Frá minningartónleikum um Jóhann Pétur Sveinsson í íþróttahúsinu í Varmahlíð í október 1995. Hér er söngsveitin Drangey að syngja undir stjórn Snæbjargar Snæbjarnardóttur (1932-) við undirleik Vilhelmínu Ólafsdóttur (1948-).
Karlakórinn Lóuþrælar í Húnaþingi vestra. Undirleikari er Ólöf Pálsdóttir frá Bessastöðum á Heggstaðanesi. Harmonikkuleikari er bróðir hennar, Þorvaldur bóndi á Bjargi í Miðfirði. Aftari röð f.v.: Jón Böðvarsson, Páll Sigurðsson, Jón Hilmar Karlsson og Björn (var oddviti í Ytri-TOrfustaðahreppi). Fremri röð f.v.: Þorvaldur, Böðvar Sigvaldason, Eggert Antonsson og Sverrir Björnsson í Brautarholti.
Mynd með grein um Karlakórinn Heimir í Feyki þann 6. júní 1984 11.tbl, 4. árg. Yfirskrift greinarinnar er ,,Það má kalla að gangi kraftaverki næst að hægt skuli vera að ná svo góðum árangri hjá kór, sem samanstendur af erfiðismönnum".
Karlakórinn Heimir. Í fremstu röð frá vinstri Kristján Jósefsson, Viglundur Rúnar Pétursson, bræðurnir Kolbeinn og Þorleifur Konráðssynir (1963-) og Gísli Pétursson (1951-)
Starfsmenn Sauðárkróksbæjar leggja snjóbræðslu í gangstétt sunnan við Sauðárkrókskirkju. Gústav Bentson er annar f.v. Gunnar Pétursson bendir og Róar Jónsson er lengst t.h.
Við höfnina á Sauðárkróki. Keppni í netasplæsingu á sjómannadaginn. Frá vinstri: Óþekktur, Sigurður E. Levý, Haraldur Birgisson frá Bakka. (krjúpandi), óþekktur, Einar Gíslason, Fúsi Agnars og óþekktur.
Félagar úr Skagfirðingasveit á Alexandersflugvelli við komuna frá Ísafirði en þeir fóru vestur til að aðstoða Súðvíkinga eftir snjóflóðin í janúar 1995. Fremst til hægri er Haraldur Ingólfsson (1967-) með leitarhund.
Björn Sverrisson (1937-) undir stýri á Willis 1946 sem hann gerði upp, í Aðalgötunni á Króknum. Tilgáta að þessi mynd sé tekin á afmælisári Sauðárkróks 1997.
Brúarvinnuflokur frá Hvammstanga við byggingu brúar yfir Vesturós Héraðsvatna sumarið 1994. F.v Marteinn Reimarsson, Helgi Kristjánsson, Hannes Ársælsson, Örlygur Eggertsson, Gunnar Þorvaldsson, Jakob Jóhannesson og Sigurður Hallur Sigurðsson.
Sama mynd og 2007. Svipmynd frá vöru- og þjónustusýningu á Sauðárkróki sumarið 1997. Bás Loðskinns og Sjávarleðurs vakti talsverða athygli á sýningunni. Annar frá vinstri er Friðrik Jónsson (1960-).
Ljósmyndastofa Péturs og Hinir sömu sf. flytur í nýtt glæsilegt húsnæði að Öldustíg 5 Sauðárkróki í október 1998. Óli Arnar Brynjarsson (1970-) vinstra megin og Pétur Ingi Björnsson (1970-).
Fóðurverksmiðja KS í Vallhólma tekin formlega í notkun haustið 1997. F.v. Sæmundur Þorbjörn Sæmundsson (1975-), Jóhannes Ólafsson (1966-) og Vignir Sigurðsson framkvæmdastjóri inni í verksmiðjunni og eins og sjá má eru vinnslukerfið engin smásmíði.
Svipmynd frá vöru- og þjónustusýningu á Sauðárkróki sumarið 1997. Bás Loðskinns og Sjávarleðurs vakti talsverða athygli á sýningunni. Annar frá vinstri er Friðrik Jónsson (1960-).
Ísprjón yfirtekur rekstur saumastofunnar Drífu á Hvammstanga haustið 1998 og fækkar starfsfólki úr 20 í 15. Myndin er frá saumastofunni á Skagaströnd. Konan fremst er Signý Magnúsdóttir og Guðbjörg Bryndís Viggósdóttir fyrir aftan hana.
Þingflokkur Sjálfstæðismanna skoðar framleiðslu Loðskinns og Sjávarleðurs í heimsókn í Skagafjörð vorið 1997. Sigurður Karl Bjarnason (1945-) frá Loðskinni lengst til hægri, segir frá starfseminni.
Guðmundur Bjarnason umhverfis og landbúnaðarráðherra leit við í Sjávarleðri h.f í heimsókn á Sauðárkrók í febrúar 1997. Frá vinstri: Stefán Guðmundsson alþingismaður, Guðmundur Bjarnason ráðherra, Hrafn Hallgrímsson fylgdarmaður ráðherra og Friðrik Jónsson hjá Sjávarleðri.
Úr Stuðlabergi á Hofsósi á degi iðnaðarins, haustið 1995 en þá voru liðin 30 ár frá stofnun Stuðlabergs hf. Frá vinstri Stefán Óskarsson, Hjalti Gíslason, Vilhjálmur Steingrímsson, Þorsteinn Kristjánsson og Sigurveig Friðriksdóttir.
Garður hlaðinn utan um kirkjuna að Knappstöðum í Stíflu haustið 1994. Talið frá vinstri: Jón Elvar Númason (1973-), Þrasastöðum, Gunnlaugur Jónsson, Sigurður Helgi Sigurðsson (1969-), Jón Sveinsson (1968-), Ríkharður Ríkarðsson (1975-).
Steinullarverksmiðjan 10 ára haustið 1995. Iðnaðarráðuneytið styður þróunarverkefni í verksmiðjunni. 16,5 milljóna hagnaður var fyrstu átta mánuðu ársins. Við þetta tækifæri ræsti Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra nýja og fullkomna steinullarsög í verksmiðjunni.Frá vinstri eru Guðmundur Guðmundsson, Sigurður Ágústsson og Árni Guðmundsson (sést að hluta) allt stjórnarmenn. Þá Einar Einarsson framkvæmdarstjóri , Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra, Guðmundur Örn Guðmundsson framleiðslustjóri og Stefán Guðmundsson alþingismaður.
15 unglingar í Vestnorden þ.e. frá Grænlandi, Færeyjum og Íslandi vinna við endurgerð gamallar sjóbúðar að Reykjum á Reykjaströnd sumarið 1994. Verkefni unglinganna í Vestnorden er að varðveisla náttúru- og sögulegra minja í löndunum þremur, sem þeir koma frá.
10 bændur keyptu jafn margar sláttuvélarnar í einum pakka frá Búvélum hf. í júní 1997. Voru vélarnar tollafgreiddar og settar saman á Sauðárkróki. Frá vinstri, Egill Örlygsson, Óskar Broddason, Vagn Þormar Stefánsson (1965-), Sigurður Baldursson (1963-), Sveinn Allan Morthens (1951-), Theódór Júlíusson frá Búvélum, Þórður Pálmar Jóhannesson (1945-2012), Pálmi Ragnarsson, Halldór S. Steingrímsson (1955-), Ragnar Gunnlaugsson (1949-) og Sigmar Jóhannsson (1947-) sem gekkst fyrir kaupunum.
Mjólkursamlag KS á Sauðárkróki fær viðurkenningu í janúar 1998 á innra eftirliti vegna aðildar Íslands að EES samningi. Jón Þór Jósefsson (1965-) gæðastjóri og Herdís Klausen (1954-) formaður heilbrigðisnefndar Skagafjarðar með viðurkenninguna. Snorri Evertsson (1944-) mjólkursamlagsstjóri er lengst til vinstri og Sigurjón Þóraðarson (1964-), heilbrigðisfulltrúi lengst til hægri. Með þeim á myndinni er starfsfólk samlagsins.
Stöð tvö og Bylgjan í heimsókn á Sauðárkróki haustið 1994 á ferð um landið. Af því tilefni var sett upp hljóðstofa í anddyri Skagfirðingabúðar þaðan sem Bylgjan sendi út. F.v. Bjarni Dagur Jónsson, Eiríkur Hjálmarsson, Þorgeir Ástvaldsson , Ágúst Héðinsson og Örn Þórðarson.
Frá opnun sýsluskrifstofunnar á Sauðárkróki í nýju húsnæði að Suðurgötu 1 í janúar 1991. Frá vinstri: Sveinsína Guðrún Steindórsdóttir (1950-), Ásta Pálína Ragnarsdóttir (1953-), Magnús Sverrisson (1954-), Fanney María Maríasdóttir (1955-), Hjördís Stefánsdóttir (1962-), Heimir Guðmundsson (1958-), Sigríður Friðjónsdóttir og Kristján Þór Hansen (1950-).
Starfsfólk Landsbankans á Sauðárkróki og fulltrúar bankans við opnun útibúsins að Suðurgötu 1 í febrúar árið 1991. Í fremri röð Þórunn Jónasdóttir, Hrefna Þórarinsdóttir, og María Lóa Friðjónsdóttir, afgreiðslustúlkur útibúsins og Jóhann Ólafsson fulltrúi í Samvinnubankanum. Í aftari röð eru Gunnlaugur Sigmarsson, Landsbankanum á Skagaströnd, Pétur Erlendsson fyrrv. aðstoðarbanakastjóri Samvinnubankans, Sigmundur Guðmundsson útibússtjóri Landsbankans á Sauðárkrók, Geir Magnússon fyrrv. bankastjóri Samvinnubankans og Guðjón Guðjónsson fulltrúi Samvinnubankanum.
Rækjuvinnsla að hefjast að nýju í Dögun Sauðárkróki í febrúar 1994 eftir stopp vegna lagfæringar á vinnslusal. Grein í Feyki 9/2 1994. Fremst vinstra megin er Guðbjörg Elsa Helgadóttir og við hlið hennar Sigurlaug Viðarsdóttir. Á móti Guðbjörgu er Aðalheiður Aradóttir.
Starfsstúlkur Fiskiðjunnar vinna fiskbita í pakkningar til verslanakeðja í Belgíu. Fremst og lengra til vinstri er Birna Davíðsdóttir, þá Steinunn Rósa Guðmundsdóttir og lengst til hægri Soffía Aðalsteinsdóttir. Grein í Feyki 7/12 1994 um fjöldauppsagnir hjá Fiskiðjunni.
Myndin tekin í vinnslusal Fiskiðjunnar á Sauðárkróki. Jónas Snæbjörnsson (1951-) forseti bæjarstjórnar t.v. og Snorri Björn Sigurðsson (1951-) bæjarstjóri.
Rækjuvinnsla á Skagaströnd. Frá vinstri: Sigrún Guðmundsdóttir framar og María Alexandersdóttir aftar. Ásta Ýr Ásgeirsdóttir framar til hægri og Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir aftar til hægri.
Tilraunavinnsla ígulkerjahrogna hjá hlutafélagonu ÍSEX á Sauðárkróki í janúar 1993. Annar frá hægri er Svanur Fannberg Jóhannsson (1937-2001). Aðrir óþekktir.
Tilraunavinnsla ígulkerjahrogna hófst hjá hlutafélaginu ÍSEX á Sauðárkróki í janúar 1993. Lengst til hægri er Svanur Fannberg Jóhannsson (1937-2001), Aðrir óþekktir.
Tilraunavinnsla á ígulkerjahrognum hjá hlutafélaginu ÍSEX á Sauðárkróki í janúar 1993. Grein í Feyki 27/1 1993. Önnur frá vinstri er Anna Guðbrandsdóttir (með svarta hanska). Hægri megin er Svanur Fannberg (með gleraugu).
Biskup Íslands í heimsókn á Sauðárkróki, Fiskiðjan heimsótt. F.v. Signý Bjarnadóttir (1949-), Ebba Guðrún Brynhildur Sigurðardóttir (1935-), Sigríður Ragnarsdóttir (1958-), Hjálmar Jónsson (1951-), Ólafur Skúlason (1929-2009), Baldvina Þorvaldsdóttir (1931-2007), Sigríður Jóhannsdóttir (1945-2001) og Magnús Erlingsson.
Mynd með frétt í Feyki 13. okt. 1993 þar sem gagnrýnt var að bygging þriggja íbúða í félagslega kerfinu var ekki boðnin út heldur samið við Friðrik Jónsson sf, Frá vinstri: Reynir Pálsson, Varmahlíð, Helgi Ingimarsson (1972-), Sauðárkróki og Óli Sigurjón Pétursson (1962-), Sauðárkróki.
Framkvæmdir við byggingu Bóknnámshúss Fjölbrautaskólans eru þarna komnar vel í gang en í ágúst 1991 var tekið á móti fyrstu steypu í húsið. og voru það fimm rúmetrar sem fóru í undirstöður undir sökkla.
Einar Guðmannsson og Guðmundur Svavarsson smiðir á Trésmiðjunni Ýr lagfæra þakið á Pálmalundi (Ólafshúsi) vorið 1992. Sér á bak Pálma Þórðarsyni eiganda Pálmalunds.
Tilg. Lionsmenn að helluleggja stéttina framan við Búnaðarbankann. F.v Friðrik Jónsson (Fíi), Jón Dalmann, Hannes Helgason (beygir sig), Sveinn Árnason, tveir rauðklæddir óþekktir og Guðmann Tóbíasson lengst t.h.
Unnið við uppslátt að grunni íbúðarhúss við Brekkutúni á Sauðárkróki vorið 1993, en þá hafði lifnað verulega yfir byggingaframkvæmdum á Króknum eftir litlar byggingaframkvæmdir undanfarin ár.
Skáli skátafélagsins Eilífsbúa sem byggður var af Byggingafélaginu Hlyn tilbúinn til flutnings að Brekku í Seyluhreppi í ágúst 1990. Björn Guðnason á gangi framan við skálann.
Beitning á Hofsósi haustið 1990. Nóg að gera í beitningunni þegar fiskast á línuna. Jónas Þorberg Jónasson (1934-2001) í Árveri á Hofsósi fremstur og bak við hann er Hjalti Gíslason (1930-2011).
Línubeitning á Hofsósi haustið 1990. Frá vinstri Hjalti Gíslason (1930-2011) Björn Sigurður Ívarsson (1942-1996), Jónas Jónasson og Bragi Vilhjálmsson lengst til hægri.