifla á Hótel Íslandi á frumsýningu "Syngjandi sveiflu" Geirmundar Valtýssonar (1944-) í febrúar 1993. F.v. Geirmundur, Guðrún Gunnarsdóttir, óþekktur, Berglind Björk Jónasdóttir og Ari Jónsson.
Frá Grettluþingi um Grettir Ásmundarson sem haldið var í Bóknámshúsi Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki í ágúst 1997. Þekkja má Sverri Pál Erlendsson næst t.v. og Eirík Rögnvaldsson næst t.h.
Samverustund í Bóknámshúsi Fjölbrautaskólans vegna snjóflóðanna sem féllu á Flateyri í október 1995. Í sætaröðinni næst eru f.v. Hólmfríður Guðmundsdóttir, Friðrik Jónsson og Atli Hjartarson.
Námskeið fyrir atvinnulausa haldið í Fjölbrautaskólanum í ársbyrjun 1995. Það er Sigríður Sigurjónsdóttir sálfræðingur (legst t.v.) sem er með fyrirlestur.
Sveit og þjálfari Fjölbrautaskóla Norðulands vestra sem tóku þá í spurningakeppni framhaldsskólanna veturinn 1992. F.v. Geirlaugur Magnússon þjálfari, Páll Ingi Jóhannesson, Ragnar Lundberg og Fjölnir Ásbjörnsson.
Lionsklúbbur Sauðárkróks gaf félagsmiðstöðinni Frið sjónvarp og leikjatölvu í desember 1999. Mennirnir til hægri eru f.h. Eiður Benediktsson, Birgir Gunnarsson og Eiríkur Loftsson. Unglingarnir óþekktir.
Frá undirritun samnings um uppbyggingu Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki milli sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og ríkisins, sem fram fór í verknámshúsi skólans í desember 1990. Þá var nafni skólans breytt í Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra á Sauðárkróki. Þekkja má við enda borðsins f.v. Svavar Gestsson menntamálaráðherra, Þorbjörn Árnason formann skólanefndar, Jón F. Hjartarson skólameistara og Ragnar Arnalds þingmann (eða ráðherra).
Ólafur B. Óskarsson bóndi í Víðidalstungu í ræðustóli, hugsanlega þegar Bóknámshús Fjölbrautaskólans var tekið í notkun haustið 1994 en hann talaði þar fyrir hönd sveitastjórna á Norðurlandi vestra.
Sólveig Fjólmundsdóttir frá Hofsósi (önnur f.v.) sigraði í "Öskri" söngvarakeppni Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki í febrúar 1998. Til vinstri við Sóveigu eru Ragnar Magnússon, Þóra Þórhallsdóttir og Eiríkur Hilmisson.
Keppendur og aðstendur stærðfræðikeppni Fjölbrautaskólaskólans á Sauðárkróki sem fram fór vorið 1998. Jón F. Hjartarson skólameistari Fjölbrautaskólans er lengst t.v. og Kristján Halldórsson verkfræðingur og frumkvöðull keppninnar er lengst t.h.
Þrem af þeim sem synt hafa Drangeyjarsund var boðið til eyjarinnar sumarið 1994 af Jóni Eiríkssyni á Fagranesi. Mennirnir eru f.v. Pétur Eiríksson, Axel Kvaran, Jón Eiríksson og Eyjólfur Jónsson. Pétur synti árið 1936, Axel árið 1939 og Eyjólfur árin 1957 og 1959. Á myndinni eru þeir á bryggjunni í Uppgönguvíkinni í Drangey.