Húsið Sandur á Hofsósi sem nú hýsir Vesturfarasetrið. Maðurinn til hægri vinstra megin á myndinni er Ólafur Ragnar Grímsson forseti hinn óþekktur, svo stendur Valgeir S. Þorvaldsson forstöðumaður setursins framan við húsið og kona hans Guðrún H. Þorvaldsdóttir er lengra t.h. Nær sér svo á bak Magnúsar H. Sigurjónssonar og konu hans Kristbjörgu Guðbrandsdóttur.
Forsetahjónin heimsækja Vesturfarasetrið á Hofsósi í ágúst 1996 en þau höfðu verið á 200 ára minningarhátíð um Bólu-Hjálmar. F.v. Guðrún Katrín Þorbergsdóttir forsetafrú, Guðrún H Þorvaldsdóttir, Vatni , Valgeir S Þorvaldsson forstöðumaður Vesturfarasetursins og Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands.
Þórhallur Ásmundsson (lengst t.h.) gerist blaðamaður Dags á Sauðárkróki í júlí 1986. Með honum á myndinni eru Jóhann Karl Sigurðsson framkvæmdastjóri Dags (lengst t.v.) og Hermann Sveinbjörnsson ritstjóri Dags.
Tilg. Hljómsveitin Fást sem starfaði á Króknum um og eftir 1985. F.v. Sigurður Ásbjörnsson, Úlfar Haraldsson, Guðbrandur Ægir Ásbörnsson og Magnús Helgason. Myndin tekin í Aðalgötunni á Króknum.
F.v. Óþekkt, Birgitta Pálsdóttir, Sólveig Arnórsdóttir, hugsanlega Pálína Skarphéðinsdóttir á bak við, Lovísa Símonardóttir, Ólafur Sveinsson læknir og Ingibjörg Jóhannesdóttir. Starfsfólk Sjúkrahúss Skag, hvítklætt og svo kvenfélagskonur. Tilefnið ekki vitað.
Frá 100 ára afmælishófi Búnaðarfélags Áshrepps Hún. haldið á Hótel Blönduós í júlí 1982. Við gluggann t.v. Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri Pálmi Jónsson landbúnaðarráðherra fyrir miðju og Ásgeir Bjarnason formaður Stéttarsambands bænda t.h. Þá er Árni Jóhannsson kaupfélagsstjóri KH næst t.h.
Fjórir fullorðnir starfsmenn Kaupfélags Skagfirðinga á síðasta starfsdegi sínum hjá félaginu, 30 júní 1989. F.v. Sigurður B. Magnússon, Kristján Sölvason, Fjóla Kristjánsdóttir og Stefán Sölvi Sölvason.
Minnisvarði í Glaumbæ um Guðríði Þorbjarnardóttur. Minnisvarðinn var afhjúpaður í Glaumbæ sumarið 1994 af Vigdísi Finnbogadóttur forseta, en hann er afsteypa af höggmynd Ásmundar Sveinssonar.
Vesturfarasetrið Hofsósi. F.v. Sigurrós Þórleif Stefánsdóttir, Guðrún H. Þorvaldsdóttir, Valgeir S. Þorvaldsson forstöðumaður Vesturfarasetursins og Ólafur Ragnar Grímsson forseti.
Verðlaunahafar á Króksmóti. Þekkja má fyrir aftan drengina t.v. Jón Arnar Magnússon tugþrautakappa, en hann var heiðursgestur á mótinu 1996. Ingvar Magnússon í rauðri peysu og t.h. Ómar Braga Stefánsson.
Fótboltastrákar úr Tindastóli hampa bikar, hugsanlega á Króksmóti. Fyrir aftan drengina er Jón E. Friðriksson í bláum jakka og t.h. er Alfreð Guðmundsson.
Skrifstofa Sjóvá sem opnaði nýja skrifstofu að Skagfirðingabraut 9 Skr. síðla vetrar 1988. Umboðsmaður Sjóvá er Anna Pála Guðmundsdóttir við borðið t.h. og starfsmaður er Ásdís Sigríður Hermannsdóttir (1949-). við borðið t.v. Viðskiptavinur er óþekktur.
Fundur Ítölunefndar fyrir Auðkúluheiði með bændum sem áttu upprekstur á heiðina í Miðgarði vorið 1985. F.v. Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri, Andrés Arnalds, Ingvar Gýjar Jónsson Gýjarhóli, Sigurpáll Árnason Lundi (sést að hluta) og Ólafur Dýrmundsson í ræðustóli.
Hlynur Guðmundsson opnar nýja rakarastofu, Pýramítann, að Aðalgötu 6 Sauðárkróki haustið 1995. Á myndinni er hann að klippa einn af fyrstu viðskiptavinunum Þorvald Þorvaldsson (Búbba) en hann hafði rekið verslunina Vísir í sama húsnæði áður.
Bræðurnir Gísli og Ólafur Th. Árnasynir frá Ísafirði, en þeir tóku þátt í fjallamaraþoni sem fram fór sumarið 1998 vestan Varmahlíðar og lentu þeir í öðru til þriðja sæti, en 2 þátttakendur voru í liði. Sigurvegarar voru Guðjón Marteinsson og Guðjón Ö. Svavarsson. Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð sá um framkvæmd keppninnar.
F.v. Guttormur Óskarsson (1916), Baldvin Jónsson (1934) og Hrólfur Jóhannesson (1906) í Pakkhúsinu á Hofsósi í ferð eldri borgara sem KS bauð í sumarið 1995, en farið var til Siglufjarðar með viðkomu allvíða.
Katrín Jóelsdóttir gæðaeftirlitsmaður hjá frystihúsinu Skildi með viðurkenningu sem Skjöldur fékk fyrir fyrsta flokks fiskafurðir frá Coldwater Seafood Corporation í Bandaríkjunum 1985-1986. Með Katrínu á myndinni er Páll Pétursson starfsmaður Coldvaters.
Sýning á munum í eigu Andrésar Valberg var sett upp í Gagnfræðaskólanum á Sauðárkróki vorið 1988. Andrés gaf síðan Sauðárkrók stærstan hluta safnsins. Frá vinstri: Óþekktur, Jón Andrés Sveinn Valberg (1919-2002) Steingrímur Friðriksson (1906-1997), Marteinn Bergmann Steinsson (1909-2004), Óskar Örn Óskarsson (1973-).
Sýslumannshjónin á Blönduósi þau Jón Ísberg og Þórhildur Guðjónsdóttir taka við bókagjöf og blómum í apríl 1994 úr hendi bæjarstjórans Ófeigs Gestssonar í tilefni þess að Jón var að hætta sem sýslumaður Húnvetninga eftir 43 ára starf.
Frá keppni smalahunda við Skarð ofan Sauðárkróks í vetrarbyrjun 1998. Skipuleggjandi var Andrés Helgason í Tungu. Sigurvegari var tíkin Ljós og Gunnar Einarsson á Daðastöðum í Öxarfirði.
Frá keppni smalahunda sem haldinn var við Skarð ofan Sauðárkróks í vetrarbyrjun 1998. Skipuleggjandi keppninnar var Andrés Helgason í Tungu. Sigurvegari var tíkin Ljós og Gunnar Einarsson Daðastöðum í Öxarfirði.
Borð og myndarammi eftir Adam Magnússon Akureyri. Adam Magnússon er fæddur á Brimnesi í Ólafsfirði 3. september 1903, Látinn 12. nóvember 1984, Trésmíðasveinn á Akureyri 1930. Trésmiður á Akureyri.
Skipverjar á Skafta SK æfa reykköfun á námsskeiði sem Björgunarskóli sjómanna hélt á Króknum í ársbyrjun 1994. Lengst t.h. gæti verið Kolbeinn Sigurjónsson.
Sjálfstæðisfélögin í Skagafirði héldu opin fund með Davíð Oddssyni forsætisráðherra í Safnahúsinu á Sauðárkróki í febrúar 1993. Á fundinn mættu einnig þingmenn Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu svo og Halldór Blöndal samgönguráðherra og Geir H. Haarde þingflokksformaður. F.v. Halldór Blöndal (sést að hluta), séra Hjálmar Jónsson, sem var fundarstjóri, Davíð Oddsson, Pálmi Jónsson og Vilhjálmur Egilsson varaþingmaður.
Fundur í matsal Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki ca 1992-1994. F.v. Hilmar Pétur Valgarðsson Fremstagili, Stefán Guðmundsson Sauðárkróki, Páll Pétursson Höllustöðum, Ragnar Arnalds Varmahlíð, séra Hjálmar Jónsson Skr. og Vilhjálmur Egilsson. Allt þingmenn nema Hilmar Pétur, hann var formaður nemendafélags Fjölbrautaskólans. Útskrifaðist frá skólanum 1993.
Úr matsal Fjölbrautaskólans á Skr. ca 1992-1993. F.v. Sigríður Gunnarsdóttir Flatatungu (sést að hluta), Þorkell Þorsteinsson kennari Skr. Höskuldur Búi Jónsson Drangsnesi, Snæbjörn Valbergsson Sólgörðum, (Víðir Sigurðsson Víðinesi) og Ragnar Friðrik Gunnlaugsson Skagaströnd.
Spyrjendur við pallborðsumræður með menntamálaráðherra Ólafi G. Einarssyni sem útvarpað var beint á Rúv. á Sauðaórkróki í júli 1994. Stjórnandi umræðnanna var Finnbogi Hermannsson. F.v. Vigfús Vigfússon, Einar Svansson framkvæmdastjóri Fisk. Þórey Jónsdóttir Keflavík, Ásrún Ólafsdóttir hótelstýra Blönduósi, Ásgerður Pálsdóttir Geitaskarði, Þorbjörn Árnason Sauðárkróki, séra Hjálmar Jónsson. Aftan við Einar situr Sigurður B. Magnússon og María Björk Ingvadóttir stendur lengst t.h. Tveir öftustu óþekktir.
Pallborðsumræður með menntamálaráðherra Ólafi G. Einarssyni sem útvarpað var beint á RÚV á Sauðárkróki í júlí 1994. F.v. Finnbogi Hermannsson stjórnandi umræðnanna, Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra, Jón F. Hjartarson skólameistari, Herdís Sæmundardóttir kennari, Valgarður Hilmarsson formaður héraðsnefndar A-Hún. og Stefán Guðmundsson alþingismaður.
Tilg. Frá ráðstefnunni Landbúnaður 2000 sem haldin var í íþróttahúsinu á Sauðárkróki í júní 1994. Ráðstefnuna sóttu um 150 manns. Fremst t.v. má þekkja Jóhannes Torfason á Torfalæk og Tómas Inga Olrich ráðherra. Í þriðju sætaröð fyrir miðju er Þórófur Gíslason kaupfélagsstjóri. Lengst t.h er Þorsteinn Ingi Sigfússon framkvæmdastjóri Nýsköpunarmiðstöðfar Íslands og t.v við hann Þórarinn Sólmundarson.
Fjölmenn atvinnumálaráðstefna sem haldin var í Safnahúsinu á Sauðárkróki 2. maí 1993. Fremsta sætaröð f.v. Kristján Jónasson, (Magnús Erlingsson) Ingi Friðbjörnsson. Í annari röð f.v. má þekkja Vigfús Vigfússon, Karl Bjarnason, óþekktur (aftan við Magnús ), Valgeir Kárason og Eiður Benediktsson lengst t.h. Þá eru aftan við Valgeir, Jóhann Svavarsson og Anna Kristín Gunnardóttir.
Þrír af frambjóðendum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðurlandskjördæmi vestra í nóvember 1994. F.v. Runólfur Birgisson, Sigfús Jónsson og Vilhjálmur Egilsson, en séra Hjálmar Jónsson sigraði prófkjörið.
Útskrift úr Hólaskóla í Hóladómkirkju vorið 1995. Jón Bjarnason skólastjóri afhendir Elísu Rán Ingvarsdóttur bókaverðlaun fyrir hæstu einkun frá skólanum.
Hljómsveitin Herramenn sem starfaði á árunum ca 1992-1995. F.v. Arnar Kjartansson trommur, Hörður G. Ólafsson bassi, Birkir Guðmundsson hljómborð, Kristján Gíslason söngur og Svavar Sigurðsson gítar.
Minnisvarði Þórdísar, dóttur Ingimundar gamla, í Þórdísarlundi. Sunnan undir Vatnsdalshólum er Þórdísarlundur, skógarreitur sem Húnvetningafélagið í Reykjavík hefur ræktað og sinnt frá árinu 1952. Í Þórdísarlundi er minnisvarði um fyrsta innfædda Húnvetninginn, Þórdísi dóttur Ingimundar gamla, en hún er talin hafa fæðst þar á hörpu árið 895. Þar nærri stendur veiðihúsið Flóðvangur sem Veiðifélag Vatnsdalsár lét reisa árið 1964. Gönguleið liggur frá Þórdísarlundi að Þrístöpum.
Steinn Ástvaldsson (t.v.) og Róar Jónsson starfsmenn bæjarins (Skr.) við ruslahrúgu sem varðskipið Týr skildi eftir á hafnargarðinum við brottför í mars 1994.