Hestamót Hestamannafélagsins Svaða á Hofgerðisvelli 1992. A-flokkur gæðinga. F.h. Trix frá Gröf og Þórir Níels Jónsson (1966-2011) frá Óslandi, Kóróna frá Sigríðarstöðum og Egill Þórarinsson (1960-), Flosi frá Brekkukoti og Sigurbjörn Þorleifsson (1944-2011) Langhúsum, Gríma frá Sigríðarstöðum og Þórarinn Arnarson (1973-), og Ljúfur frá Gerðum og Gísli S. Hallldórsson. Jón Guðmundsson (1931-) frá Ósland (t.h). og Símon Ingi Gestsson (1944-2018) frá Barði afhenda Þóri og Trix verðlaun en þeir sigruðu.
Hestamót Svaða á Hofgerðisvelli 1992. B-flokkur gæðinga. F.h. Djákni frá Sleitustöðum og Þórir Jónsson (1966-2011), Óslandi, Mollý frá Minni-Brekku og Símon Ingi Gestsson (1944-2018) frá Barði, Öðlingur frá Barði og Egill Þórarinsson (1960-), Lyfting frá Hofsósi og Gunnar Jón Eysteinsson (1963-) og Stóri-Brúnn frá Óslandi og Rögnvaldur Óli Pálmason (1969-). Þórir og Djákni sigruðu og var Þórir jafnframt kosinn maður mótsins.
Hestasýningin "Til móts við íslenska hestinn" sem var á Vindheimamelum sumarið 1992. F.h. Björn Sveinsson (1952-), Varmalæk, Páll Bjarki Pálsson (1959-), Flugumýri, óþekkt, Jóhann Magnússon og Elvar Eylert Einarsson (1972-), Skörðugili. Sama mynd og no 1832.
Atriði í sýningunni "Til móts við íslenska hestinn" sem var á Vindheimamelum sumarið 1992. Söngurinn er nátengdur hestamennskunni. Frá vinstri Sigríður Einarsdóttir, Björn Sveinsson, Ingimar Ingimarsson, Sigurjón Jóhannesson og Magnús Sigmundsson.
Fiskvinnsla hjá Skildi á Sauðárkróki. Frá vinstri: Hallfríður Jóhanna Sigurðardóttir frá Holtsmúla, Eyrún Þorleifsdóttir og Íris Baldvinsdóttir. Sú sem snýr baki (á móti Írisi) er óþekkt.
Drangey. Ljósmyndari Feykis var þarna á ferð í ágúst árið 2000 en þá messaði hr. Karl Sigurbjörnsson biskup í eynni í blíðskaparveðri fyrir um hundrað manns.
Norsku skíðakappi, Pal Gunnar Mikkelsen. Myndin er tekin á Bjarnargili í Fljótum árið 1992. Pal Gunnar er fyrrverandi landsliðsmaður Noregs í skíðagöngu og núverandi þjálfari Therese Johaug.
"Þó að flestir séu sjálfsagt orðnir hundleiðir á snjónum, framkallar nýfallin mjöllin oft skemmtilegar myndir," skrifar Þórhallur Ásmundsson í mars 1990.
Mynd með frétt um ferð veiðieftirlitsmanns vorið 1993 á vatnasvæði Miðfjarðarár og sjávarströnd Miðfjarðar. Pétur Brynjólfsson, Hólalaxi (situr) o.fl. að fanga klakfisk úr Vatnsdalsá.
Hjónin á Búrfelli í Miðfirði, þau Sigurbjörg Geirsdóttir og Jón Eiríksson í fjósinu, en kúabú þeirra var afurðahæsta bú landsins pr. grip árið 1989 og næst hæst 1990. Óþekktur lengst t.h.
Veiðifélag Miðfirðinga var með merka fiskifræðitilraun í Núpsá í Vestur-Húnavatnssýslu sumarið 1987, þar sem reynt var að komast að því hvað veldur sveiflum í laxagengd.
Tilg. Frá hestamannamóti á Vindheimamelum um verslunarmannahelgina 1987. Frá vinstri: Olil Amble á Snjalli frá Gerðum, Sveinn Ragnarsson á Hring frá Húsey, Barbara Meyer, Sigurbjörn Bárðarson og Sævar Haraldsson.
Ískappreiðar á Hópsvatni síðla vetrar 1988. F.v. Sigurður Pálmi Rögnvaldsson (1949) á Óðni, Sigurbjörn Þorleifsson á Glanna (1944-2011) og Símon Gestsson (1944-2018) á Steinku hampar bikarnum.
"Þessi farartæki njóta orðið mikilla vinsælda hjá hestamönnum," segir í grein í Feyki. Myndin var tekin af fyrirfólki á ískappreiðum á svæði Léttfeta í mars 1990.
Hólahátíð 1987. Á myndinni má þekkta sr Hjálmar Jónsson (3 f.v.), sr Döllu Þórðardóttur (við bílinn, horfir í myndavélina) og sr Gísla Gunnarsson (aftastur, með gleraugu).
Ný kirkja rís á Blönduósi. Séra Árni Sigurðsson tekur fyrstu skólfustunguna í júlí 1982. Fé til kirkjubyggingarinnar kom frá sóknarbörnum og var sérstaklega að getið erfðagjafar frá Árna Óla og konu hans Önnu Guðrúnu Guðmundsdóttur.
F.v. Guðbrandur Gústafsson (Gaui Gústa), Siglufirði, Hermann Jónsson frá Lambanesi og Sturlaugur Kristjánsson (Stulli) Siglufirði. Myndin er tekin í félagsheimilinu Ketilási í Fljótum.
Mynd tekin í fjörunni í Drangey í ágúst 1994. Frá vinstri, Jón Eiríksson (1929-) "Drangeyjarjarl" og svo þrír Drangeyjarsundkappar, þeir Eyjólfur Jónsson, synti 1957 og 1959, Axel Kvaran synti 1939 og Pétur Eiríksson sem synti 1936.
Nýr lögreglubíll K-3000 fyrir framan lögreglustöðina í Suðurgötunni á Sauðárkróki sumarið 1986. Frá vinstri. Þorkell V. Þorsteinsson aðstoðarskólameistari FNV og lögreglumaður og Björn Mikaelsson yfirlögregluþjónn Sauðárkróki.
Frá árshátíð Stangveiðifélag Sauðárkróks í janúar 1987. Veiðikórinn tekur lagið. F.v. Ólafur Helgi Jóhannsson (1950-), Árni Ragnarsson( 1949-), Hörður Inigmarsson (1943-), Sigurður Björnsson (1940-), Steinn Þorkelsson Steinsson (1931-2010), Jóhann Friðriksson (1953-), Þorbjörn Árnason (1948-2003), Ólafur Helgi Antonsson (1947-), Brynjar Pálsson (1936-) og Geirmundur Valtýsson (1944-). leikur undir.
Flogið til fjárleita á húnvesku heiðarnar haustið 1989. F.v. Magnús Jósefsson, Steinnesi, Magnús Ólafsson, flugmaður á Sveinsstöðum, Reynir Steingrímsson, Hvammi og Jón Pálmason, Hnausum.
Bridgesveit Ásgríms Sigurbjörnssonar frá Siglufirði, F.v. Bogi Sigurbjörnsson, Anton Sigurbjörnsson, Jón Sigurbjörnsson og Ásgrímur Sigurbjörnsson, allt bræður.
Einar Einarsson (1952-) verksmiðjustjóri Steinullarverksmiðjunnar á Sauðárkróki t.v. ásamt hópi rússneskra gesta og túlki þeirra, en þeir komu vorið 1990 til að skoða verksmiðjuna sem þá var talin ein sú fullkomnasta.
Hr. Karl Sigurbjörnsson biskup messaði í Drangey í ágúst árið 2000. Honum til aðstoðar var séra Guðbjörg Jóhannesdóttir. Um hundrað manns voru við athöfnina í blíðskaparveðri. "Drangeyjarjarlinn" Jón Eiríksson er neðst í vinstra horni myndarinnar.
Sigurvegarar í stærðfræðikeppni grunnskóla og Fjölbrautaskóla á Norðurlandi vestra sem fram fór í Bóknámshúsi Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki 25. apríl 1998. Sigurvegari Ísak Sigurjón Bragason (lengst t.v.) önnur Sunna Björk Björnsdóttir (1983-) og þriðji Gunnar Sigurðsson.
Á uppskeruhátíð sunddeildar Tindastóns sem haldin var á Pollanum í janúar 1999 fékk Helga Elísa Þorkelsdóttir (1983-) verðlaun fyrir bestan árangur en hún setti 14 héraðsmet árið 1998.
Sigurvegarar á Sæluvikuskákmóti á Sauðárkróki 1988. F.v.: Páll Ágúst Jónsson Siglufirði (3.-4. sæti ), Páll Leó Jónsson, Skagaströnd (3.-4. sæti), Róbert Harðarsson, Reykjavík (1. sæti) og Bragi Halldórsson, Reykjavík (2. sæti).
Frá vinstri Hjálmar Indriði Guðmundsson (1937-2009) og kona hans Birna Hjördís Jóhannesdóttir (1936-) ábúendur á Korná, Borgar Símonarson (1930-2012) og Rósa Sigurbjörg Guðmundsdóttir (1940-) frá Goðdölum og Stefán Halldór Magnússon (1975-), Oddný Kristrún Ásgeirsdóttir (1981-). Allt sauðfjárbændur.
Viðurkenningu fyrir snyrtilega lóð á Sauðárkróki árið 1987 hlaut Birkihlíð 11. Eigendur Bragi Skagfjörð Haraldsson (1942), Þuríður Eygló Jónsdóttir (1939) og börn þeirra Jón Egil Bragason (1968-) og Alda Bragadóttir (1971-). Einnig hlutu Ögmundur Svavarson og María Pétursdóttir viðurkenningu fyrir lóðina Öldustíg 13.
Keppendur í Norðurlandsmóti í golfi á Hlíðarendavelli við Sauðárkrók í ágúst 1984. Þekkja má Stefán Birgi Pedersen (1936-) lengst til vinstri, næsti óþekktur síðan kemur Steinar Skarphéðinsson (1941-). Aðrir óþekktir.
Sigursveit Steinars Skarphéðinssonar í Bændaglímunni á lokamóti Golfklúbbs Sauðárkróks í ágúst 1987 F.v. Friðrik Jens Friðriksson (1923-2011), Sverrir Valgarðsson (1954), Hreinn Jónsson (1939-2009), Steinar Skarphéðinsson, Magnús H. Rögnvaldsson (1952-), Friðrik Örn Haraldsson (1973-), Hjörtur Geirmundsson (1967-) og Guðmundur Sverrisson (1973-).
Kvenfélag Sauðárkróks og samband Skagfirskra kvenna færðu Hjúkrunar- og dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki húsgögn í setustofu heimilisins að gjöf. Myndin er tekin á deild V á Sjúkrahúsinu á Sauðárkróki í janúar 1988 þegar formleg afhending fór fram, af stjórnum félaganna og starfsfólki deildarinnar. F.v. Viktoría Særún Gestsdóttir (1933-), Engilráð M. Sigurðardóttir (1941-), Ólafur Sveinsson (1927-), Solveig Arnórsdóttir (1928), Helga Haraldsdóttir (1954-), Margrét Selma Magnúsdóttir (1926-1998), Herdís Klausen (1954-), Ingibjörg Jóhannesdóttir, Lovísa Símonardóttir (1948-) og Björg Guðmunda Snæland Guðmundsdóttir (1947-).
Kvenfélag Sauðárkróks og Samband skagfirskra kvenna færðu Hjúkrunar- og dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki húsgögn í setustofu heimilisins að gjöf. Myndin tekin í janúar 1988 á deild 4 af stjórnum félaganna og starfsfólki deildarinnar þegar gjöfin var formlega afhent.
Ólafur Sveinsson yfirlæknir t.h. og starfsfólk deildar V, ásamt stjórn Kvenfélagasambands Skagafjarðar. Myndin er tekin á deild V á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki. F.v. Björg Guðmunda Snæland Guðmundsdóttir (1947-), Birgitta Karlotta Pálsdóttir (1946-), Sólveig Arnórsdóttir, Herdís Klausen (1954-), Lovísa Símonardóttir (1948-) Ólafur Sveinsson og Ingibjörg Jóhannesdóttir. Tilg. Tilefnið er gjöf þ.e. húsgögn í setustofu, sem Kvenfélasambadið færði Hjúkrunar- og dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki í janúar 1988.
Mynd tekin á stofnfundi Soroptistafélags Skagafjarðar í maí 1989. Frá vinstri: Steinunn Einarsdóttir, þáverandi forseti Landssambands Soroptimista, Ingunn Ásdís Sigurðardóttir, stofnformaður Soroptimistaklúbbs Skagafjarðar, Lalla Azzeroli, fulltrúi Evrópusambands Soroptimista - hún færði klúbbnum stofnskrána, Guðrún Sigurðardóttir, þáverandi formaður útbreiðslunefndar SIÍ og aftan við hana er Halldóra Eggertsdóttir heiðursfélagi SIÍ, einnig í útbreiðslunefnd. Hún var þjóðþekkt fyrir margvísleg félags- og ritstörf.