Bæjarstjórnarfundur í bæjarstjórn Sauðárkróks. F.v. Anna Kristín Gunnarsdóttir, Bjarni Brynjólfsson, Stefán Logi Haraldsson, Steinunn Hjartardóttir, Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri (í ræðustóli), Elsa Jónsdóttir ritari, Björn Sigurbjörnsson og Björn Björnsson.
Fundur á Hvammstanga, hugsanlega stofnfundur SSNV en samtökin voru stofnuð á Hvammstanga haustið 1992. Björn Sigurbjörnsson skólastjóri í ræðustóli en hann var fyrsti formaður samtakanna.
Sveitarfélaganefndin sem undirbýr sameiningu sveitarfélaga á fundi með sveitarstjórnarmönnum á Norðurlandi vestra í Safnahúsinu á Sauðárkróki í nóvember 1992. Frá vinstri Guðjón Guðmundsson þingmaður, óþekktur, Ellert Eiríksson bæjarstjóri í Keflavík, Sigfús Jónsson bæjarstjóri á Akureyri form. nefndarinnar, Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri Skr. og Björn Sigurbjörnsson Sauðárkróki.
Jón Garðarsson Neðra-Ási talar á fundi í Hótel Varmahlíð um sameiningu 11 sveitarfélaga í Skagafirði 1997. T.v. við hann er Trausti Pálsson Laufskálum og t.h. Birgir Haraldsson Bakka, Símon Traustason Ketu og Sævar Einarsson Hamri.
Fyrsti fundur nýkjörinnar sveitastjórnar í sameinaðu sveitarfélagi í Skagafirði haldinn í Gilsstofu í júní 1998. F.v. Sigrún Alda Sighvatsdóttir, Árni Egilsson, Ásdís Guðmundsdóttir, Páll Kolbeinsson, Snorri Björn Sigurðsson sveitarstjóri, Elsa Jónsdóttir ritari, Gísli Gunnarsson forseti sveitastjórnar, Herdís Sæmundaróttir, Elílborg Hilmarsdóttir, Stefán Guðmundsson, Sigurður Friðriksson, Ingibjörg Hafstað og Snorri Styrkársson.
Árssþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) haldið í Bóknámshúsi Fjölbrautaskólans í ágúst 1995. F.v. Björn Bjarnason menntamálaráðherra, Páll Pétursson félagsmálaráðherra, Björn Sigurbjörnsson formaður SSNV, Anna Kristín Gunnarsdóttir, Steinunn Hjartardóttir og Þórður Skúlason sveitastjóri á Hvammstanga í ræðustóli.
Ársþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) haldið í Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki í ágúst 1995. F.v. Páll Pétursson félagsmálaráðherra, Björn Sigurbjörnsson formaður SSNV, Anna Kristín Gunnarsdóttir, Steinunn Hjartardóttir og Björn Bjarnason menntamálaráðherra í ræðustóli.